Morgunblaðið - 14.11.2020, Qupperneq 33
UMRÆÐAN 33
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
Komdu í BÍLÓ!
PLUG INHYBRID
Nýskráður 01/ 2020, ekinn 11 Þ.km,
bensín og rafmagn (plug in hybrid,
drægni 50 km), sjálfskiptur. Fjórhjóla-
drifinn (4matic).
Hlaðinn aukabúnaði s.s. AMG-line, Night
pack, stafræntmælaborð, leiðsögukerfi,
bakkmyndavél, blindsvæðisvörn o.fl.
Skipti á ódýrari skoðuð!
Raðnúmer 251752
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is – ALLTAF VIÐ SÍMANN 771 8900 –
M.BENZ C 300e 4matic AMG
7.990.000 kr.
TILBOÐSVERÐ
ÁSKIRKJA | Tónlist, ritningarorð og morg-
unhugvekja úr Áskirkju flutt á heimasíðu kirkj-
unnar; askirkja.is, kl. 9.30 á sunnudögum og
fimmtudögum. Almennar sunnudagsguðsþjón-
ustur í Áskirkju falla niður um óákveðinn tíma
vegna Covid-19-veirufaraldursins. Prestur og
djákni Ássafnaðar eru til viðtals eftir sam-
komulagi í síma Áskirkju, 588-8870.
FELLA- og Hólakirkja | Helgistund í streymi
á fésbókarsíðu kirkjunnar kl. 11 sunnudaginn
15. nóv. https://www.fellaogholakirkja.is/
GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 15.
nóvember verður streymt frá helgistund kl. 11
á Facebooksíðu kirkjunnar. Sr. Sigurður Grétar
Helgason þjónar. Organisti er Hákon Leifsson
og Sara Grímsdóttir mun sjá um söng.
Sunnudagaskólinn verður í streymi á Facebo-
oksíðu kirkjunnar kl. 9.30. Umsjón hafa Ásta
Jóhanna Harðardóttir og Hólmfríður Frostadótt-
ir. Undirleikari er Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Helgistund í tilefni Al-
þjóðlegs minningadags fórnarlamba umferð-
arslysa er birt á Facebook síðum Grensás- og
Bústaðakirkju og youtube rásinni Fossvogs-
prestakall. Sr. María G. Ágústsdóttir og Daníel
Ágúst Gautason djákni annast þjónustu ásamt
Ástu Haraldsdóttur organista og Kirkjukór
Grensáskirkju. Sunnudagaskólinn er sendur út
um helgar ásamt kyrrðarstundum á þriðjudög-
um kl. 12 og núvitundarstundum á kristnum
grunni á fimmtudögum kl. 18.15. Hugvekjur
11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik
Vignir Stefánsson er organisti. Sigurlaug Arn-
ardóttir syngur. Hrafnhildur B. Sigurðardóttir og
Þórir S. Guðbergsson lesa ritningarlestra.
Rúna Gísladóttir les bænir. Sveinn Bjarki Tóm-
asson er tæknimaður.
Bænastund í streymi á facebókarsíðu Seltjarn-
arneskirkju miðvikudaginn 18. nóvember kl.
12.
presta og djákna er einnig að finna á netinu.
HALLGRÍMSKIRKJA | Helgistund sunnudag
kl. 11 á vef kirkjunnar, www.hallgrimskirkja.is.
KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund verður
streymt á facebook síðu kirkjunnar kl. 11 þar
sem dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson leiðir. Á sama
tíma verður sunnudagskólanum streymt.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgistund í
streymi á facebókarsíðu Seltjarnarneskirkju kl.
Morgunblaðið/Ómar
Sumarnótt á Akureyri
ORÐ DAGSINS:
Freisting Jesú
(Matt. 4)
Hinn 9. nóvember
2020 birtist í Morg-
unblaðinu grein eftir
Ólaf Þ. Jónsson sem
hann nefnir Stað-
reyndirnar hans Er-
lings. Hann fjallar
enn um réttarhöld
sem fram fóru í
Moskvu fyrir meira
en átta áratugum.
Hann vitnar í menn
sem viðstaddir voru réttarhöldin
og létu blekkjast. Hann bendir
réttilega á að Halldór Laxness var
viðstaddur réttarhöld í Moskvu
árið 1938. Halldór lýsir í bókinni
Gerska ævintýrið því sem hann sá
og heyrði. Hann var sannfærður
árið 1938 um að réttarhöldin hefðu
skilað réttlátri niðurstöðu. Halldór
átti þó eftir að skipta um skoðun á
Stalín og verkum hans. Í bókinni
Skáldatími sem kom út árið 1963
segir Halldór á bls. 289: „Annars
hlýtur það að vera mikil huggun
fyrir kommúnistahatara alstaðar í
heiminum um leið og málsbót fyrir
Stalín að hann hafi aldrei í starfs-
ferli sínum látið gera útaf við aðra
menn en kommúnista á eigið
frumkvæði, enda hefur hann
sennilega látið koma fyrir katt-
arnef fleiri kommúnistum, að
minnsta kosti kommúnistafor-
ingjum, en nokkur annar maður.
Hann sá fyrir öllu því forystuliði
sem nokkurs var nýtt innan
kommúnistaflokks Ráðstjórn-
arríkjanna, að því er Krústsjoff
lýsti fyrir mönnum 1956, og lét
strádrepa blómann af herfor-
íngjum Rauða hersins ýmist að
undangeinginni réttarseremóníu
eða án dóms og laga. Frægt er
þegar hann bauð kommúnistafor-
ingjum Póllands til stórhátíðar í
Moskvu skömmu eftir stríðið og
lét handtaka þá alla orðalaust við
komuna og skjóta þá fljótt.“
Ég veit að þessi orð Halldórs
Laxness frá árinu 1963 eru rétt
lýsing á verkum gagnbyltingarfor-
ingjans Stalín. Halldór eins og
margir aðrir vissi betur árið 1963
en árið 1938. Það sem Halldór rit-
aði í Skáldatíma árið 1963 kemur
líka heim og saman við aðrar
rannsóknir.
Það er rangt að trotskíistar hafi
verið öflugir víða um heim eins og
Ólafur fullyrðir. Þeir voru hvergi
öflugir árið 1940 eða síðar. Trotskí
hljóp ekki úr herbúðum mensévíka
þremur mánuðum fyrir nóv-
emberbyltinguna. Trotskí og Len-
ín áttu samstarf á ráðstefnu í
Zimmerwald í september 1915.
Þessi ráðstefna var fundur sósíal-
ista frá nokkrum löndum sem and-
vígir voru stríðsrekstri stórveld-
anna. Trotskí samdi
ávarp ráðstefnunnar
og Lenín greiddi at-
kvæði með því að
ávarp sem Trotskí
samdi yrði ávarp
þeirra sósíalista sem
beittu sér gegn stríðs-
rekstri stórveldanna.
Þeir áttu svo farsælt
samstarf eftir að
Trotskí kom til Pét-
ursborgar 17. maí
1917. Lenín kom til
Pétursborgar 17. apríl 1917. Hann
breytti afstöðu bolsévíka sem
höfðu ekki beitt sér gegn bráða-
birgðastjórninni í landinu en sú
stjórn hélt áfram stríðsrekstr-
inum. Trotskí fór sjóleiðina frá
New York eftir að hann frétti af
febrúarbyltingunni. Hann var sett-
ur í varðhald af enskum yfirvöld-
um og sat í varðhaldi í Kanada frá
3. til 29. apríl 1917. Þetta fréttist
til Pétursborgar. Lenín og ýmsir
aðrir töluðu um það í ræðum í
Pétursborg að leysa ætti Trotskí
úr haldi enska herveldisins.
Trotskí var vel þekktur meðal al-
mennings í Pétursborg. Hann
hafði verið forseti ráðsins í Pét-
ursborg árið 1905. Bæði stjórnvöld
í London og stjórnvöld í Péturs-
borg vissu að þar fór byltingarfor-
ingi. Fylgi bolsévíka óx sumarið
1917. Stjórnvöld í Pétursborg
beittu sér af öllum sínum mætti
gegn bolsévíkum eftir 16. júlí
1917. Lenín fór huldu höfði en
stjórn Kerenskis lét setja Trotskí
í fangelsi 7. ágúst 1917. Trotskí
sat í fangelsi í Pétursborg í 40
daga frá 7. ágúst 1917. Hann sat í
fangelsi þegar 6. þing bolsévíka
samþykkti inngöngu Trotskís í
flokkinn í ágúst 1917. Má af þessu
ljóst vera að Trotskí hljóp ekki
neitt þó Ólafur segi svo. Hann sat
í fangelsi og bolsévíkar tóku hann
inn í flokkinn. Á þessu flokksþingi
var Trotskí kosinn í miðstjórn
flokksins.
Stalín hafði vissulega mjög mikil
völd og notaði þau óspart. Hann
var leiðtogi gagnbyltingar innan
Sovétríkjanna á árunum frá 1924.
Eins og Halldór lýsti í Skáldatíma
árið 1963 lét hann drepa marga en
f.o.f. fremst voru það komm-
únistar sem urðu fórnarlömb
gagnbyltingar Stalíns.
Gagnbyltingar-
maðurinn Stalín
Eftir Erling
Hansson
Erlingur Hansson
» Stalín lét drepa alla
þá sem höfðu for-
ystu um byltingu í Rúss-
landi í nóvember 1917
Höfundur þýddi bókina Byltingin
svikin sem kom út á Íslandi nýlega.
erlingurhansson@gmail.com
Hér á landi hafa orð-
ið miklar framfarir í
snemmtækri íhlutun
heilbrigðiskerfisins er
varðar blóðtappa í
heila og á starfslið
Landspítalans mikið
hrós skilið fyrir sitt
starf. Þakka má það
ungu og dugmiklu
starfsliði sérhæfðra
lækna og hjúkr-
unarfræðinga, er hefur verið rómað
á ársfundum hans – sem og erlend-
is. En hvað tekur svo við, þegar
sjúklingurinn er kominn af bráð-
astigi? Hér vantar á það sem við á
að taka! Slagdeild!
Heilaheill er sjúklingafélag er
vinnur að velferðar- og hagsmuna-
málum þeirra er fengið hafa slag
(heilablóðfall). Allir geta gerst fé-
lagar er hafa áhuga á málefninu.
Félagið er aðili að ÖBÍ og erlend-
um samtökum, eins og t.d. SAFE
(Stroke Alliance for Europe), sem
eru samtök evrópskra sjúklinga-
samtaka sem ekki eru rekin í hagn-
aðarskyni og stuðla að betri heil-
brigðisþjónustu hvers ríkis fyrir sig
með því að vekja athygli almenn-
ings á áfallinu og hvernig eigi að
bregðast við því. Þá er félagið aðili
að NAR, Nordisk Afasiråd, sem
eru norræn samtök um endurhæf-
ingu málstolssjúklinga eftir slag og
gegnir nú formennsku í stjórn þess.
Með aðildinni hefur félagið fylg-
ist með framförum í
heiminum og borið ís-
lenskt heilbrigðiskerfi
saman við það sem
gerist á Evrópusvæð-
inu. Nokkuð metn-
aðarfullt og nýhafið
átaksverkefni stendur
nú yfir, SAPE
(Stroke Action Plan
for Europe 2018-
2030), sem er sam-
starfsverkefni SAFE
og ESO (European
Stroke Organization),
sem eru samtök fagaðila er veita
bæði leikum og lærðum í Evrópu
almenna læknisfræðslu um slagið.
ESO og SAFE hófu þetta átak 2018
og hafa nú u.þ.b. 80 sérfræðingar
frá 52 löndum tekið þátt og greint
frá sínum vísindaárangri um slagið.
Meginmarkmið SAPE fyrir 2030:
1. að fækka heilablóðföllum í
Evrópu um 10%;
2. að meðhöndla 90% eða meira
af sjúklingum með heilablóð-
fall í Evrópu á sérstökum
slagdeildum (stroke unit) sem
fyrsta stigi umönnunar;
3. að hafa landsáætlun um heila-
blóðfall sem nær yfir allar
heilbrigðisstofnanir frá sjálf-
bærni til lífs eftir heilablóðfall;
4. að innleiða að fullu innlendar
áætlanir fyrir fjölþættar lýð-
heilsuaðgerðir til að stuðla að
og auðvelda heilbrigðan lífsstíl
og að draga úr óheilbrigðum
umhverfisþáttum (þ.m.t. loft-
mengun o.s.frv.), félagslegum
og efnahagslegum þáttum sem
auka hættu á heilablóðfalli.
Markmiðið félagsins er að vekja
athygli landsmanna á átaki SAPE
að hér sé til staðar sérstök slag-
deild fyrir þá sjúklinga sem fá
heilablóðfall með sérhæfðu starfs-
liði. Sé horft til jafnræðisreglunnar
í stjórnsýslunni þá er óheimilt að
mismuna aðilum við úrlausn mála –
en meðferð og umönnun á heila-
blóðfallssjúklingum er að mörgu
leyti síðri hér á landi en það sem
gerist á Evrópusvæðinu, en þarf
ekki að vera það. Heilablóðfall er
þriðja stærsta dánarorsökin í heim-
inum í dag og er alls ófullnægjandi
að umönnun slagsjúklinga sé sett
inn og saman við umönnun annarra
sjúklinga er þurfa sína meðferð.
Hér á landi má ætla að umönnun
krabbameinssjúklinga og hjarta-
sjúklinga sé með ágætum er hafa
þó sínar deildir – en hér vantar
slagdeild!
Hér vantar slagdeild!
Eftir Þóri
Steingrímsson »Heilablóðfall er
þriðja stærsta dán-
arorsökin í heiminum í
dag og hér á landi eru
nær tveir á dag sem
eiga rétt á sérhæfðri
meðferð á sérstakri
slagdeild.
Þórir Steingrímsson
Höfundur er formaður Heilaheilla.
heilaheill@heilahrill.is