Morgunblaðið - 14.11.2020, Side 56
inum eldri eftir að ég byrjaði að taka
það.“
Helgi er með reyndari rjúpna-
veiðimönnum landsins, hefur farið á
hverju hausti frá 12 ára aldri, síðast
um helgina. „Það er spennandi að
finna hana og vita hvort maður nær
henni en útivistin er aðalatriðið,“
segir hann og sýtir ekki að hafa ekk-
ert veitt á þessu tímabili. „Júlíus,
sonur minn, fékk fjórar en ég fer að-
allega til þess að fara, komast í heið-
ina.“
Helgi var formaður Félags eldri
borgara á Raufarhöfn frá stofnun
2014 en sagði starfinu lausu fyrir
skömmu. „Við erum 27 í félaginu og
um 12 til 18 manns mæta alltaf í fé-
lagsstarfið einu sinni í viku nema í
samkomubanninu,“ segir hann og
leggur áherslu á að enginn á Raufar-
höfn hafi smitast af veirunni. „Hér
líður öllum vel.“
Fyrir um fimm árum afhjúpaði
Helgi listaverk sitt, Drekann, á
hafnargarðinum og er nú að betr-
umbæta verkið. „Mér fannst eld-
urinn of lítill, er búinn að finna út
betri eld og set Drekann aftur út í
vor.“
Rafvirkjameistarinn var fréttarit-
ari Morgunblaðsins í um þrjá ára-
tugi. Hann nýtur þess að hafa eitt-
hvað fyrir stafni og föndrar meðal
annars við að saga út Ísland og setja
lýsingu á bak við, en framleiðsluna
hefur hann gefið ættingjum og vin-
um. „Þegar ég er beðinn um að
sinna einhverju verki er ég farinn að
spyrja hvað ég þurfi að borga fyrir
vinnuna. Hún heldur manni gang-
andi og fólk tekur vel í viðbrögðin.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Eitt sinn rafvirki, alltaf til þjónustu
reiðubúinn, hljómar fyrir eyrum
þegar rætt er við Helga Ólafsson á
Raufarhöfn. „Ég er eini rafvirkinn á
staðnum og stekk til þegar kallið
kemur,“ segir meistarinn, sem verð-
ur 92 ára á næsta ári og hefur unnið
við iðnina síðan hann útskrifaðist frá
Iðnskóla Siglufjarðar 1950, í 70 ár.
Tæplega 200 manns búa á Raufar-
höfn. Helgi segir að mestu breyting-
arnar hafi orðið á staðnum þegar
síldarverksmiðjunni var lokað. „Ég
byrjaði að vinna hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins sem saltlempari á
þrónum 1944 og vann á lóðum verk-
smiðjunnar til 2005. Svo er verið að
verðlauna menn fyrir að hafa verið á
sama vinnustað í 25 ár!“ Hann bætir
við að hann hafi ekki farið á launa-
skrá hjá fyrirtækinu fyrr en verk-
smiðjan hafi verið rifin 2002. „Ég
vann sjálfstætt sem verktaki og þeg-
ar átti að fara að loka verksmiðjunni
sagði verksmiðjustjórinn: „Þú þarft
ekki að mæta á morgun.“ Aðrir voru
verðlaunaðir með starfslokasamn-
ingum upp á jafnvel tugi milljóna.“
Öllum líður vel á Raufarhöfn
Helgi fæddist á Raufarhöfn og
hefur alla tíð búið þar fyrir utan tím-
ann sem hann var í námi á Siglufirði.
„Þar náði ég í bestu konu í heimi,
Stellu Borgþóru Þorláksdóttur, að
öllum öðrum konum ólöstuðum,“
segir hann. „Eftir að ég útskrifaðist
sem rafvirkjameistari fékk ég símtal
frá SÍS í Reykjavík, Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga, og mér
boðið starf á rafmagnsverkstæðinu.
Ég þurfti ekki nema tvær mínútur
til að svara því, andaði djúpt og af-
þakkaði boðið.“ Eftir andartaks-
þögn heldur hann áfram: „Enda
væri ég ekki að tala við þig ef ég
hefði flutt til Reykjavíkur, því þá
væri ég dauður fyrir löngu. Allir
Raufarhafnarbúar, sem hafa flutt
héðan til Reykjavíkur, hafa dáið. En
satt best að segja hefur fæðubótar-
efnið Benecta bjargað mér und-
anfarin ár og ég hef ekki orðið deg-
Eini rafvirkinn á
Raufarhöfn er 91 árs
Helgi Ólafsson býðst til að borga fyrir að fá að vinna
Rafvirkjameistarinn Helgi Ólafsson á kunnuglegum stað í vikunni.
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 319. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Mér líst bara vel á að vera að fara að spila þessa leiki.
Við erum í góðum séns. Við þurfum náttúrlega að vinna
okkar leiki,“ segir Sandra Sigurðardóttir, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, meðal annars í samtali við
Morgunblaðið í dag en í gær var kynnt hvaða leikmenn
eru í landsliðshópnum sem mætir Slóvakíu og Ung-
verjalandi síðar í mánuðinum í undankeppni EM. Tvær
breytingar voru gerðar. Dagný Brynjarsdóttir og Rakel
Hönnudóttir koma inn en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
og Hólmfríður Magnúsdóttir verða ekki með. »48
Tvær breytingar á landsliðshópnum
fyrir leikina tvo í undankeppni EM
ÍÞRÓTTIR MENNING
Valgeir Guð-
jónsson hefur
samið lag við
kvæði Hannesar
Hafsteins um
Jónas Hall-
grímsson, „Hraun
í Öxnadal“, og
hljóðritað það
með sveit sinni,
Tóneyki Valgeirs.
Lagið samdi Val-
geir í tilefni sjö
ára afmælis
menningarhúss-
ins Hannesarholts, þegar leitað var til hans um að
semja lag við ljóð eftir Hannes og valdi hann þetta ljóð
þar sem Hannes hyllir Jónas. Upptakan á laginu var síð-
an gerð nú í tilefni af Degi íslenskrar tungu sem er á
mánudaginn kemur. Valgeir syngur lagið með Vigdísi
Völu dóttur sinni.
Valgeir samdi og hljóðritaði lag við
kvæði Hannesar Hafsteins um Jónas