Morgunblaðið - 20.08.2020, Page 54
FÓTBOLTINN
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Topplið Breiðabliks er áfram al-
gjörlega óstöðvandi á Íslandsmóti
kvenna í knattspyrnu en liðið vann
í gærkvöldi 7:0-sigur annan leikinn
í röð. Fórnarlömbin að þessu sinni
voru norðankonur í Þór/KA í frest-
uðum leik úr fimmtu umferðinni en
þær komu engum vörnum við gegn
Blikum á Kópavogsvelli. Breiðablik
er á toppnum með fullt hús stiga,
27 talsins, og markatöluna 42:0 eft-
ir níu leiki.
Sonný Lára Þráinsdóttir, mark-
vörður Blika, hefur nú leikið níu
deildarleiki í röð án þess að fá á sig
mark sem er hreinlega ótrúlegt.
KR-ingar héldu hreinu í fyrstu átta
leikjum sínum sumarið 1997 og er
þetta því besti varnarárangur liðs í
upphafi móts í 23 ár.
„Það er erfitt að sjá eitthvað lið
stoppa Breiðablik. Liðið hefur
skorað 42 mörk í níu leikjum og
ekki fengið eitt einasta mark á sig.
Yfirburðir Breiðabliks hafa verið
það miklir í sumar að það ætti í
raun bara að senda liðið í sænsku
úrvalsdeildina þar sem liðið virðist
ekki eiga neitt erindi í efstu deild
Íslands eins og staðan er í dag,“
skrifaði Bjarni Helgason m.a. um
leikinn á mbl.is. Blikar eru með
markatöluna 14:0 eftir að tímabilið
hófst að nýju í ágúst og virðist bik-
arinn á leiðinni í Kópavoginn. Þór/
KA er með 11 stig í fimmta sætinu.
ÍBV án taps í fimm leikjum
Fylkir og ÍBV gerðu stórmeist-
arajafntefli í baráttunni um þriðja
sætið í heldur daufum leik á
Würth-vellinum í Árbænum, 1:1.
Fylkir er því áfram í þriðja sætinu
með 16 stig en Eyjakonur sæti
neðar með 13 stig. Þær hafa nú
ekki tapað í síðustu fjórum deild-
arleikjum sínum eftir að hafa tap-
að fjórum af fyrstu fimm.
Markverðir beggja liða spiluðu vel
og fylgdi Cecilía Rán Rúnarsdóttir
ágætlega eftir stórleik sínum gegn
Selfossi síðast. Þá var Olga Sev-
cova, markaskorari Eyjakvenna,
drjúg.
„Þegar uppi er staðið er jafntefli
líklega sanngjörn úrslit. Fylkir var
töluvert meira með boltann en gekk
ekki of vel að opna fimm manna
vörn ÍBV. Fylkiskonur áttu hins
vegar mörg markskot fyrir utan teig
sem annaðhvort hittu ekki á markið
eða strönduðu á hinni efnilegu Auði
Sveinbjarnardóttur Scheving mark-
verði ÍBV. Markvörður Fylkis, Ce-
cilía Rán átti einnig fínan leik enda
ekki síður efnileg. Þá voru skyndi-
sóknir ÍBV hættulegar. Þar var
Olga Sevcova alltaf að og síógnandi
enda fljót og kraftmikil,“ skrifaði
Kristján Jónsson m.a. um leikinn á
mbl.is.
Morgunblaðið/Eggert
Meistaraefni Norðankonan Gabriela Guillén sækir að Andreu Rán Hauksdóttur á Kópavogsvellinum í gærkvöldi.
Blikakonur allt of góðar
Breiðablik er með fimm stiga forystu á toppnum Meistaraefnin hafa skor-
að 42 mörk og ekki fengið á sig eitt einasta Jafnt í slagnum um þriðja sætið
Frumraun Guðrún Karítas Sigurðardóttir í sínum fyrsta leik fyrir Fylki sækir að Eyjakonunni Kristjönu R. Sigurz.
AFP
Erfitt Lakers tapaði fyrsta leik í
seríunni. Vinna þarf alls fjóra.
LeBron James og liðsfélagar hans í
Los Angeles Lakers töpuðu fyrir
Portland Trail Blazers í fyrsta leik
liðanna í 1. umferð úrslitakeppni
NBA-deildarinnar í körfuknattleik í
gær.
Damian Lillard fór á kostum í liði
Portland sem vann 100:93-sigur en
hann skoraði 34 stig. LeBron var
stigahæstur hjá Lakers með 23 stig.
James Harden var svo drjúgur í
123:108-sigri Houston gegn Okla-
homa City Thunder, skoraði 37 stig
fyrir Houston og tók 11 fráköst.
Lakers tapaði
fyrsta leik
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Efstir Keflvíkingar eru á toppi
fyrstu deildarinnar í fótbolta.
Topplið Keflavíkur vann 6:1-
stórsigur gegn Víkingum úr Ólafsvík
á heimavelli í Lengjudeild karla í
knattspyrnu í gærkvöldi. ÍBV fór
upp í annað sætið með því að leggja
Aftureldingu að velli í Vest-
mannaeyjum, 1:0, og Framarar eru
komnir í þriðja sætið eftir 3:0-sigur
á Magna í Safamýrinni. Leiknir úr
Reykjavík er aftur á móti dottið nið-
ur í þriðja sæti eftir 1:0-tap gegn
Vestra á Ísafirði. Þá vann Þór 5:1-
sigur á Leikni F. og Grindavík lagði
Þróttara 4:2 í Laugardalnum.
Keflavík
áfram efst
54 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020
Pepsi Max-deild kvenna
Fylkir – ÍBV.............................................. 1:1
Breiðablik – Þór/KA................................. 7:0
Staðan:
Breiðablik 9 9 0 0 42:0 27
Valur 9 7 1 1 22:8 22
Fylkir 9 4 4 1 13:12 16
ÍBV 9 4 1 4 12:18 13
Þór/KA 9 3 2 4 14:21 11
Selfoss 8 3 1 4 10:9 10
Stjarnan 9 2 2 5 15:22 8
Þróttur R. 9 1 4 4 14:22 7
KR 8 2 1 5 9:18 7
FH 9 1 0 8 3:24 3
Lengjudeild karla
Keflavík – Víkingur Ó. ............................ 6:1
Þór – Leiknir F ........................................ 5:1
Fram – Magni ........................................... 3:0
Vestri – Leiknir R. ................................... 1:0
ÍBV – Afturelding .................................... 1:0
Þróttur R. – Grindavík............................. 2:4
Staðan:
Keflavík 10 7 2 1 35:12 23
ÍBV 10 6 4 0 23:12 22
Leiknir R. 10 6 2 2 25:15 20
Fram 9 5 3 1 23:15 18
Þór 10 5 2 3 21:17 17
Vestri 10 4 3 3 10:12 15
Grindavík 10 3 5 2 23:21 14
Afturelding 10 3 2 5 20:15 11
Leiknir F. 10 3 1 6 11:23 10
Víkingur Ó. 10 3 0 7 11:25 9
Þróttur R. 10 1 1 8 7:22 4
Magni 9 0 1 8 7:27 1
2. deild karla
Njarðvík – Selfoss .................................... 1:3
Haukar – Völsungur................................. 2:1
Dalvík/Reynir – Kórdrengir.................... 1:2
Kári – Þróttur V. ...................................... 1:2
Meistaradeild Evrópu
Undanúrslit:
Lyon – Bayern München ......................... 0:3
Bayern fer áfram og mætir París St.
Germain í úrslitaleiknum.
1. umferð, 2020-2021:
Ararat – Omonia....................................... 0:1
Molde – KuPS........................................... 5:0
Flora – Süduva ......................................... 1:1
Süduva áfram eftir vítakeppni.
Ferencvaros – Djurgården...................... 2:0
Maccabi Tel Aviv – Riga .......................... 2:0
Dinamo Tbilisi – Tirana ........................... 0:2
Celje – Dundalk........................................ 3:0
Sheriff – Fola ............................................ 2:0
Connah́s Quay – Sarajevo........................ 0:2
Buducnost Podgorica – Ludogorets....... 1:3
Rússland
Zenit Pétursborg – CSKA Moskva ........ 2:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA og Arnór Sigurðsson
kom inn á eftir 81 mínútu.
Danmörk
Nordsjælland – Brøndby ........................ 1:1
Amanda Andradóttir kom inn á eftir 76
mínútur hjá Nordsjælland.
KNATTSPYRNA
NBA-deildin
Úrslitakeppni, 1. umferð:
LA Lakers – Portland ....................... 93:100
Staðan er 1:0 fyrir Portland
Houston – Oklahoma ........................123:108
Staðan er 1:0 fyrir Houston.
Toronto – Brooklyn ............................ 104:99
Staðan er 2:0 fyrir Toronto.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Pepsi Max-deild karla:
Extra-völlurinn: Fjölnir – Víkingur R. ....18
Pepsi Max-deild kvenna:
Jáverks-völlurinn: Selfoss – KR ...............18
Í KVÖLD!
BREIÐABLIK – ÞÓR/KA 7:0
1:0 Kristín Dís Árnadóttir 4.
2:0 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 15.
3:0 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 38.
4:0 Agla María Albertsdóttir 52.
5:0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir 55.
6:0 Sveindís Jane Jónsdóttir 74.
7:0 Rakel Hönnudóttir 79.
MM
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki)
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
(Breiðabliki)
M
Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki)
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Breiða-
bliki)
Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðabliki)
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
(Breiðabliki)
Gabriela Guillén (Þór/KA)
Rautt spjald: Engin.
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7.
Áhorfendur: Ekki heimilt.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og greinar um leikina – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.
FYLKIR – ÍBV 1:1
0:1 Olga Sevcova 6.
1:1 Þórdís Elva Ágústsdóttir 59.
M
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (Fylki)
Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylki)
Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki)
Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylki)
Auður S. Scheving (ÍBV)
Kristjana R. Sigurz (ÍBV)
Karlina Miksone (ÍBV)
Olga Sevcova (ÍBV)
Rautt spjald: Engin.
Dómari: Eiður Ottó Bjarnason – 5.
Áhorfendur: Ekki heimilt.
Níu launahæstu
íþróttakonur
heims spila tenn-
is samkvæmt
samantekt For-
bes sem tók sam-
an tekjur íþrótta-
kvennanna yfir
tólf mánaða
tímabil, frá 1.
júní 2019 til 1.
júní í sumar.
Japanska tenniskonan Naomi
Osaka er þar efst á blaði en árstekj-
ur hennar síðasta árið voru rúmir
fimm milljarðar.
Hæstu launin
síðasta árið
voru í tennis
Naomi
Osaka