Morgunblaðið - 14.11.2020, Page 1
Að grípa ljósið
Ullin ersmart
Aðalbjörn Tryggvason, Addi
í Sólstöfum, segir enga skömm
fólgna í því að vera í myrkrinu
en brýnt sé að leita sér hjálparáður en það sé um seinan.
Meðvirkni er leiðarstef á nýrri
plötu Sólstafa. Sjálfur hristi Addiaf sér sinn djöful, neysluna,
fyrir sjö árum og nýtur þess í
dag að vera edrú og til staðarvið listsköpunina og á tón-leikum og ekki síst fyrir sex
mánaða gamla dóttur sína. 12
15. NÓVEMBER 2020SUNNUDAGUR
Fylgir innsæinu
MagneaEinarsdóttirhönnuðurhjá KioskGranda er mnýja línu. 20
Bóka-
bræður
Ævar Þór ogGuðni LíndalBenediktssynirmeð samtalssex bækurá árinu. 28
María BjörkIngvadóttirstjórnar N4 afröggsemi oghlustar alltaf áinnri rödd. 8e
L A U G A R D A G U R 1 4. N Ó V E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 269. tölublað 108. árgangur
MELANKÓLÍA,
TÝND ÁST
OG LEIKGLEÐI
BÖRN LÆRI UM
ÞJÓÐSÖGUR Á
SPENNANDI HÁTT
ÖNNUR BARNABÓK HILDAR 12MOONLOVE EGILS 50
Guðni Einarsson
Ragnhildur Þrastardóttir
Pétur Magnússon
Ástand húsnæðis, loftskipta og að-
búnaðar á Landakoti er talið ófull-
nægjandi með tilliti til sýkingar-
varnasjónarmiða, og er líklega
meginorsök dreifingar kórónuveiru-
smita þegar hópsýking kom þar upp
í síðasta mánuði.
Bent er á þetta í frumniðurstöð-
um faraldsfræðilegrar rannsóknar,
sem kynntar voru á fundi í gær.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, for-
maður Landssambands eldri borg-
ara, segir í samtali við Morgunblað-
ið ljóst að Landakot og fjöldi
annarra hjúkrunarheimila standist
ekki nútímakröfur. Hún segist vona
að heilbrigðisyfirvöld og stjórn-
endur Landspítala finni leið til að
halda einstaklingum á Landakoti
öruggum á meðan núverandi ástand
varir.
Ekki haldið almennilega við
Þórunn segir að á Landakoti sé í
boði gríðarlega mikilvæg þjónusta,
en að húsnæðið sjálft sé barn síns
tíma. „Það var enginn að reyna að
ímynda sér þetta sem hjúkrunar-
heimili. Þetta er bráðabirgðastaður
eins og mörg önnur hjúkrunarheim-
ili, og það hefur ekki fengið almenni-
legt viðhald vegna þess að það átti
að byggja spítala fyrr,“ segir hún.
Ástand hjúkrunarheimila sýni þá
glögglega að framkvæmdasjóður
aldraðra sé ekki notaður í að byggja
hjúkrunarheimili, heldur sé hann
ítrekað notaður í rekstur. Þó segir
hún að ólíklegt sé að hægt verði að
byggja ný hjúkrunarheimili eða
finna aðrar sambærilegar lausnir
áður en nýr spítali við Hingbraut
verður tekinn í gagnið, sérstaklega
ef markmiðið er að vernda aldraða
gegn kórónuveirunni.
„Ég sé enga lausn aðra en að farið
verði fram á það við heilbrigðisráð-
herra og Landspítalastjórnina að
fundin verði leið til að gera bráða-
birgðalausnir til að tryggja öryggi
einstaklinga á hjúkrunarheimilum.“
Embættið hafi ekki mannafla
Embætti landlæknis mun gera
aðra rannsókn á hópsýkingunni, til
viðbótar við þá rannsókn sem Land-
spítali hefur þegar gert. Frá þessu
greindi Alma Möller landlæknir í
samtali við mbl.is í gær.
Hún sagði jafnframt að embætti
landlæknis hefði ekki mannafla í það
að kanna hvort ófullnægjandi að-
stæður með tilliti til sýkingarvarna
væru víðar í heilbrigðiskerfinu.
„Ég held að það sé miklu mikil-
vægara að stofnanirnar sjálfar skoði
hjá sér hvað þær geta gert til að
minnka líkurnar á smitum.“
Sigríður Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar á Land-
spítala, segir að alltaf geti komið
upp hópsmit kórónuveiru en spurn-
ingin sé hvort mögulegt sé að koma í
veg fyrir að veiran breiðist út.
Svört skýrsla um smitin
Ástandið sagt ófullnægjandi frá sjónarmiði sýkingarvarna Fjöldi hjúkrunar-
heimila stenst ekki nútímakröfur, segir formaður Landssambands eldri borgara
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landakot Frumniðurstöður faraldsfræðilegrar rannsóknar voru kynntar á fundi í gær. Formaður Landssambands eldri borgara segir húsið barn síns tíma.
MÁstand spítalans … »4
Stefán E. Stefánsson
Baldur Arnarson
Íslenska leigufélagið Heimavellir
mun skipta um nafn og nefnast
Heimstaden Iceland, gangi áætlanir
eiganda þess, Fredensborg AS, eftir
á nýju ári. Samkvæmt upplýsingum
sem kynntar hafa verið lífeyris-
sjóðum og öðrum sjóðastýringarfyr-
irtækjum hér á landi stefnir nýr eig-
andi Heimavalla að því að fjölga
leigueignum í sinni eigu úr 1.500 í
3-4 þúsund á komandi árum og
byggja þannig upp rekstrarlega
hagkvæmt félag. Fyrirtækið hefur
mikla reynslu af og þekkingu á
starfsemi sem þessari og félag sem
er í meirihlutaeigu þess á yfir 100
þúsund íbúðir sem það leigir út á
Norðurlöndum og á meginlandi Evr-
ópu. Er heildarvirði eignasafnsins
metið á ríflega 2.100 milljarða króna.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að félagið kynni nú fyrirætlanir sín-
ar hér á landi í ljósi þess að til greina
komi að fjármagna frekari uppbygg-
ingu að einhverjum hluta með út-
gáfu skuldabréfa í íslenskum kr.
Gengur á lagerinn í miðbænum
Alls hafa um 140 íbúðir selst á
þéttingarreitum í miðborg Reykja-
víkur síðan í febrúar og er þá meðal
annars Hlíðarendi undanskilinn.
Með því hafa um 520 íbúðir selst á
þessum reitum síðan haustið 2017.
Kjartan Smári Höskuldsson,
framkvæmdastjóri Íslandssjóða,
segir vaxtalækkanir gera fleirum
kleift að kaupa nýjar íbúðir. »22
Heimavell-
ir í sókn
á markaði
Hyggjast kaupa
1.500-2.500 íbúðir
Góð sala í miðbæ
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Líf á markaði Aðeins ein íbúð er
óseld á Hverfisgötu 94-96.
Dráttarbeisli, bakkmyndavél, stöðugleikastýring og fleira.
Škoda Kodiaq
Fjórhjóladrifinn, fæst sjö manna og einkar vel útbúinn.
Fullt verð 7.450.000 kr. Þú sparar 600.000 kr.
Afmælisverð 6.850.000 kr.
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · hekla.is/skodasalur
Dráttargeta
2,5 tonn