Morgunblaðið - 18.07.2020, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2020
Stærð: 74,1 fermetrar
Verð: 53,5 milljónir
F A S T E I G N A S A L A
Til sölu er mjög falleg tveggja herbergja íbúð á þriðju
hæð í nýju lyftuhúsi og flottu útsýni á Seltjarnarnesi.
Vandaðar innréttingar sem hannaðar eru af Berglindi
Berndsen og Helgu Sigurbjarnardóttur. Með íbúðinni
fylgir stæði í bílageymslu.
Í stofu og svefnherbergi er aukin lofthæð, 2,85 metrar.
Fullkomið loftræstikerfi er í húsinu.
Hrólfsskálamelur 5 I 170 Seltjarnarnes
Lárus Ómarsson | löggiltur fasteignasali
Hafið samband á nyhofn@nyhofn.is eða í síma 515 4500
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Leiðtogar Evrópusambandsins
komu saman til fundar í Brussel í
gær til þess að ræða hvernig haga
ætti neyðaraðstoð til aðildarríkja
sambandsins vegna kórónuveiru-
faraldursins.
Ríki Evrópu glíma nú við verstu
efnahagskreppu frá stríðslokum og
leita leiðtogarnir nú samkomulags
um hvernig verja eigi um 750 millj-
örðum evra, sem stefnt er að því að
verði í sérstökum neyðarsjóð sam-
bandsins. Þeim fjármunum er ætlað
að aðstoða þau ríki sem verst hafa
orðið úti í faraldrinum.
Ekki eru þó öll ríkin á einu máli
um hvernig best sé að haga neyðar-
aðstoðinni, og hafa Hollendingar og
Austurríkismenn verið á því að sem
minnst af henni ætti að vera í formi
styrkveitinga til ríkja eins og Spánar
og Ítalíu, en fyrrnefndu þjóðirnar
telja að fjármálastjórnun í þeim ríkj-
um hafi verið ábótavant áður en kór-
ónuveirukreppan skall á. Lýsti Mark
Rutte, forsætisráðherra Hollands,
því yfir í vikunni að hann teldi að
megnið af aðstoðinni ætti að vera í
formi lána með ströngum skilyrðum
um að ríkin sem þæðu gerðu bragar-
bót á ríkisfjármálum sínum.
Enn langt á milli ríkjanna
Fundi leiðtoganna verður haldið
áfram í dag, en þeir vildu lítið segja
fyrir um hvort hægt yrði að ná sam-
komulagi nú um helgina. Angela
Merkel Þýskalandskanslari sagði til
að mynda að þó að slíkt samkomulag
væri æskilegt þyrfti einnig að horf-
ast í augu við raunveruleikann.
„Þess vegna á ég von á mjög, mjög
erfiðum viðræðum.“
Emmanuel Macron Frakklands-
forseti sagði að fundurinn væri
„stund sannleikans“ fyrir Evrópu-
sambandið, og að framtíð evrópskrar
samvinnu væri undir.
Aðilar kunnugir viðræðunum
sögðu við AFP-fréttastofuna að þær
hefðu farið vel fram, en enginn gerði
ráð fyrir að neitt yrði samþykkt um
helgina, heldur yrði aftur boðað til
leiðtogafundar síðar í júlí.
„Stund sannleikans“ fyrir ESB?
Leiðtogar aðildarríkjanna hófu tveggja daga viðræður um tilhögun neyðarsjóðs Einkum tekist á
um hvort aðstoðin eigi að vera í formi styrkja eða lána Enn langt á milli ólíkra sjónarmiða ríkjanna
AFP
Afmæliskveðja Angela Merkel Þýskalandskanslari (t.v.), fagnaði 66 ára af-
mæli sínu í gær, og óskuðu aðrir leiðtogar sambandsins henni til hamingju.
Elísabet 2. Bretadrottning aðlaði í gær Tom
Moore, kaftein í breska hernum í seinni heims-
styrjöldinni, en söfnunarátak hans vegna kór-
ónuveirunnar hefur skilað breska heilbrigðis-
kerfinu meira en 32 milljónum sterlingspunda.
Athöfnin fór fram utandyra við Windsor-
kastala og notaði Elísabet sverð sem tilheyrði
föður hennar, Georg 6., en hann var konungur á
árum heimsstyrjaldarinnar.
Ljósmynd/Breska konungsfjölskyldan
„Kafteinn Tom“ aðlaður fyrir söfnunina
Svo gæti farið að talsvert hökt verði
á flutningi öryggisbúnaðar, sem not-
ast er við í baráttunni gegn kórónu-
veirunni, til Bandaríkjanna. Er
ástæðan þar að baki mikil flóð í suð-
urhluta Kína sem orðið gæti til þess
að erfitt verði að nálgast umræddan
búnað. Frá þessu greinir Reuters.
Flóð eru nú á stóru svæði í Kína,
en hamfarirnar eru þær verstu í ára-
tugi. Nú síðast bárust flóðin til borg-
arinnar Wuhan sem stendur nærri
Yangtze-ánni. Yfirborð vatns á
svæðinu hækkar hratt og hafa borg-
aryfirvöld lýst yfir neyðarástandi í
öllum nærliggjandi héröðum. Í
smærri borgum nærri Wuhan fer
fram framleiðsla á búnaði sem nýtt-
ur hefur verið í baráttunni gegn kór-
ónuveirunni.
Hafa framleiðendur í Bandaríkj-
unum nú áhyggjur af því að þetta
kunni að valda seinkun í afhendingu
á öryggisbúnaði. Heildsalar telja að
töfin kunni að verða allt að þrjár vik-
ur taki ástandið ekki að skána. Slíkt
gæti haft slæmar afleiðingar.
Miklar sumarrigningar eru ekki
nýjar af nálinni í Kína, en á nær
hverju ári verða fyrirtæki um heim
allan vör við flóð þar í landi. Hefur
það oft á tíðum tafið afhendingu
búnaðar, en vörur þaðan verða sífellt
mikilvægari í aðfangakeðjum heims-
ins.
Afhendingu búnaðar seinkar
Flóð í Kína setja strik í reikninginn Rauð viðvörun
AFP
Flóð Mikið vatn hefur flætt yfir bakka Yangtze-árinnar nærri Wuhan.
Olaf Scholz, fjár-
málaráðherra
Þýskalands, var
gagnrýndur í gær
eftir að skjöl
komu fram í
Wirecard-málinu
sem sýndu að
hann hefði vitað
af ásökunum
gegn fyrirtækinu
þegar árið 2019.
Wirecard, sem einkum sinnti
greiðslumiðlun á netinu, þurfti að
leita gjaldþrotaskipta í síðasta mán-
uði eftir að í ljós kom að um 1,9 millj-
arðar evra sem áttu að vera á reikn-
ingum félagsins voru horfnir eða
höfðu aldrei verið til.
Scholz sagði fyrr í mánuðinum að
Wirecard-hneykslið væri án hlið-
stæðu og kallaði eftir umbótum á
fjármálaeftirliti Þýskalands.
Í gær kom hins vegar í ljós að
Scholz var tjáð í febrúar 2019 að eft-
irlitið hefði Wirecard til skoðunar
vegna gruns um markaðsmisnotkun.
Bernd Riexinger, leiðtogi vinstri-
flokksins Die Linke, sagði að Scholz
þyrfti að útskýra hvers vegna ráðu-
neyti hans hefði horft framhjá við-
vörunarljósunum í kringum Wire-
card, og tóku Græningjar og aðrir
stjórnarandstöðuflokkar undir þá
gagnrýni.
Vissi um
ásakanir
árið 2019
Scholz gagnrýndur
vegna Wirecard
Olaf
Scholz