Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020
✝ Þormar VignirGunnarsson
fæddist 30. sept-
ember 1973 í
Reykjavík. Hann
varð bráðkvaddur á
heimili sínu 12. nóv-
ember 2020. For-
eldrar hans eru
Gunnar Þórisson, f.
29. ágúst 1950, og
Vilborg Þorgeirs-
dóttir, f. 7. desem-
ber 1951, búsett í Mosfellsbæ.
Bróðir Þormars er Þórir Gunn-
arsson, f. 13. april 1978.
Hinn 10. október 2018 giftist
Þormar Helenu Benjamíns-
dóttur, f. 2. júní 1975. Dóttir Þor-
mars og Helenu er Guðrún Von,
f. 17. júní 2011. Dóttir Helenu er
Sólrún Líf Kristbjörnsdóttir, f.
31. mars 1999.
Þormar eignast í fyrri sambúð
1)Thelmu Rut, f. 9. júlí 2000,
en starfaði líka ötullega að ljós-
myndun. Síðustu árin vann hann
hjá Birgi vini sínum í Glugga-
gerðinni. Það sem átti hug Þor-
mars alla tíð var ljósmyndun og
allt sem henni við kom. Þorgerð-
ur amma Þormars hafði unnið á
sínum yngri árum í Hans Pet-
ersen og kunni hún öll handtök
er við komu framköllun á filmum
og varðveislu þeirra sem kveikti
áhuga hans á ljósmyndun.
Seinna lærði Þormar auglýs-
inga- og tískuljósmyndun sem
hann vann við í mörg ár, stofnaði
ljósmyndastúdíó ásamt fleirum.
Hann starfaði sem ljósmynd-
ari nokkurra blaða, t.d. hjá
Áfram, sem var fylgiblað Morg-
unblaðsins, og á DV sem hann
var viðloðandi í mörg ár. Útför
Þormars fer fram frá Langholts-
kirkju 3. desember 2020 klukkan
15.
Vegna aðstæðna verða aðeins
nánustu aðstandendur við-
staddir en streymt verður frá at-
höfninni á vef Langholtskirkju,
eða:
https://tinyurl.com/y383blkm.
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á: https://www.mbl.is/andlat.
sambýlismaður
hennar er Alexand-
er Eiríksson, f. 29.
júní 2001, og 2)
Mikael Bjarka, f. 16.
júní 2004.
Foreldrar Hel-
enu eru Benjamín
Stefánsson, f. 10.
nóvember 1949, og
Ragna Sigríður
Kjartansdóttir, f. 1.
nóvember 1954.
Eiginmaður Rögnu er Friðgeir
Þráinn Jóhannesson, f. 15. ágúst
1947.
Þormar ólst upp í Mosfells-
sveit frá þriggja ára aldri. Eftir
hefðbundna skólagöngu fór Þor-
mar að vinna í Trésmiðjunni
Mosfelli, þar var hann í nokkur
ár áður en hann fór í Iðnskólann
í Reykjavík þar sem hann nam
húsasmíði. Eftir skólagöngu
hafði hann trésmíði að lifibrauði
Þormar elskan mín. Ég
sakna þín svo óendalega mikið,
ég fæ ekki skilið af hverju við
fáum ekki að verða gömul sam-
an í litla húsinu okkar þar sem
okkur leið svo vel. Ég elska þig
svo mikið og sársaukinn við að
kveðja þig er óbærilegur. En ég
veit að ég er svo þakklát fyrir
hverja stund sem ég fékk með
þér, betri vin og lífsförunaut var
ekki hægt að velja sér. Takk
fyrir að gera mig að þinni prins-
essu, takk fyrir allt, takk fyrir
gullin okkar. Ég og þú Þormar,
ég og þú að eilífu.
Söknuður
Mér finnst ég varla heill né hálfur
maður
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að
segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur með blómunum.
Er rökkvar ráðið stjörnumál.
Gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja sál.
Horfið er nú sumarið og sólin,
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að
segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Þín
Helena.
Elsku pabbi okkar.
Við vildum óska þess að þú
hefðir fengið að vera lengur hjá
okkur og mömmu. Þú varst alltaf
svo góðhjartaður, hjálpsamur og
passaðir að allir í kringum þig
væru hamingjusamir. Þú kenndir
okkur margt og við munum
geyma allar góðu minningarnar í
hjörtum okkar.
Við erum þakklátar að hafa átt
þig sem pabba og fengið að eyða
mörgum góðum stundum með
þér eins og að fara til útlanda og í
útilegur.
Við söknum að geta hlegið með
þér og séð þig brosa, þú varst
stjarnan okkar.
Þú sýndir okkur alltaf mikla
ást og hlýju og við munum minn-
ast þess að eilífu. Við elskum þig.
Þínar dætur,
Sólrún Líf og Guðrún Von.
Elskulegur drengurinn minn
hann Þormar er látinn, hverfur á
braut allt of snemma og hvað get-
ur maður sagt, bara það að segja
að hann sé látinn er erfitt, sorgin
er stór, lífið hjá Þormari var rétt
að byrja, hefði maður haldið.
Fjölskylda Þormars var honum
allt, minningin um Þormar er
sterk og söknuðurinn mikill.
Þormar hafði ákaflega góða
nærveru, hlýlegur og jákvæður
með afbrigðum, vann verk sín
vel, hvort sem hann var við smíð-
ar eða ljósmyndun, þar dró hann
oft það besta fram hjá fólki sem
hann myndaði, hann hafði töfr-
ana í myndasmíðinni. Þormar var
góður sögumaður og glettinn í
frásögn um fólk sem hann hitti á
lífsleiðinni, alltaf á jákvæðan
hátt, og öll þessi smáu og stóru
atriði er fylgdu Þormari er erfitt
að kveðja, lífsbókin hans var stutt
en þó mjög stór.
Þormar hafði í raun mjög stórt
hjarta, hann elskaði börnin sín og
hana Helenu sína mjög heitt. Það
er alltaf erfitt fyrir foreldra að
kveðja son sinn í blóma lífsins,
það tekur á, við kveðjum elsku-
lega drenginn okkar, við erum öll
í sorginni en samt þakklát, ást
okkar til Þormars lifir með okkur
áfram og er ljós í lífi okkar.
Gunnar Þórisson, Vil-
borg Þorgeirsdóttir.
Með þakklæti og miklum sökn-
uði kveðjum við kæran vin okkar
og ferðafélaga Þormar. Við minn-
umst góðra stunda með ljúfum
dreng sem öllum vildi vel. Mörg
verkefni sem honum var úthlutað
í lífinu voru krefjandi og erfið en
aldrei heyrði maður hann kvarta
eða hallmæla nokkrum manni.
Útilegur með sínum nánustu
og vinum voru honum kærar. Oft
var hann þá síðastur í háttinn en
líka með þeim fyrstu á fætur
mættur í gott morgunspjall yfir
kaffibolla. Í miðri útilegu þurfti
hann oft að sinna verkefnum við
ljósmyndun sem hann skellti sér í
og kom svo aftur til baka glaður
að verki loknu. Við ferðafélagarn-
ir vorum reglulega tilraunadýr
þegar hann var að prufa nýjar
ljósmyndavélar, græjur og að-
ferðir og eigum við flest fallegar
og skemmtilegar myndir frá hon-
um úr útilegum og viðburðum hjá
fjölskyldunni. Ljósmyndagræjur
annarra þurftu ekki að vera af
dýrustu og flottustu gerð til að
hann sýndi þeim áhuga, prufaði
þær og gæfi góð ráð varðandi
þær og myndatökur. Til að hlaða
batteríin, komast í góðan hita og
frí fóru hann og fjölskyldan til
Kanarí og þar eins og á öðrum
stöðum bæði hér heima og er-
lendis sem hann átti leið um eign-
aðist hann góða vini.
Fjölskyldan var Þorra kær og
að fá að upplifa þegar hann og
Helena innsigluðu ást sína og
gengu í hjónaband fyrir tveimur
árum var dýrmæt og falleg
stund.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Mikill og sár er missir ykkar,
kæra Helena og börnin Guðrún
Von, Mikael Bjarki, Thelma Rut
og Sólrún Líf. Foreldrar og bróð-
ir.
Megi góðar vættir gefa ykkur
og aðstandendum Þormars öllum
styrk. Takk fyrir samferðina
kæri Þormar. Lífsbirta þín mun í
minningum okkar lifa.
Arna og Þórir.
Þormar Vignir
Gunnarsson
✝ Guðlaug Jón-asdóttir fædd-
ist á Akureyri 1934.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 17. nóv-
ember 2020.
Foreldrar hennar
voru Unnur Kon-
ráðsdóttir og Jónas
Jónasson.
Maki Guðlaugar
var Lúðvík Ágústs-
son, sjómaður og síðar skipstjóri
og útgerðarmaður. Börn þeirra
eru þrjú, Ágúst, Jónas og Unnur
Kristrún.
Útför Guðlaugar
fer fram frá Kefla-
víkurkirkju í dag,
3. desember 2020,
klukkan 13.
Vegna fjöldatak-
markana munu ein-
ungis nánustu að-
standendur verða
viðstaddir athöfn-
ina. Athöfninni
verður streymt:
https://www.facebo-
ok.com/groups/gudlaugk.
Virkan hlekk á streymi má
nálgast á
https://www.mbl.is/andlat
Laula í áhaldaleigunni er lát-
in. Guðlaug Jónasdóttir, þekkt
undir nafninu Laula, var kunn-
ingi óskapa fjölda fólks á Suð-
urnesjum vegna áhaldaleigu
hennar og Lúðvíks eiginmanns
hennar. Það sem einkenndi hana
var að hún var alltaf í drífandi
verki. Hún fæddist á Akureyri
1934 í kreppunni. Unnur Kon-
ráðsdóttir móðir Guðlaugar og
Jónas Jónasson faðir hennar
voru stutt í sambúð en Jónas lést
1938 svo Guðlaug kynntist aldrei
föður sínum. Hún ólst upp hjá
móður sinni og afa sínum Kon-
ráð Sigurðssyni netagerðar-
manni og ömmu, Guðlaugu
Ólafsdóttur, sem höfðu flust frá
Fáskrúðsfirði til Akureyrar.
Guðlaug Ólafsdóttir lést 1943 og
Konráð lést 1956. Kristrún móð-
ursystir Guðlaugar var á heim-
ilinu og sá um það, en Unnur
móðir hennar vann utan heimils
og rak verslun. Guðlaug var
mjög hænd að móðusystur sinni
gerði ekki upp á milli hennar og
móður sinnar. Guðlaug var vina-
föst og átti vinkonur, sem urðu
lífstíðarvinkonur, með regluleg-
um samskiptum. Frændi Guð-
laugar var Rafn Hjaltalín og
hann var kvæntur Sigrúnu
Ágústsdóttur frá Djúpavogi, en
bróðir hennar var Lúðvík
Ágústsson, en hjá þeim hjónum
kynntist Guðlaug Lúðvík og þau
felldu hugi saman og gengu í
hjónaband. Lúðvík var sjómaður
og síðar skipstjóri og útgerðar-
maður. Börn þeirra eru þrjú,
Ágúst, Jónas og Unnur Krist-
rún. Þau voru um tíma í Nes-
kaupstað, þar sem Lúðvík var
skipstjóri á Bjarti á síldarárun-
um.
En þegar yngsta barnið fædd-
ist fór Lúðvík í land. Guðlaug
vann við ljósmóðurstörf, en sýsl-
aði aðeins við verslun, seldi egg
og hákarl svo nokkuð sé nefnt.
Þau framleiddu útidyramottur
úr bíldekkjum, sem víða urðu
vinsælar, í bílskúrnum á Melt-
eignum.
Börnin tóku þátt í framleiðsl-
unni og voru snemma vanin til
verka. Guðlaug og Lúðvík hófu
áhaldaleigu á Melteignum, sem
stækkaði og yfirtók bílskúrinn.
Alltaf var starfað, Lúðvík stund-
aði grásleppu við félaga sinn í
Fríhöfninni af gagnstæðri vakt.
En þegar Guðlaugu tæmdist arf-
ur var byggt iðnaðarhús yfir
áhaldaleiguna og starfsemin
mjög aukin. En áhaldaleigan var
annað og meira, því það var allt-
af til kaffi og menn í fram-
kvæmdum hittust þar í nokkrar
mínútur og fréttu af gangi mála
hver hjá öðrum. Við það urðu
þau hjón nokkur miðpunktur í
atvinnulífinu á Suðurnesjum.
Lúðvík varð veikari og veikari,
fékk nýrnabilun og varð alveg
blindur. Guðlaug hafði fullt starf
við að sinna honum, sprauta
hann með insúlíni eftir að hann
sá ekki til. Þrautseigja hennar að
sinna manni sínum var sérstök.
Eftir að Lúðvík dó var Guð-
laug nokkra vetur á Kanaríeyj-
um, en seldi Melteiginn og
keypti sér þjónustuíbúð. Guð-
laug hafði lyfjameðferð um
nokkurn tíma, en svo kenndi hún
sér meins af þrútnum fótum síð-
sumars og hlaut meðhöndlun á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Eftir nokkra sjúkrahúsvist lést
hún með dóttur sína sér við hlið
þann 17. nóvember síðastliðinn.
Ég og kona mín Kristín þökkum
starfsfólki umönnun Guðlaugar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
og þökkum fyrir að hafa átt sam-
leið með þeim hjónum, Guðlaugu
og Lúðvík.
Meira: mbl.is/andlat
Þorsteinn Hákonarson.
Guðlaug Konráðs
Jónasdóttir
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
MARGRÉT BJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
Klukkuvöllum 26b,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu fimmtudaginn
26. nóvember í faðmi fjölskyldunnar.
Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 8. desember
klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu
aðstandendur viðstaddir.
Athöfnin verður í streymi sem nálgast má á www.mbl.is/andlát.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingvar Geir Guðbjörnsson
Helga Baldursdóttir
Sigurbjörn E. Ingvarsson Silja Embla Þórisdóttir
Kristbjörg Helga Ingvarsd. Ellert Jósteinsson
Hjörtur Már Ingvarsson
barnabörn
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur
og bróðir,
ÁKI SIGURÐSSON
rafiðnfræðingur,
Holtastíg 22, Bolungarvík,
lést miðvikudaginn 11. nóvember.
Útför frá Fossvogskirkju föstudaginn
4. desember klukkan 15.
Vegna aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur en
útförinni verður streymt á slóðinni:
https://www.facebook.com/groups/akisigurdsson/.
Ásta Ákadóttir Þorsteinn Elías Sigurðsson
Karl Davíð Ákason
Jakob, Alexandra og Ragnhildur afabörn
Sigurður Borgar Þórðarson Ásta Ákadóttir
Þórður, Nanna og Una, systkini Áka
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRDÍS INGA ÞORSTEINSDÓTTIR,
lést mánudaginn 30. nóvember á
Hjúkrunarheimilinu Mörk. Útförin fer fram
frá Vídalínskirkju föstudaginn
11. desember. Vegna aðstæðna verður einungis nánasta
fjölskylda viðstödd.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á minningarkort Hjúkrunarheimilisins
Markar.
Sigrún Jakobsdóttir Guðmundur Ó. Friðleifsson
Kristín Birna Jakobsdóttir Finnbogi Ingólfsson
Sveinbjörn Jakobsson Þórveig Árnadóttir
Guðrún Jakobsdóttir Júlíus Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
SIGURBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR,
lést í faðmi fjölskyldunnar föstudaginn
27. nóvember. Útförin fer fram mánudaginn
7. desember klukkan 15.
Vegna fjöldatakmarkana munu einungis nánustu aðstandendur
vera viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/ixQ2eB9mOyE
Anton Magnússon Svanhildur Karlsdóttir
Jónas Magnússon Chingmei Yang
Kristján Magnússon
Rut Magnúsdóttir Gísli Kr. Björnsson
Ingvar Magnússon Kristín Hrönn Gunnarsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
STEINUNN BJARNADÓTTIR,
Skipalóni 7, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 4. desember klukkan 13.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu geta aðeins nánustu
aðstandendur verið viðstaddir útförina.
Streymt verður frá útförinni á slóðinni www.streyma.is/utfor.
Aðstandendur vilja þakka starfsfólki Sólvangs fyrir einstaka
umhyggju og alúð.
Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson
Bjarni Þór Gunnlaugsson Sigríður Sigurðardóttir
Kristín F. Gunnlaugsdóttir
Silja Rún Gunnlaugsdóttir Friðrik Guðjón Sturluson
barnabörn og barnabarnabörn