Morgunblaðið - 18.07.2020, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2020
Ef þú hefur ekki heimsótt Færeyjar nýlega skaltu láta verða að því.
Þangað er heillandi að koma, stórbrotið landslag, gott vegakerfi,
góður matur og rómuð gestrisni eyjaskeggja.
Glæsileg ferð til Færeyja með Norrænu og umhverfis Ísland
dagana 14.-20. október. Íslensk fararstjórn.
Dagskrá: Þann 14. október er ekið frá Reykjavík að Seyðisfirði og þaðan siglt með Norrænu til
Þórshafnar og komið þangað 15. október. Fyrsti dagurinn er frjáls en síðan verða skoðunarferðir
um eyjarnar næstu 3 daga undir leiðsögn fararstjóra. Gist er á Hotel Hafnia 4* í miðbæ Þórs-
hafnar. Siglt er frá Þórshöfn mánudaginn 19. október og komið til Seyðisfjarðar að morgni 20.
október. Þaðan ekið til Reykjavíkur og komið þangað að kvöldi. Innifalið í verði ferðarinnar er
morgunverður alla daga, kvöldverður á leið til Færeyja og á Hotel Hafnia og veitingar á leið til
Seyðisfjarðar.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri
borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með
tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is
og á www.hotelbokanir.is
Niko ehf | Austurvegi 3 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
FÆREYJAR
14.-20. október 2020
Sérferð fyrir
eldri borgara
Mikil upplifun
Verð 186.500 kr. á mann (m.v. einbýli eða tvíbýli)
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Að ferðast á hjóli er geggjuð leið til aðskoða landið, maður áttar sig betur áöllu þegar maður fer svona hægt yfir.Ég sé landið í öðru ljósi og kynnist því
á nýjan hátt. Þetta er líka mjög umhverfisvænn
ferðamáti, enginn útblástur eða brennsla á elds-
neyti,“ segir Jóhanna Kristín Jóhannsdóttir en
hún lagði upp fyrir viku ein á hjóli hringinn í
kringum landið.
„Það kom mér á óvart hvað sumir vegkaflar
eru langir, til dæmis Öxnadalurinn og Hörg-
árdalurinn, maður þýtur þar í gegn á bíl en mér
leið eins og þetta væri endalaust á hjólinu,“ seg-
ir Jóhanna og hlær en hún var í Fnjóskadalnum
þegar blaðamaður náði tali af henni.
„Ég var að koma niður Víkurskarðið og nú
skín sólin, í fyrsta sinn hjá mér í þessari ferð.
Rigningin hefur verið ráðandi en ég var svo
heppin að vinkona mín á Svalbarðsströnd bauð
mér gistingu þar síðustu nótt, svo nú er ég með
þurrt tjald í farteskinu,“ segir Jóhanna sem
annars gistir allar nætur í litla tjaldinu sem hún
reiðir með sér.
Aðeins tófur og fuglar á ferli
Heildarvegalengdin sem Jóhanna ætlar að
hjóla er 1.440 kílómetrar og hún var búin að fara
tæpa 500 kílómetra þegar spjallið fór fram.
„Það er mjög misjafnt hvað ég hjóla marga
kílómetra á dag, en ég miða við að fara 80 kíló-
metra á dag. Einn daginn fór ég tæpa 97 kíló-
metra og annan dag fór ég aðeins 20; ég tók
hvíldardag því systir mín var í útilegu og mig
langaði að vera aðeins með þeim. Ég spila þetta
af fingrum fram.“
Jóhanna segir ferðalagið hafa gengið vel
fram að þessu, ekkert hafi bilað en hún býst al-
veg við að það springi einhvern tímann hjá
henni dekk, en hún er viðbúin því.
„Ég hjóla mest þjóðveginn sem er malbik-
aður og það er mikil bílaumferð, enda júlí-
mánuður og margir Íslendingar í sumarfríi og á
ferðalögum. Ég lagði af stað frá Reykjavík á
föstudegi og hjólaði yfir nóttina Kjalarnesið,
Hafnarfjallið og Borgarfjörðinn til að losna við
mestu umferðina. Ég hjólaði Hvalfjörðinn, sem
var algerlega geggjað, svo friðsælt og enginn á
ferli nema tófur og fuglar, mikið dýralíf. Bannað
er að fara á reiðhjóli í gegnum Hvalfjarðargöng
og af sömu ástæðu hjólaði ég Víkurskarðið áðan
en fór ekki í gegnum Vaðlaheiðargöng.“
Upphaflega ætluðu þær að vera tvær í
hjólaferðinni, Jóhanna og vinkona hennar, en sú
hætti við. Jóhanna lét það ekki stoppa sig og
lagði ein upp í langferðina.
Fílar Svalbarða í botn
„Þetta er ekkert mál, mig hefur lengi lang-
að til að hjóla hringinn og ég ákvað að vera í fríi
í sumar til að ferðast um landið mitt,“ segir Jó-
hanna, sem er í meistaranámi í jarðfræði á Sval-
barða.
„Þar er frábært að vera, mjög einangrað
og sannarlega öðruvísi. Þarna eru margir nem-
endur á svipuðum aldri og ég í háskólamiðstöð-
inni, en þarna býr líka fullt af fólki með börnin
sín og fjölskyldur. Um 2.500 manns búa þarna
að staðaldri, þetta er eins og góður bær úti á
landi á Íslandi. Á Svalbarða er mjög mikið
myrkur frá nóvember og út febrúar og það er
kolsvart í desember og janúar. Yfir sumarið er
bjart allan sólarhringinn eins og hér. Ég var þar
yfir sumar í skiptinámi í BS-náminu mínu og
heillaðist af eyjunni og ákvað að fara þangað í
meistaranámið. Ég fíla Svalbarða í botn.“
Jóhanna segist bíða spennt eftir að komast
í nágrenni jökla á ferð sinni um landið á hjólinu,
verandi meistaranemi jöklajarðfræði.
„Það verður rúsínan í pylsuendanum fyrir
mig. Ég er í mínu námi að skoða landform sem
jöklar hafa skilið eftir sig. Jöklar taka allt sem
fyrir þeim verður með sér og skilja þá eftir sig
stóra jökulgarða og mörg önnur landform úr
setlögum, malarása, jökulkembur og urðar-
rendur. Jöklar móta landslagið og búa til alla
dali og firði sem eru hér á landi. Við sjáum líka
fyrir framan jökla sem enn eru virkir hverju
þeir hafa rutt á undan sér.“
Jóhanna hlakkar til að hjóla áfram hring-
inn á Íslandi, en enginn segist hún vera hjóla-
garpur.
„Ég á ekki einu sinni fínt hjól, enda hef ég
verið meira að hlaupa en hjóla, ég er í utanvega-
hlaupum. Ég prófaði hvort ég gæti hjólað átta-
tíu kílómetra, tók nokkra þannig daga áður en
ég lagði af stað og komst að því að ég gat það.
Ég tek þetta hægt og rólega, „slow and steady“,
ég er ekkert að púla á hjólinu eða hamast við að
flýta mér. Ég fékk lánað hjól hjá kærastanum
mínum og það er gott ferðahjól fyrir mig,“ segir
Jóhanna, sem er með þó nokkurn farangur á
hjólinu; tvær hliðartöskur sem eru fimm kíló
hvor, tjaldið sem er um fjögur kíló og litla tösku
framan á, samtals tæp tuttugu kíló.
Engir hjólagarpar í langferð hafa orðið á
vegi Jóhönnu
„Ég mætti einum á hjóli á Öxnadalsheið-
inni sem var á „reiser“, en hann var væntanlega
í dagsferð því ekki var hann með farangur með
sér,“ segir Jóhanna sem stefnir á að loka
hringnum á 17 til 20 dögum. Blaðamaður heyrði
aftur í henni um miðjan dag í gær, föstudag, og
var hún þá stödd á Möðrudalsöræfum og var
komin 634 kílómetra. Hún sagðist hafa hjólað
allan daginn í hífandi roki og grenjandi rign-
ingu.
„Þetta hefur verið mjög langur og erfiður
dagur. Ég er búin að blotna í gegn og skipta
tvisvar um föt, en það er samt allt í lagi með
mig.“
Ein á hjóli hringinn um landið
Hún er meistaranemi í jökla-
jarðfræði á Svalbarða en nýtir
bjarta sumarfríið á Íslandi til
að hjóla hringinn um landið.
Jóhanna Kristín Jóhannsdóttir
segist sjá landið í nýju ljósi við
að fara hægt yfir á hjóli.
Jóhanna Í Víkurskarði á
leið sinni um landið sem
hún sér í nýju ljósi á hjóli.