Morgunblaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
Ólafur Helgi Kjartansson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, tekur við
starfi sérfræðings í málefnum landa-
mæra í dómsmálaráðuneytinu um
næstu mánaðamót. Eins og fram hef-
ur komið í fréttum hefur ólga verið
innan lögreglunnar á Suðurnesjum
undanfarið og kvartanir borist
dómsmálaráðuneytinu frá starfs-
mönnum embættisins.
Í frétt dómsmálaráðuneytisins í
gær segir að flutningurinn gefi ráðu-
neytinu og lögreglunni færi á að
nýta sérþekkingu Ólafs Helga og
reynslu á sviði landamæravörslu
næstu árin, sérstaklega þegar kemur
að Schengen-samstarfinu og þeirri
margvíslegu samvinnu Schengen-
ríkjanna á sviði landamæragæslu
sem hefur verið byggð upp innan
Frontex-landamærastofnunarinnar.
,,Þá hefur dómsmálaráðherra
ákveðið að Grímur Hergeirsson,
staðgengill lögreglustjórans á Suð-
urlandi, verði tímabundið settur í
embætti lögreglustjóra á Suður-
nesjum, frá 1. september til 1. nóv-
ember nk. Margrét Kristín Páls-
dóttir, lögfræðingur í dómsmála-
ráðuneytinu, mun gegna stöðu
aðstoðarlögreglustjóra hjá embætt-
inu á sama tímabili. Embættið verður
auglýst laust til umsóknar við fyrstu
hentugleika.“
Færður til
dómsmála-
ráðuneytis
Grímur settur í
starf lögreglustjóra
Tímamót Ólafur Helgi hefur verið
lögreglustjóri á Suðurnesjum í sex ár.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Salan í netverslun Nettó hefur
margfaldast undanfarnar vikur.
Veltan er nú um þrisvar til fjórum
sinnum meiri en í sumar. Þetta
segir Gunnar Egill Sigurðsson,
framkvæmdastjóri verslunarsviðs
Samkaupa.
Segir hann netverslun hafa
dregist saman í sumar eftir mik-
inn sölukipp við upphaf faraldurs
kórónuveiru. „Þegar við fórum
inn í sumarið og létt hafði verið á
takmörkunum þá fór netið í eðli-
legri farveg. Það er mjög eðlilegt
og í raun eitthvað sem við áttum
von á,“ segir Gunnar og bætir við
að netsalan hafi tekið við sér að
nýju strax eftir verslunarmanna-
helgi. Svipar þróuninni eftir þann
tíma til söluaukningarinnar sem
raungerðist eftir fyrri bylgju far-
aldursins. „Fólk fór aftur í rútínu
eftir verslunarmannahelgi og net-
ið fór á flug um svipað leyti. Þeg-
ar hert var á takmörkunum fund-
um við strax daginn eftir að
umferðin rétt um tvöfaldaðist.
Frá þeim tíma hefur salan verið
nokkuð stöðug,“ segir Gunnar.
Aðspurður segir hann að mörg
hundruð manns nýti netverslun
fyrirtækisins á degi hverjum. Seg-
ir Gunnar það benda til þess að
kauphegðun einstaklinga sé
breytt. „Það er búin að eiga sér
stað breyting í kauphegðun til
framtíðar. Það er kominn góður
kúnnahópur sem heldur áfram að
vaxa.“
Netverslun margfaldast
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nettó Fyrirtækið hefur náð mjög góðum árangri í netsölu hér á landi.
Sala í netverslun Nettó hefur aukist mikið síðustu vikur
Heilbrigðisráðherra í samvinnu við
forsætis- og dómsmálaráðuneytið
efnir til samráðsfundar í formi
vinnustofu í dag um áframhaldandi
aðgerðir vegna Covid-19 til lengri
tíma litið. Samráðsfundur fer fram á
Hótel Hilton Nordica frá kl. 9 til 13.
„Streymt verður beint frá fund-
inum sem markar upphaf samráðs-
ins en afraksturinn verður birtur í
samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið
er að stilla saman strengi og móta
áherslur og leiðarljós sem geti nýst í
áframhaldandi vinnu við mótun að-
gerða vegna Covid-19 á næstu miss-
erum,“ segir í tilkynningu.
Streymt verður frá fundinum m.a.
á mbl.is og á vef stjórnarráðsins.
Samráðsfund-
ur um líf með
veirunni í dag