Morgunblaðið - 20.08.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
Talsverðar líkur eru á að meira
hrynji í Ketubjörgum á norðan-
verðum Skaga. Mikil fylla hrundi úr
björgunum 2. nóvember á sl. ári, en
þá fór niður um 65 metra hár klettur
sem klofið hafði sig frá föstu landi.
Efnið vó þúsundir tonna og myndar
nú háan bing í fjörunni sem að
nokkru leyti styður við hamrabergið
háa, segir Ingólfur Sveinsson á Lág-
múla á Skaga. Af Skagaheiði rennur
lækur fram til sjávar og liggur á um
300 metra kafla samsíða syðsta hluta
Ketubjarga, þar sem heitir Innri-
Bjargavík. Í móberginu þar er jarð-
vegurinn gljúpur og vatnsgleypinn.
Þarna fer vatnið komið ofan í
sprungur sem víkka út og losa um
þegar frystir og síðan þiðnar á víxl.
Sú framvinda er talin hafa orsakað
hrunið síðasta haust.
„Þar sem lækurinn rennur við
bjargbrúnina og fer í sjó fram í
háum fossi kemur austanátt af hafi.
Vindurinn feykir vatni upp á land og
myndar í frosti klakabunka meðal
annars á girðingum. Haldi áfram að
hrynja úr bjarginu gæti farvegur
lækjarins færst til og þá þarf að
færa veginn þarna vestar og upp á
melana ofar í landinu. Bæði er það
vegna slysahættu og eins sakir þess
hve líklegt er að áfram hrynji úr
björgunum, hvenær sem það gerist,“
segir Ingólfur.
Ketubjörg eru um 40 km norðan
við Sauðárkrók og liggja að vest-
anverðum Skagafirði. Staðurinn er
afskekktur, aðeins örfáir bæir á
þessum slóðum í byggð sem er á fall-
andi fæti. Umferð ferðafólks um
svæðið á sumrin er þó talsverð.
Ketubjörgin
molna áfram
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skagi Kletturinn sem hrundi úr Ketubjörgum í fyrra var í vikinu fyrir miðri
mynd. Vatn rennur ofan í móberg í klettunum þarna og því getur allt gerst.
86
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Nýjar haustvörur streyma inn
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
SÍÐASTA ÚTSÖLUVIKA –
VERÐHRUN
60-70%
AFSLÁTTUR
ÝMSIR GJAFABÓNUSAR
HEILSÁRSÚLPUR, KÁPUR,
JAKKAR, KJÓLAR OG FL. OG FL.
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Aðeins 5 verð
1.000.-
2.000.-
3.000.-
4.000.-
5.000.-
Algjört
verðhrun
Síðustu dagar útsölunnarAðalsafnaðarfundur
Garðasóknar 2020
Aðalsafnaðarfundur Garðasóknar
verður haldinn í safnaðarheimili Vídalínskirkju,
fimmtudaginn 27. ágúst kl. 17.30
Á dagskrá eru venjuleg aðalsafnaðarfundarstörf.
Safnaðarmeðlimir eru hvattir til að sækja fundinn.
Farið verður eftir gildandi fjöldatakmörkunum vegna Covid-19
og því mega að hámarki 100 fullorðnir einstaklingar sitja
fundinn (börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin).
Fundarfólk er hvatt til að virða 2 metra nálægðartakmörkun
milli þeirra sem ekki deila heimili.
Sóknarnefnd Garðasóknar.