Morgunblaðið - 18.07.2020, Síða 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2020
Hægindastóll
model 7910
Leður – Verð frá 439.000,-
NJÓTTU
ÞESS AÐ SLAKA Á
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
„VEISTU, ÞAÐ ER BARA SVO AUÐVELT AÐ
HENGJA SIG Í SMÁATRIÐIN.”
„GUÐJÓN Í FREMSTU RÖÐINNI VILL VITA
HVORT ÞÉR FINNST BETRA, BLÁBER EÐA
ÁBRYSTIR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að njóta hraðans
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
FIMM! … FJÓRIR! … ÞRÍR!
… TVEIR! EINN! …
LOKSINS!!
TAKTU UTAN AF SÁPUNNI
OG FARÐU Í BAÐIÐ! ÞAÐ ER
ALLTOF LANGT SÍÐAN ÞÚ
FÓRST SÍÐAST!
KANNSKI GERI ÉG ÞAÐ, EN
KANNSKI EKKI!
GÓÐI, HÆTTU ÞESSU!
SÁPA RENNUR EKKI ÚT Á
DAGSETNINGU!
gæfu til að upplifa það sem ævintýri
og get áfram stundað áhugamálin
mín í og ró og næði. Ég er enn að
vinna við myndirnar mínar. Þær eru
mín ævintýri og koma mér oft á
óvart. Ég hef haldið tvær einkasýn-
ingar og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga hér á landi og erlendis.“ Frið-
rika er með verk á afmælissýningu
um íslenska grafík sem nú stendur
yfir í Norræna húsinu.
Fjölskylda
Eiginmaður Friðriku var Leifur
Þorsteinsson, f. 27.11. 1933, d. 28.12.
2013, ljósmyndari. Foreldrar hans
voru hjónin Þorsteinn Loftsson, f.
14.11. 1890, d. 26.9. 1961, vélfræð-
ingur og vélfræðiráðunautur, og
Pálína Margrét Vigfúsdóttir, f. 3.4.
1895, d. 25.1. 1973, húsmóðir.
Börn Friðriku og Leifs: 1) Björn
Geir Leifsson, f. 24.11. 1957, skurð-
læknir og yfirlæknir hjá embætti
landlæknis. Giftur Sigrúnu Hjartar-
dóttur, fæðinga- og kvensjúkdóma-
lækni. Börn þeirra eru Hjörtur Geir
Björnsson verkfræðingur, Ólafur
Hrafn Björnsson verkfræðingur og
Friðrika Hanna Björnsdóttir mynd-
listarnemi; 2) Drengur Leifsson, f.
22.11. 1963, dó sama dag; 3) Þor-
steinn Páll Leifsson, f. 13.12. 1967,
húsgagnasmiður og myndlistar-
nemi.
Systkini Friðriku eru Gunnlaugur
Björn Geirsson, f. 30.1. 1940, lækn-
ir, frumumeinafæðingur og fyrrver-
andi prófessor í réttarlæknisfræði,
og Geir Gunnar Geirsson, f. 7.8.
1945, bóndi á Vallá á Kjalarnesi.
Foreldrar Friðriku voru hjónin
Geir Gunnar Gunnlaugsson, f. 28.3.
1902, D 7.1. 1995, bóndi í Eskihlíð í
Reykjavík og Lundi í Kópavogi. og
Hallfríður Kristín Björnsdóttir f.
14.2. 1900, d. 26.5. 1978, húsfreyja
og bústýra í Eskihlíð og Lundi.
Friðrika Gunnlaug
Geirsdóttir
Guðrún Ingibjörg
Magnúsdóttir húsfreyja á
Heiði í Sléttuhlíð
Ólafur Stefánsson
vinnumaður á Frostastöðum í
Blönduhlíð
Ingibjörg Stefanía Ólafsdóttir
húsfreyja á Brekku
Björn Bjarnason
bóndi á Brekku hjá Víðimýri, Skag.
Hallfríður Kristín Björnsdóttir
húsfreyja í Eskihlíð og Lundi
Hallfríður Sölvadóttir
húsfreyja á Löngumýri
Bjarni Jónsson
bóndi á Löngumýri í Vallhólmi, Skag.
Anna Ásmundsdóttir
húsfreyja í Garði
Friðgeir Olgeirsson
bóndi í Garði í Fnjóskadal
Friðrika Þóra Friðgeirsdóttir
húsfreyja í Einarsnesi
Gunnlaugur Einarsson
bóndi í Einarsnesi í Borgarhr., Mýr.
Sigríður Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Vatnsenda
Einar Erlendsson
bóndi á Vatnsenda í Ljósavatnsskarði
Úr frændgarði Friðriku Gunnlaugar Geirsdóttur
Geir Gunnar Gunnlaugsson
bóndi í Eskihlíð í Reykjavík og Lundi
í Kópavogi
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Í skóglendinu vex hún víða.
Veglegt klæði myndum skreytt.
Heilög ritning heimsins lýða.
Heft er saman yfirleitt.
Hér er svar frá gömlum Skag-
firðingi:
Ég vissi ekki að beyki er bók.
Bók er listrænn vefur.
Biblían er bókin klók.
Bókin yndi gefur.
Helgi R. Einarsson á þessa
lausn:
Bók má kalla beykitré.
Bók er vefurinn.
Helga bók um helgar sé
í hillu, bundna inn.
Þannig skýrir Guðmundur gát-
una:
Bók er tré, sem vex allvíða.
Bók er klæði myndum skreytt.
Biblían er bókin lýða.
Bók heft saman yfirleitt.
Þá er limra:
Um bók séra Brjáns í Frétta-
blaðinu las ég þetta:
„Þessi bók hugnast mér,
þar sem í henni er
engum blöðum að fletta.“
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Sólin gyllir láð og lá
laugardagsins morgni á,
til mín skín í gegnum gler,
og gátu laust í koll á mér:
Fordyri þú finna skalt.
Fjarska er í henni kalt.
Veglegt slot mun vera sú.
Varla bein, og gettu nú.
Þessar limrur fylgdu lausn
Helga.
Ólíkar áherslur
Ef leika þær af fingrum fram
að freistingum í Amsterdam
Satan hlær
og hvetur þær,
en himnafaðir segir: „Skamm.“
Framtakssöm eiginkona
Getulausi Geiri
gat af sér börnin fleiri
en flestir hinir,
sem voru hans vinir
og varð af því maður að meiri.
Gamall húsgangur í lokin:
Hætta slætti held ég best,
húma fer um dalinn,
hafs við brún er sólin sest,
sofnaður er smalinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fyrir mörgu
gerir bókin ráð