Morgunblaðið - 13.06.2020, Qupperneq 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2020
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Haldnir verða tónleikar til minningar
um Jaap Schröder fiðluleikara í Skál-
holtskirkju í dag, 13. júní, kl. 16. Jaap
lést 1. janúar síðastliðinn, 94 ára að
aldri. Á tónleikunum koma saman
þrír meðlimir Skálholtskvartettsins
sem Jaap Schröder leiddi um langt
áraskeið. Rut Ingólfsdóttir, sem spil-
aði aðra fiðlu í kvartettinum, sest nú í
sæti Jaaps Schröder og í hennar stað
kemur Hildigunnur Halldórsdóttir
fiðluleikari. Auk Rutar og Jaaps
Schröder skipuðu Skálholtskvartett-
inn þau Svava Bernharðsdóttir víólu-
leikari og Sigurður Halldórsson
sellóleikari og þau leika bæði á tón-
leikunum í dag.
Flutt verður verkið Sjö orð Krists
á krossinum eftir Joseph Haydn. Rut
segir að hópnum hafi þótt við hæfi að
minnast Jaaps Schröder með þessu
verki, sem fjallar um dauða Krists.
„Þetta verk tengist samstarfi okkar,
þessa hóps sem kemur fram, við
Jaap Schröder. Þetta var með því
fyrsta sem við spiluðum með honum
sem lítill hópur og við fluttum það
ótal sinnum með honum, í mörgum
löndum. Við ferðuðumst með honum
vítt og breitt um Evrópu og líka þó
nokkuð um Bandaríkin. Við eigum
svo mikið af góðum minningum frá
samstarfinu, ekki síst frá þessu
verki.“
Nutu góðs af leiðsögn Jaaps
Jaap Schröder var einn helsti upp-
hafsmaður upprunamiðaðs flutnings
í heiminum. Um miðbik 20. aldar
hófst bylgja sem snerist um að spila
barokktónlist á upprunaleg hljóð-
færi. Þegar strengjahljóðfæri eru
annars vegar snýst munurinn á hin-
um eldri og nýrri hljóðfærum um
strengina og stillingu hljóðfærisins.
Verkin eru þá spiluð með uppruna-
legri stillingu hljóðfæranna og á
öðruvísi strengjum en venjan er að
notuð séu í dag. „Hljómurinn verður
allt öðruvísi en þegar maður spilar á
okkar venjulegu nútímahljóðfæri,
þótt maður spili sömu verkin,“ skýrir
Rut. Jafnvel þótt hljóðfærin geti ver-
ið allt frá 17. öld er venjan að nota
nútímastrengi. Stilling hljóðfæra í
dag er hærri og hljómurinn verður
allt annar en þegar verkin voru sam-
in. Hljóðfæraleikararnir þurfa að að-
lagast þessari breytingu og segir Rut
frá því að reynsla Jaaps hafi komið
íslensku tónlistarmönnunum vel.
„Þetta er ekkert sem maður grípur
beint í. Við vorum stöðugt að læra af
honum. Þannig var það öll árin. Það
nutu mjög margir góðs af leiðsögn
hans, jafnvel á nútímahljóðfærin.“
Jaap Schröder var búsettur í
Amsterdam, og dvaldi mikið í Frakk-
landi, en hann hafði mikil tengsl við
Ísland um áratuga skeið, og þá sér-
staklega við Skálholt. „Hann starfaði
þar með okkur, og mörgum mörgum
fleirum, á hverju sumri í rúm tuttugu
ár,“ segir Rut.
Heillaðist af Skálholti
Jaap Schröder kom fyrst til
Íslands 1993. Hann leiddi Bachsveit-
ina á Sumartónleikum í Skálholti í
rúman áratug, stofnaði Skálholts-
kvartettinn og hélt fyrirlestra og
námskeið í barokktúlkun og flutn-
ingstækni. „Hann dvaldi hérna
gjarnan í nokkrar vikur á hverju
sumri. Strax í sinni fyrstu heimsókn
heillaðist hann af landinu og Skál-
holtsstað þar sem hann dvaldi þegar
hann var hér á landi.“
Árið 2006, á 950 ára afmæli
biskupsstóls í Skálholti, gaf hann
stóran hluta tónlistarbóka- og nótna-
safns síns til Skálholts. „Jaap hafði
mjög mikil áhrif hér á flutning tón-
listar frá barokk- og klassíska tím-
anum. Hann hvatti hljóðfæraleikara
til að eignast slík hljóðfæri og læra
þennan flutningsmáta.“
Vilja gefa út mikinn fjársjóð
Frítt er inn á tónleika dagsins en
gestum gefst kostur á frjálsum fram-
lögum til styrktar útgáfu á upp-
tökum með Jaap Schröder. Ótal plöt-
ur hafa verið gefnar út með tónlist
hans bæði í Evrópu og Ameríku.
Leikur hans með íslenskum
tónlistarmönnum hefur þegar komið
út á fjölmörgum geisladiskum hjá
Smekkleysu og hjá Musica Omnia í
Boston. Enn eru óútgefnar upptökur
í flutningi Schröder með Skálholts-
kvartettinum og Bachsveitinni, efni
sem fyllir fimm eða sex diska. „Þess-
ar upptökur eru að okkar mati mikill
fjársjóður. Við viljum gjarnan stuðla
að því að koma þeim út, hvort sem
það yrði á geisladiskum eða í
streymi. Það er mikil vinna að baki
en einnig þó nokkur vinna fram und-
an við að fullvinna þær til útgáfu. Við
viljum, í minningu hans, reyna að
gera allt sem í okkar valdi stendur til
þess að það verði.“
Strengjakvartett Sigurður Halldórsson, Rut Ingólfsdóttir, Svava Bernharðsdóttir og Jaap Schröder skipuðu Skál-
holtskvartettinn. Samstarfsmenn Jaaps vilja stuðla að útgáfu á upptökum með honum með minningartónleikum.
Minnast frumkvöðuls og læriföður
Minningartónleikar um fiðluleikarann Jaap Schröder í Skálholti í dag kl. 16 Schröder var einn
helsti upphafsmaður upprunamiðaðs flutnings í heiminum Hafði mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf
Fiðluleikarinn
Jaap Schröder
» Jaap Schröder fæddist í
Amsterdam 31. desember 1925
og lést 1. janúar síðastliðinn.
» Hann nam fiðluleik í París og
tónlistarfræði við Sorbonne-
háskóla.
» Hann lék um árabil með Hol-
lenska strengjakvartettinum.
» Hann var einn af frum-
kvöðlum upprunamiðaðs tón-
listarflutnings og hélt um það
námskeið og fyrirlestra.
» Fiðluleikarinn kom fyrst
hingað til lands árið 1993 til
þess að leiða Bachsveitina í
Skálholti og starfaði svo með
Skálholtskvartettinum í ára-
raðir.
» Hann var sæmdur hinni
íslensku fálkaorðu árið 2001.
Sýningin Tíðarandi – sam-
tímaverk úr einkasafni Skúla
Gunnlaugssonar verður opnuð
í Listasafni Árnesinga í dag kl.
15. Á henni má sjá fjölbreytt
úrval verka úr safni læknisins
og listaverkasafnarans Skúla
Gunnlaugssonar sem eiga
sameiginlegt að vera unnin á
síðastliðnum áratug. „Lista-
mennirnir á sýningunni til-
heyra yngri kynslóð lista-
manna og hafa verið áberandi í
íslensku myndlistarlífi undan-
farin ár. Samband listamanns
við menningu og anda síns
tíma er útgangspunktur sýn-
ingarinnar Tíðaranda og skoð-
að verður hvernig lesa má
þjóðfélagslegar hræringar í
gegnum listir,“ segir um verk-
in í tilkynningu.
Sýningin kallast á við sýn-
inguna Gjöfin til íslenzkrar alþýðu –
stofngjöf Ragnars í Smára til Lista-
safns ASÍ sem sett var upp í Lista-
safni Árnesinga fyrir einu ári og eiga
sýningarnar sameiginlegt að miðla
verkum úr safni einkasafnara sem til-
heyra hvor sinni kynslóðinni og varpa
verkin á sýningunum ljósi á tíðaranda
tveggja tíma. Listaverkasafnararnir
Ragnar og Skúli eiga báðir ættir að
rekja til Árnessýslu og hafa átt stór-
an þátt í því að kynna og kenna þjóð-
inni að meta íslenska myndlist, segir í
tilkynningu.
Sýningarstjóri er Vigdís Rún Jóns-
dóttir og meðal listamanna sem verk
eiga á sýningunni eru Anna Hrund
Másdóttir, Auður Ómarsdóttir, Ásdís
Sif Gunnarsdóttir, Davíð Örn Hall-
dórsson, Egill Sæbjörnsson, Elín
Hansdóttir, Gabríela Friðriksdóttir,
Helgi Þórsson, Kristín Morthens,
Leifur Ýmir Eyjólfsson, Margrét
Blöndal, Ragnar Kjartansson, Rakel
McMahon, Sara Riel, Sirra Sigrún
Sigurðardóttir, Snorri Ásmundsson,
Þórdís Aðalsteinsdóttir, Þórdís Erla
Zoëga og Þrándur Þórarinsson.
Á sýningu „Tvær konur á nóvembermorgni,
engin skjaldbaka“ nefnist þetta verk eftir
Þórdísi Aðalsteinsdóttur sem er meðal
verka á sýningunni í Hveragerði.
Samtímaverk úr safni
Skúla Gunnlaugssonar
Ljósmynd/Sigfús Már Pétursson