Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 62
Litríkur Bubbi við sýningargluggann í Kringlunni þar sem verkin eru sýnd. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Eftirprentanir í takmörkuðu upp- lagi af frumútgáfum nokkurra þekktra lagatexta Bubba Morthens eru nú til sölu á vefsíðu hans, bubbi.is, og stendur nú yfir sýning á völdum verkum í Kringlunni. Bubbi segir forsögu útgáfunnar þá að hann hafi fundið dagbækur sínar frá árunum 1974-1988 sem höfðu að geyma hina ýmsu frum- texta. Hann nefnir sem dæmi text- ann við lagið „Rómeó og Júlíu“ sem hann hafi samið þegar hann var í meðferð á Staðarfelli í Dölum árið 1985 og textann við „Blindsker“ sem hann hafi samið að stórum hluta í eldhúsinu hjá Franklín Steiner, „kaupmanninum á horn- inu“. Bubbi nefnir einnig textann við „Ísbjarnarblús“ frá árinu 1974 sem hann kláraði nokkrum árum síðar. Beint af kúnni „Þetta er auðvitað bara skrifað af kúnni með stafsetningarvillum af því ég er skrifblindur en er samt ógeðslega flott. Þetta er ég að vinna í eftirprentanir á gríðarlega flottan bómullarpappír og Ámundi Sig- urðsson hönnuður hefur verið að vinna þetta með mér. Við erum að setja þetta bæði í lit og hvítt og svart og í ramma með gleri,“ segir Bubbi. – Þetta eru þá í rauninni mynd- listarverk? „Já, já, þetta eru myndlistar- verk,“ svarar Bubbi, „og þegar þetta er komið í svona form er þetta alveg helvíti flott, þó ég segi sjálfur frá.“ Hver mynd er handskorin og sér- stakir rammar hafa verið og verða smíðaðir utan um verkin. Glampa- frítt glerið í þeim hrindir frá sér út- fjólubláu ljósi og ver því verkið fyr- ir slíkum geislum. Verkin eru prentuð stafrænt og er prentunin vottuð af Digigraphie sem ein sú besta sem völ er á í heimi stafrænt prentaðrar myndlistar. Frekari fróðleik má finna um þá vottun á di- gigraphie.com. Bubbi segist ætla að sýna nokkur verk í sýningarglugga í Kringlunni en verkin verða seld í númeruðum eintökum. Ellefu textabrot í lit verða seld í 25 eintökum hvert og tíu textabrot með hvítum bakgrunni verða seld í 50 eintökum hvert. Árituð og vottuð Verkin verða árituð af Bubba og kaupendur fá einnig vottunarbréf þar sem fram kemur að verkið sé upprunaleg prentun og að viðkom- andi hafi keypt það. Bubbi segir að frágangur verkanna verði með þeim hætti að ómögulegt verði að falsa þau. Bubbi segir verkin mörg og ólík og nefnir sem dæmi stuttar setningar úr „Rómeó og Júlíu“ á borð við „Uppi í risinu sérðu lítið ljós“. „Úr hverjum texta eru nokkur verk,“ útskýrir Bubbi og að kaup- endur fái verkin innrömmuð. Aftur í stílabækurnar Bubbi segist hafa skrifuð fyrstu drög að textunum fyrir „Serbann“ og „Laugardagsmorgun“ í sömu dagbók sem hann hafi keypt í Portú- gal og „Rómeó og Júlíu“ og „Blind- sker“ hafi hann skrifað í dagbók sem hann tók með sér á Staðarfell. Í þá bók skrifaði hann ekki aðeins dag- bókarfærslur heldur einnig hug- myndir og lagatexta. Bubbi er spurður að því hvort hann gangi alltaf með bók á sér til að hripa niður hugmyndir og texta og segist hann alltaf gera það þegar hann sé að fara eitthvað. Síminn hafi nú tekið við hlutverki minnis- og dagbóka. „Ég sendi sjálfum mér stöðuga pósta sem er ekki eins skemmtilegt. Þannig að eftir að ég fann þessar bækur ákvað ég að byrja aftur að flakka um með stíla- bækur, það er miklu skemmtilegra,“ segir Bubbi. „Helvíti flott, þó ég segi sjálfur frá“ Sígilt Nokkur verk unnin upp úr texta við lagið „Rómeó og Júlía“. Blár Bútur úr texta lagsins Ísbjarnarblús af samnefndri plötu Bubba.  Vandaðar eftirprentanir á frumútgáfum þekktra lagatexta Bubba Morthens seldar í takmörk- uðum upplögum  Áritaðar, vottaðar, innrammaðar og verndaðar fyrir útfjólubláu ljósi 62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020 Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is JÓLAPERLUR Vefuppboð nr. 513 Jónas Viðar vefuppboð til 9. desember Karólína Lárusdóttir Forsýning á verkunum hjá Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is Fold uppboðshús kynnir Í tilefni af 90 ára afmæli Ríkisút- varpsins verða allir lestrar Hall- dórs Laxness, sem til eru í safni RÚV, gerðir aðgengilegir almenn- ingi í spilaranum á RÚV.is og má einnig nálgast þá í hlaðvarps- veitum undir nafninu Halldór Lax- ness og RÚV, að því er fram kem- ur í tilkynningu. Lestrarnir eru færðir þjóðinni að gjöf í samstarfi við Guðnýju Halldórsdóttur og Sigríði Halldórsdóttur, dætur nób- elsskáldsins. Af sama tilefni verð- ur nýr þáttur, Dyravörður hjá víð- varpinu, gerður aðgengilegur í spilaranum og í hlaðvarpi og verð- ur hann einnig á dagskrá Rásar 1 annan dag jóla klukkan 9.05. Í þættinum er fjallað um samskipti Halldórs og Ríkisútvarpsins og er umsjónarmaður hans Halldór Guð- mundsson. Halldór Laxness starfaði á Ríkisútvarpinu sem ungur maður og átti í margháttuðum sam- skiptum við stofnunina, segir í til- kynningu og var grein Halldórs Guðmundssonar um það efni birt á menningarvef RÚV 1. desember. „Það er afar viðeigandi að fagna þessum tímamótum í sögu Ríkis- útvarpsins með því að veita að- gang að þessum dýrgripum úr safni okkar og rifja um leið upp samskipti Halldórs Laxness við Ríkisútvarpið þar sem greinilega gekk á ýmsu. Ég vil sérstaklega þakka systrunum Guðnýju og Sig- ríði og öðrum afkomendum skáldsins þeirra hlýhug í garð Ríkisútvarpsins og þjóðarinnar allrar sem nú fær að njóta upp- lestra hans með þessum hætti,“ er haft eftir Stefáni Eiríkssyni út- varpsstjóra í tilkynningunni. Skáldið Halldór starfaði hjá Rík- isútvarpinu sem ungur maður. Allir lestrar Laxness aðgengilegir á RÚV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.