Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020 Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is HAUSTPERLUR Vefuppboð nr. 496 Karl Kvaran vefuppboð hefst laugardag 22. ágúst - 2. september Karólína Lárusdóttir Forsýning á verkunum hjá Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Sóttvarnalæknir mælti gegn því í minnisblaði sem hann lagði fram að 14 daga sóttkví væri valkostur við komuna til landsins en að hans sögn gæti það verið erfitt lagalega séð að bjóða fólki ekki upp á val um tveggja vikna sóttkví. Reglur um sýnatöku og sóttkví á landamærum verða endurskoðaðar eftir 1-2 vikur en Þórólfur býst við því að sambæri- legar reglur muni gilda þar næstu mánuði. „Ég lagði það til að fenginni reynslu að við myndum reyna að girða fyrir þann leka að fólk væri að velja sóttkví og myndi svo ekki standa við það. Við erum með dæmi um fólk sem gerði það og jafnvel fólk sem smitaði út frá sér. Ég vildi reyna að girða fyrir þann möguleika en stjórnvöld keyptu það ekki,“ seg- ir Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir um þá ákvörðun heilbrigð- isráðherra að fólk sem hingað komi til lands geti valið hvort það fari í tvær sýnatökur með nokkurra daga sóttkví á milli eða 14 daga sóttkví án sýnatöku. Herða eftirlitið Er þá ógirt fyrir þann möguleika að fólk sem segist ætla í 14 daga sóttkví beri smit inn í landið? „Það eru náttúrulega ekki margir sem velja þetta. Það þarf þá bara að finna út hvernig sé best að herða eftirlitið með þeim sem velja sótt- kvína svo það sé öruggt að fólk sé ekki bara að velja sóttkví til þess að sleppa við skimun,“ segir Þórólfur. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvernig hertu eftirliti verði háttað en reglur um tvöfalda sýna- töku þeirra sem hingað koma eða 14 daga sóttkví tóku gildi á miðnætti í gær. „Ég er að ræða við almannavarnir um það hvernig við getum hagað [hertu eftirliti].“ Þórólfur segir það ekkert stórmál að heilbrigðisráðherra hafi ákveðið að fara þvert á það sem Þórólfur mælti með. „Ráðherra og ríkisstjórn þurfa náttúrulega bara að vega og meta þær tillögur sem ég kem með. Ég legg bara rökin á borðið og mér finnst ekkert óeðlilegt að þau vegi það og meti út frá sínum sjónar- hornum og sjái það kannski ein- hvern veginn öðruvísi. Ég er ekkert að kippa mér upp við það.“ Þórólfur hefur ekki óskað eftir endurskoðun á ákvörðun heilbrigðis- ráðherra. „Eins og ég sagði í minnisblaðinu þá getur vel verið að það séu ein- hverjir lagalegir annmarkar á því að neita fólki um þetta [val á milli sýna- töku og sóttkvíarinnar], bæði sam- kvæmt alþjóðalögum og alþjóða- reglugerðum og svo framvegis. Það er náttúrulega stjórnvalda að vega og meta þetta út frá því. Það gæti orðið erfitt lögformlega séð að gera það og þá bara er það þannig.“ Ekki náðist í Svandísi Svav- arsdóttur heilbrigðisráðherra til að spyrja hana út í þessa ákvörðun í gær. Þrjú innanlandssmit Þrjú innanlandssmit greindust á þriðjudag og fimm við landamærin, þar af tvö sem eru virk en mót- efnamælingar er beðið í hinum þremur landamærasmitunum. Spurður hvernig Ísland standi í faraldrinum segir Þórólfur: „Mér finnst þetta bara líta nokkuð vel út [...]. Þetta er allt sama veiran sem við erum að fást við. Við erum að sjá að flestir af þeim sem eru að greinast séu í sóttkví og það bendir til þess að við séum að ná utan um þetta svo ég er bara nokkuð bjart- sýnn á það.“ Flestir sem greinst hafa smitaðir að undanförnu hafa verið í sóttkví og bendir það til þess að Íslendingar séu að ná tökum á faraldrinum, að sögn Þórólfs sem ætlar sér áfram að vera í fararbroddi hvað varðar til- lögur um aðgerðir vegna kórónuveir- unnar þótt hann telji það hlutverk stjórnvalda að vega og meta heildar- hagsmuni innanlands. „Stjórnvöld keyptu ekki“ tillögu Þórólfs  Mögulega lagalegir annmarkar á því að skylda alla í sýnatöku Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Sýnataka Flestir sem greinst hafa smitaðir að undanförnu hafa verið í sóttkví. Það bendir til þess að Íslendingar séu að ná tökum á faraldrinum. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Farið var í mótvægisaðgerðir gagn- vart rekstraraðilum verslana í Leifs- stöð. Isavia stóð fyrir aðgerðunum, en með þeim var verið að bregðast við áhrifum faraldurs kórónuveiru á starfsemina. Þetta segir Guðni Sig- urðsson, talsmaður Isavia, í samtali við Morgunblaðið. „Það eru í gildi aðgerðir sem settar voru til að koma til móts við rekstr- araðila í flugstöðinni. Í því felst að leigan hefur verið lækkuð, en þess ut- an ákveða þeir nú hvenær þeir opna og loka. Afgreiðslutíminn er því frjáls en áður hafði þeim verið skylt að hafa opið í ákveðinn tíma,“ segir Guðni. Gilda framangreindar aðgerðir til 1. október nk. Ljóst er að það mun reynast mörgum verslunum á svæð- inu þrautin þyngri að komast í gegn- um ástandið. Þegar faraldurinn stóð sem hæst fyrr á árinu var nokkrum verslunum lokað. „Það voru einhverj- ir sem lokuðu tímabundið en opnuðu aftur þegar flug jókst á nýjan leik. Hins vegar eru þessir aðilar með mis- lengi opið,“ segir Guðni og bætir við að ekki hafi verið tekin afstaða til nýj- ustu takmarkana. Engar breytingar í farvatninu Frá og með gærdeginum hefur öll- um komufarþegum verið gert að sæta fjögurra til sex daga sóttkví auk tveggja sýnataka eða sleppa sýna- töku og sitja í 14 daga sóttkví. Af þeim sökum má ráðgera að farþegum fækki næstu vikur. „Við erum að fylgjast með því hvernig umferðin verður á vellinum og hvernig hún kemur til með að þróast. Það eru engar breytingar á rekstraraðilum eins og staðan er núna. Áður en ákveðið verður hvort farið verði í frekari mótvægisaðgerðir viljum við láta fimm til sex daga líða með nýju fyrirkomulagi,“ segir Guðni. Reyna að koma til móts við verslanir  Rekstraraðilar í Leifsstöð stýra nú afgreiðslutímanum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leifsstöð Engar breytingar verða á rekstraraðilum í flugstöðinni. Aron Þórður Albertsson Þorgerður Anna Gunnarsdóttir „Algjör lokun landsins var auðvitað mikil vonbrigði. Að fá enga ferða- menn til landsins næstu vikur og mánuði er gríðarlegt högg,“ segir Haraldur Teitsson, framkvæmda- stjóri hópferðaþjónustu Teits Jón- assonar. Nýjar reglur tóku gildi á landa- mærunum á miðnætti í nótt og þurfa nú allir þeir sem koma til landsins að sæta fjögurra til sex daga sóttkví. Þá þurfa sömu einstaklingar að fara í sýnatöku við komuna og að sóttkví lokinni. Að sögn Haraldar verða næstu mánuðir erfiðir. Tekjur munu skreppa saman á meðan fastur kostnaður helst að mestu óbreyttur. „Við vorum búin að flytja inn nokkur þúsund ferðamenn hingað til lands- ins. Enginn af þeim hafði reynst smitaður þannig að lokunin er gríð- arleg vonbrigði. Það var búið að taka tíma að byggja upp traust. Júní og júlí voru rólegir en þetta var komið á skrið í ágúst. September leit síðan vel út. Ég skil alveg aðgerðirnar en þetta er mjög hart,“ segir Haraldur og bætir við að góð skuldastaða fyrirtækisins komi sér vel. „Við er- um gamalgróið fyrirtæki sem hefur ekki verið í skuldasöfnun. Á sama tíma eru önnur félög í eigu sjóða sem dæla inn peningum og það mun reynast erfið samkeppni. Við gerum einhverjar breytingar og náum að halda megninu af fólkinu, en maður er auðvitað uggandi.“ „Nú er árið farið“ „Þetta er svolítið sorglegt því hlutirnir hjá ansi mörgum fyr- irtækjum voru farnir að þróast á já- kvæðan hátt og svo var því kippt í burtu með engum fyrirvara. Það sem er kannski sorglegast er það að það hafi ekki átt sér stað neitt sam- tal,“ segir Ásberg Jónsson, stofn- andi og framkvæmdastjóri Nordic Visitor. Aðspurður segir hann að árið sé að mestu farið. Fólk muni ekki leggja á sig sóttkví til að heimsækja landið. „Þetta er eitthvað sem ekki er hægt að vinna með. Fólk leggur ýmislegt á sig í dag til að ferðast, ef það er öruggt þá er það til í að leggja ýmislegt á sig, en fimm dagar lokað inni á herbergi, það er of mikið. Nú er árið farið, alla vega, og það er bara rosalega dökkt yfir greininni,“ segir Ásberg. Nordic Visitor sagði öllu starfs- fólki sínu upp í sumar og rennur uppsagnarfrestur út í september. Endurráðningum verður haldið í al- gjöru lágmarki. Morgunblaðið/Eggert Ferðamenn Ef fram heldur sem horfir má telja líklegt að fáir erlendir ferðamenn komi hingað til lands. Útlitið í ferðaþjónustu er svart. Eiga ekki von á neinu ferðafólki  Endurráðningum haldið í lágmarki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.