Morgunblaðið - 14.11.2020, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 14.11.2020, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 ÚR BÆJARLÍFINU Sigurður Ægisson Siglufirði Veturinn minnti á sig á dögunum, þegar allt í einu hvít jörð blasti óvænt við Siglfirðingum einn morg- uninn. Enn liggur föl yfir, hvað sem verður. Víst er, að enginn óskar sér þess sem var veturinn 2019-2020, með tilheyrandi ófærð og lokunum í austur og vestur. Það er engum bjóð- andi.    Flugvöllurinn á Siglufirði var lagður af fyrir mörgum árum, en sumarið 2018 var rykið dustað af honum, malbik lagt á skemmda kafla og hann opnaður á ný. Fyrir tveimur mánuðum var fréttavefnum Trölli.is bent á að flugbrautin væri orðin grasi- og mosavaxin á ný. Í kjölfarið sendi miðillinn fyrirspurn til bæjar- ráðs Fjallabyggðar og spurði hvað það segði um ástand vallarins, hver væru framtíðaráform varðandi hann og hver hefði tekið ákvörðun á sínum tíma um enduropnun hans með til- heyrandi kostnaði. Á 673. fundi bæj- arráðs Fjallabyggðar var málið tekið fyrir og gerð eftirfarandi bókun: „Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn bæjarstjóra varðandi ástand vallarins og fjölda lendinga á árinu 2020. Bæjarráð bendir á að ákvörðun um viðhald eigna sveitarfélagsins er tekin af bæjarstjórn við gerð fjár- hagsáætlunar ár hvert. Bæjarstjórn tekur jafnframt ákvarðanir um ein- stök verkefni og fjárútlát.“    Skrifstofa Fjallabyggðar hefur verið lokuð almenningi frá 2. nóv- ember, til að draga eftir mætti úr smithættu af völdum kórónuveir- unnar og tryggja sem best að starf- semi og þjónusta haldist órofin. Eins er með íþróttahús og sundlaugar. Bóka- og héraðsskjalasafnið við Gránugötu er sömuleiðis lokað, því verið er að skipta um gólfefni.    Skólahald Grunnskóla Fjalla- byggðar hefur verið með breyttu sniði frá 3. nóvember, eftir að hert var á sóttvarnareglum. Yngsta stigi, 1.-4. bekk, hefur verið kennt í skóla- húsinu við Norðurgötu, miðstigið, 5.-7. bekkur, hefur verið í skólahús- inu í Ólafsfirði og unglingastig verið til húsa á Rauðkutorgi á Siglufirði.    Hvítfálki, ljósasta afbrigði fálk- ans, oft líka nefnt grænlandsfálki, mikil konungsgersemi á öldum áður, gerði sig heimakominn í Siglufirði 9. nóvember og fór nærvera hans ekki fram hjá öðrum fuglum, sem leist illa á gripinn þótt tignarlegur væri. Ein af dúfum bæjarins leitaði skjóls uppi í stóru grenitré, af öllum stöðum, sem þykir til marks um ótta hennar við þennan óboðna gest, og hreyfði sig ekki þaðan fyrr en undir myrkur.    Þann 10. nóvember voru 53 ár lið- in frá því Strákagöng voru opnuð fyrir bílaumferð, sem gjörbylti sam- göngum til Siglufjarðar. Gerð þeirra hófst árið 1959 og voru þá grafnir um 30 metrar, en kraftur var ekki settur í framkvæmdir fyrr en sumarið 1965. Síðasta haftið var sprengt 17. sept- ember 1966 og göngin voru svo opn- uð 10. nóvember 1967. Voru þau önn- ur í röð jarðganga fyrir bílaumferð á Íslandi. Göngin eru 793 metrar á lengd. Upphaflega áttu þau að vera tvíbreið en frá því var horfið og eru þau einbreið með útskotum og þykja orðin barn síns tíma fyrir löngu, með stórhættulegum vegi sem tekur við eftir að út er komið Fljótamegin, bæði nærri gangamunnanum sem og í Almenningum.    Menningarsjóður Ytrahússins á Siglufirði hefur nýverið gefið og sett upp þrjú vegleg skilti í bænum, tvö framan við Síldarminjasafnið, þau segja frá snjóflóðunum miklu 1919 og Ráeyrarskriðunni 1830, og eitt við svokallaðan hallargarð við Lindargötu. Tilefnið er í öllum til- vikum það að vekja athygli á sögu- legum húsum og stöðum í bænum. Þetta áhugamannafélag hefur áður staðið fyrir svipuðu, m.a. árið 2017, þegar það gaf nokkur emaleruð nafn- skilti á Sæbyshús, byggt 1886, Ty- nesarhús, byggt 1905, Ytrahúsið/ Söluturninn, byggt 1905, Herhúsið, byggt 1914, Norska sjómannaheim- ilið, byggt 1915, Nýja bíó, byggt 1924, og Apótekið, byggt 1930.    Lögreglan á Norðurlandi eystra gaf á miðvikudag, 12. nóvember, út lista varðandi fjölda manns í sóttkví og einangrun í umdæminu. Enginn reyndist í einangrun eða sóttkví í Fjallabyggð.    Á morgun, 15. nóvember, hverf- ur sólin á bak við fjöllin í suðri og geisla hennar mun ekki njóta aftur yfir byggðinni fyrr en eftir 75 daga, eða nánar tiltekið 28. janúar 2021. Þá verður henni fagnað með pönnukök- um og söng. Sólin hverfur bak við fjöllin á morgun Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Snjór Siglfirðingar vöknuðu upp við hvíta jörð á dögunum. Myndin var tekin í fyrradag en þá var enn föl yfir. Nú á dögunum tók gildi sú breyting að Selfoss- og Eyrarbakkaprestaköll í Suðurpófastdæmi voru sameinuð, skv. því sem Kirkjuþing samþykkti á dögunum. Alls sjö kirkjur og jafn margar sóknir eru innan hins nýja prestakalls, það er Hraungerðis-, Laugardæla-, Selfoss-, Villingaholts-, Eyrarbakka-, Stokkseyrar- og Gaul- verjabæjarsókn. Sóknir þessar ná yf- ir láglendið milli Ölfusár og Þjórsár og alls eru sóknarbörnin 8.180 tals- ins. Prestar hins nýja prestakalls verða áfram þeir sömu og þjónuðu áður á svæðinu. Sr. Guðbjörg Arn- ardóttir er sóknarprestur hins nýja prestakalls og fer með ákveðið for- ystuhlutverk því samkvæmt. Prestar eru þeir sr. Gunnar Jóhannesson og sr. Arnaldur Bárðarson. Í tilkynningu segir að markmiðið með þessari breytingu fyrst og fremst að efla og auðga þjónustu kirkjunnar á hverjum stað og greiða fyrir samstarfi og samvinnu presta. „Með tilkomu hins nýja prestakalls fáum við prestarnir nú tækifæri til að starfa nánar saman og skipuleggja starf okkar og þjónustu á breiðari grunni. Það teljum við afar jákvætt og hlökkum við mikið til að vinna saman að því, ásamt öðru samstarfs- fólki okkar innan kirkjunnar, að efla þjónustu kirkjunnar okkar og auka breidd hennar og fjölbreytni,“ segir í tilkynningu. Þar er og þeirri ósk lýst að aðstæður í samfélaginu komist í eðlilegt horf fljótlega svo aftur megi bjóða upp á fjölbreytt helgihald og safnaðarstarf. sbs@mbl.is Prestaköll sameinuð  8.180 sálir  Flói, Selfoss og strönd Stokkseyrarkirkja Eitt sjö guðs- húsa í hinu sameinaða prestakalli. Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Gefðu dekurgjöf um jólin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.