Morgunblaðið - 20.08.2020, Page 57

Morgunblaðið - 20.08.2020, Page 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is KAT I E HOLMES JOSH LUCAS Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe í aðalhlutverki. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI EIN ALBESTA GRÍN-TEIKNIMYND SEM KOMIÐ HEFUR! SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI K O M N A R Í B Í Ó : Harry Potter and the Sorcere’s Stone Harry Potter and the Chamber of Secrets Harry Potter and the Prisoner of Azkaban K O M A Í B Í Ó 1 8 . Á G Ú S T : Harry Potter and the Goblet of Fire Harry Potter and the Order of Phoenix Harry Potter and the Half-Blood Prince K O M A Í B Í Ó 2 1 . Á G Ú S T : Harry Potter and the Deathly Hallows: Part 1 og 2 UPPÁHALDS GALDRASTRÁKUR OKKAR ALLRA AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Áfram (ísl. tal) * Tröll 2 (ísl. tal) * Hvolpasveitin (ísl. tal) * My Spy * The Postcard Killings * The Outpost * The Matrix * Mad Max : Fury Road AF KVIKMYNDUM Brynja Hjálmsdóttir hjalmsdottir@gmail.com Kvikmyndahús um allanheim þurftu að loka dyrumsínum í vor vegna alheims- faraldurs Covid-19. Mörgum kvik- myndahátíðum var einnig aflýst, þeirra á meðal stærstu kvik- myndahátíð heims, Kvikmyndahá- tíðinni í Cannes. Nú hafa mörg bíóhús verið opnuð á ný, flest bíó á Íslandi eru t.d. opin þrátt fyrir fjöldatakmarkanir og aðrar sótt- varnaraðgerðir. Hins vegar er ekki úr miklu að moða fyrir þau, hvorki hér heima né annars staðar þar sem frumsýningum á myndum hefur verið frestað og óvenjulega fáar nýjar kvikmyndir á dagskrá. Af þessu tilhefni er viðeigandi að taka saman stuttan lista yfir kvikmyndir sem hefði átt að frum- sýna fyrr í ár en áhorfendur þurfa enn að bíða eftir að fá að njóta. Candyman Í sumar stóð til að frumsýna framhaldsmynd af sögufrægu költ- hrollvekjunni Candyman, sem kom út árið 1992. Upprunalega myndin fjallar um fræðikonuna Helen Lyle, sem rannsakar þjóðsöguna um hinn svokallaða Candyman. Samkvæmt þjóðsögunni birtist Candyman og murkar lífið úr þeim sem segja nafn hans fimm sinnum í spegil. Eftir því sem á líður sekkur Helen dýpra og dýpra ofan í myrkraveröld Candy- mans, sem reynist enn þá skelfi- legri en þjóðsögurnar sögðu til um. Myndin á sér stað í suður- hluta Chicago-borgar, í fátækra- hverfunum þar sem stór hluti íbúa er svartur og þar með fléttast kynþáttapólitík inn í sögunna. Þessi nýja framhaldsmynd er önnur mynd bandaríska leikstjór- ans Nia Dacosta, en hún sendi myndina Little Woods frá sér í fyrra. Þótt það hafi ekki farið mikið fyrir þeirri mynd hlaut hún mjög góðar viðtökur frá gagnrýn- endum jafnt sem áhorfendum. Candyman er framleidd af Jordan Peele, leikstjóra Get Out og Us, og ekki ólíklegt að myndin sverji sig í ætt við þá hrollvekjunýbylgju sem hann hefur hrundið af stað í Bandaríkjunum. Núna stendur til að frumsýna myndina í október og nú verðum við bara að bíða og sjá hvort það gangi eftir. The French Dispatch The French Dispatch eftir Wes Anderson stóð til að frumsýna á kvikmyndahátíðinni á Cannes í vor, en það varð ekkert af því þar sem hátíðinni var aflýst. Myndinni hefur verið lýst sem ástaróði til blaðamannastéttar- innar, en hún fjallar um blaða- menn á skálduðu amerísku tíma- riti. Þetta er einhverskonar mósaíkverk sem segir nokkrar ólíkar sögur af fólkinu sem starfar við blaðið og ævintýrum þess. Wes Anderson, sem er þekktur fyrir myndir á borð við The Royal Tenenbaums og Life Aquatic, er að sjálfsögðu einhver stílíserað- asti leikstjóri samtímans. Hand- bragð hans auðþekkjanlegt og The French Dispatch virðist vera einstaklega Wes Anderson-leg, ef marka má stikluna. Myndin er stjörnum prýdd líkt og fyrri myndir Andersons, en þarna stíga á svið Tilda Swinton, Bill Murray, Owen Wilson, Frances McDorm- and, Adrian Brody og ótal fleiri frábærir leikarar. Vafalaust eru margir spenntir fyrir þessari mynd, sem stefnt er á að frumsýna í október. Small Axe Small Axe er nýjasta verkið úr smiðju hins frábæra breska leik- stjóra Steve McQueen, sem er þekktur fyrir Hunger og Óskars- verðlaunamyndina 12 Years a Slave. Small Axe er ekki bara ein bíó- mynd heldur fimm mynda sería og heita kaflarnir Mangrove, Lovers Rock, Red, White and Blue, Edu- cation og Alex Wheathle. Þetta form minnir nokkuð á Dekalóg Krzysztofs Kieslowski, sem var tíu mynda sería byggð á boðorðunum tíu. Reyndar leikur enginn vafi á því að McQueen er innblásinn af Kieslowski því að hann nefnir einn kafla í seríunni „rauðan, hvítan og bláan“ líkt og myndirnar í litaþrí- leik Kieslowskis. Til stóð að frum- sýna fyrstu tvo kaflana á Cannes, sem varð að sjálfsögðu ekkert úr. Small Axe fjallar um reynslu- heim svartra og hörundsdökkra í Bretlandi. Nú hefur fyrsti hlutinn, Mangrove, verið frumsýndur á streymisveitunni Amazon Prime og útlit fyrir að næstu kaflar verði sýndir þar líka. Myndin er byggð á sönnum atburðum og fjallar um „Mangrove-gönguna“, þar sem hörundsdökkir Lundúnabúar mót- mæltu lögregluofbeldi árið 1970. Enn er á huldu um hvað næstu hlutar fjalla en ljóst er að þetta er eitt mest spennandi kvikmynda- verk ársins og ástæða til að fylgj- ast vel með. Soul Það telst alltaf til tíðinda þegar Pixar sendir frá sér nýja teikni- mynd og nú er væntanleg ný mynd frá fyrirtækinu sem heitir Soul. Soul fjallar um tónlistarkenn- arann Joe Gardner. Hann hefur lengi dreymt um að starfa sem djasspíanóleikari og fær loksins tækifæri þegar hann nær að ganga í augun á nokkrum koll- egum sínum á djassklúbbi í bæn- um. Það kemur hins vegar babb í bátinn þegar Joe lendir í hræði- legu slysi. Hann lifir af en er í dauðadái, sem verður þess vald- andi að sál hans yfirgefur líkam- ann. Sálin heldur í mikla ævin- týraferð um handanheima og verður að reyna að komast aftur til baka, áður en líkami Joes gefur upp öndina. Soul átti að vera fjölskyldu- sumarsmellur og stóð til að frum- sýna hana 19. júní. Nú hefur frumsýningu verið frestað fram í lok nóvember og verður hún þar með jólamynd fjölskyldunnar í staðinn. Bíó í biðstöðu »Reyndar leikurenginn vafi á því að McQueen er innblás- inn af Kieslowski því að hann nefnir einn kafla í seríunni „rauð- an, hvítan og bláan“ líkt og myndirnar í litaþríleik Kieslowskis. Ástaróður The French Dispatch eftir leikstjórann Wes Anderson átti að frumsýna á kvikmyndahátíðinni á Cannes í vor en hátíðinni var aflýst. Kvikmyndinni hefur verið lýst sem ástaróði til blaðamannastéttarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.