Morgunblaðið - 18.07.2020, Síða 42

Morgunblaðið - 18.07.2020, Síða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2020 Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR- LAUSU Ertu að byggja eða þarf að endurnýja gamla glerið? Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem reynist vel við íslenskar aðstæður. Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Þessi sýning er núið. Þetta er ekki fortíðin og ekki framtíðin,“ segir læknirinn og listaverkasafnarinn Skúli Gunnlaugsson um sýninguna Tíðaranda í Listasafni Árnesinga í Hveragerði þar sem samtímaverk úr safni hans eru sýnd. Skúli hefur ver- ið afar ötull safnari undanfarna tvo áratugi og nú telur tilkomumikið einkasafn hans yfir 900 verk. Á undan- förnum árum hef- ur Skúli sjálfur sett upp sýningar úr safni sínu víða, meðal annars í ýmsum fyrir- tækjum á höfuð- borgarsvæðinu. „Hjá mér er þetta náttúrulega áhugastarf. Ég samt hef lagt mig eftir því að sýningarnar myndi, hver og ein, fagurfræðilega heild og standist listfræðilega skoðun.“ Hann segir hins vegar horfa öðru vísi við þegar um sýningu í opinberu safni sé að ræða, þá sé nauðsynlegt að fá sýn- ingarstjóra í verkið. Sýningunni Tíð- aranda stýrir Vigdís Rún Jónsdóttir. „Ég vildi bara að Vigdís fengi al- gjörlega lausan tauminn með þetta og að hún gerði það sem hún vildi. Þessi sýning er þannig lagað hennar hugverk og að sumu leyti kom mér á óvart hvað hún valdi, en það er bara gaman.“ Hann segist ánægður með útkomuna. Safneignin hefur tvöfaldast Sýningarstjórinn Vigdís er höfundur og ritstjóri bókar um safn- eign Skúla sem ber vinnuheitið „Listaverkasafnarinn“. „Skúli hafði samband við mig í byrjun árs 2018 til þess að skrifa bók um safneignina. Svo í kjölfarið ákváðum við að það yrði sett upp stór sýning samhliða útgáfu bókarinnar,“ segir Vigdís. Hún segir ekki enn vera komið að þeirri útgáfu en í millitíðinni hafi Inga Jónsdóttir, fyrrverandi safn- stjóri Listasafnsins Árnesinga, haft samband við hana og boðið þeim að setja upp sýningu á safneign Skúla. „Frá því ég kynntist Skúla, fyrir tveimur og hálfu ári, hefur safneignin tvöfaldast, farið úr 450 verkum yfir í 900 verk. Svo við urðum einhvern veginn að afmarka efnið.“ Þá hafi þeim dottið í hug að setja upp sýn- ingu sem ætti í samtali við sýningu sem var sett upp fyrir ári síðan á Listasafninu. Það var sýning á stofn- gjöf Ragnars í Smára, eins þekktasta listaverkasafnara landsins. Þá sýn- ingu segir Vigdís hafa varpað ljósi á tíðaranda samtíma Ragnars. „Þá kom upp sú hugmynd að varpa ljósi á það sem er í gangi núna, samtímalistina úr safneign Skúla,“ segir Vigdís. Ungir en fullskapaðir „Þótt safnið sé stórt þá tekur það ekki nema ákveðinn fjölda verka svo þá ákvað ég að fókusinn yrði settur á yngri kynslóð listamanna og verk sem eru unnin á síðustu tíu árum.“ Fyrir valinu urðu rúmlega 60 verk eftir listamenn sem fæddir á tíma- bilinu frá um 1970 til 1993. Yngsta verkið, skúlptúr eftir Matt- hías R. Sigurðsson, var unnið í febrúar á þessu ári. Það ber titilinn „Tíðarandi“ og dregur sýningin heiti sitt af því. „Mér fannst allt of mikið fyrir þessu haft,“ segir Skúli og hlær þegar hann er spurður hvernig honum hafi þótt takast til hjá sýningarstjóranum. Hann maldar svo í móinn: „Nei, nei, þetta var frábærlega vel gert hjá Vig- dísi.“ Skúli segir flesta þá listamenn sem eiga verk á sýningunni vera milli þrí- tugs og fertugs. „Þetta eru ekki lista- menn sem myndu flokkast sem efni- legir heldur eru þetta fullskapaðir listamenn, sem eru margir hverjir á fyrstu árunum á sínum ferli.“ Auk þess má finna á sýningunni verk vel þekktra listamanna á borð við Ragn- ar Kjartansson, Libiu Castro og Ólaf Ólafsson. „Svo er Snorri Ásmundsson þarna með af því hann er svona „óþekka barnið“ í listinni og fylgir alltaf börnunum. Mér fannst þetta ganga vel upp,“ segir Skúli. „Mitt markmið með þessu er að sýna hvað ég hef verið að gera undan- farið.“ Skúli segir að í safni sínu sé að finna öll tímabil íslenskrar mynd- listar, þó ekki séu þar verk eftir alla íslenska listamenn enda sé það ekki markmiðið. „Þarna eru gömlu meist- ararnir, módernistarnir, nýja mál- verkið, ljósmyndir, skúlptúrar, vídeó og allt.“ Á sýningunni Tíðaranda sé hins vegar einblínt á samtímann en þar sé að finna alls konar miðla. „Þetta eru auðvitað mest málverk en það eru þarna skúlptúrar og vídeó- verk og svo var meira að segja gjörningur á opnuninni,“ segir Skúli. „Ég er stundum spurður að því hverja ég sé að veðja á núna en ég er nú aldrei að veðja á neinn og hef aldrei keypt verk til þess að selja þau strax aftur.“ Skúli segir að hins vegar megi finna á þessari sýningu gott yfirlit yfir þá listamenn af yngri kynslóðinni sem hann haldi að stand- ist tímans tönn. „Svo eru þarna heimsþekktir listamenn líka svo þetta er góð blanda.“ Þegar Vigdís er spurð hvort hún hafi greint einhverja þræði sem ein- kenni verk þessara samtímalista- manna segir hún: „Það var einmitt það sem ég var að reyna að skoða með uppsetningunni á þessari sýn- ingu, hvort mætti finna eitthvað sem einkennir okkar tíðaranda.“ Hún segir að greina megi ákveðinn sam- hljóm í verkum listamannanna, þeir séu margir að vinna með fortíðina, bæði hvað varðar stíla og viðfangs- efni. Frásagnir og geómetría Sýninguna segir hún skiptast í tvennt. Í sal eitt sé að finna frá- sagnarkennd verk, þar sem verið sé að vinna með þjóðsagnararfinn, tungumálið, myndmál Forn-Egypta og vefnað. Í sal þrjú sé geómetrían hins vegar einkennandi. Þetta lá ekki fyrir þegar verkin voru valin en þegar Vigdís fór að raða þeim niður blöstu þessir þræðir við. „Það virðist sem annar helmingur samtímalista- manna sé að vinna með þessi geó- metrísku form en hinn sé í frá- sagnarkenndari list. Af einhverjum ástæðum virðist geómetrían vera að koma upp á yfirborðið aftur sem hef- ur ekki verið í langan tíma.“ Áhugasömum gefst tækifæri á að heyra Vigdísi kafa dýpra í þessar vangaveltur um hvað einkenni ís- lenska samtímalist á morgun, sunnu- dag, kl. 14. Þá mun sýningarstjórinn leiða gesti um safnið og fræða þá um sýninguna. „Þar ætla ég að reyna að útskýra þetta betur með vísun í ákveðin hugtök sem ég er að vinna út frá.“ Þrátt fyrir að safn Skúla sé orðið gríðarlega stórt er hann hvergi nærri hættur að festa kaup á verk- um. „Ég keypti síðast verk í fyrra- dag.“ Þá festi hann kaup á verki eftir Jóhann Briem frá árinu 1934. „Núna er ég bara að fylla upp í til að búa til þetta fullkomna safn sem auðvitað er ekki til,“ segir hann og hlær. „Þetta er eilífðarverkefni. Það vantar alltaf eitthvað en þetta er samt engin árátta. Það líða stundum tveir eða þrír mánuðir þar sem ég nenni ekki að pæla í þessu. Síðan bara fer maður í gang aftur. Ég vakna ekki á morgnana hvern ein- asta dag og segi: „Nú verð ég að kaupa eitthvað“. Maður er alltaf að gera meiri kröfur,“ segir safnarinn. Skúli segir fólk eiga erfitt með að átta sig á hvernig hann geti bæði haft áhuga á að kaupa „speisað“ samtímaverk, til dæmis eftir Elínu Hansdóttur, og verk eftir mynd- listarmenn á borð við Ásgrím Jóns- son. „Það er það sem er svo gaman við þetta. Mér finnst gaman að tengja þetta nýja við þetta gamla. Við megum aldrei gera lítið úr sög- unni. Þetta er saga. Þetta er saga dagsins í dag í Hveragerði.“ Skúli bjó í Bandaríkjunum í tutt- ugu ár og hóf að safna listaverkum meðan hann dvaldi þar. Í upphafi festi hann líka kaup á erlendri list en segist hafa orðið að takmarka sig einhvers staðar. „Ég hef einblínt á íslenska list og erlenda listamenn sem hafa unnið á Íslandi. Þeim fer sífelt fjölgandi. Íslensk myndlist er að verða miklu alþjóðlegri. Dieter Roth, Kees Visser og Barbara Árna- son eru bara Íslendingar í mínum huga. Þetta er hrærigrautur að verða.“ Myndlist Fjölmörg samtímaverk úr safni Skúla eru til sýnis á Listasafni Árnesinga. Hér má til að mynda sjá verk eftir Þórdísi Aðalsteinsdóttur, Leif Ými Eyjólfsson, Guðmund Thoroddsen og Matthías R. Sigurðsson. Morgunblaðið/Einar Falur Safnarinn Skúli Gunnlaugsson læknir fyrir framan verk úr safneign sinni á sýningu á þeim í skrifstofuhúsnæði í Reykjavík í fyrra. Varpa ljósi á tíðarandann  Sýningin Tíðarandi í Listasafni Árnesinga  Yfir 60 samtímaverk eftir íslenska myndlistarmenn úr safni Skúla Gunnlaugssonar  Sýningarstjórinn Vigdís Rún Jónsdóttir með leiðsögn á sunnudag Vigdís Rún Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.