Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020
Allir verðandi foreldrar óskaþess að ófætt barn þeirraverði heilbrigt og hraust.
Þegar von er á barni eru konur
oft tilbúnar að endurskoða dag-
legar venjur og gera breytingar á
lífi sínu. Þær eru í nýjum að-
stæðum og eru að hugsa um vel-
ferð og heilsu barnsins sem þær
ganga með. Þær eru líka að hugsa
um sína eigin heilsu og að með-
gangan og fæðingin geti gengið
sem best.
Í mæðravernd er meðal annars
rætt um tóbaksnotkun og ávinn-
inginn af því að hætta að nota
tóbak.
Hér eru nokkur dæmi um hvað
gerist þegar tóbaksnotkun er
hætt:
Á meðgöngu
Meiri líkur eru á að blóðflæði
um fylgju til barnsins verði gott
og að barnið fái nægilegt súrefni.
Minni líkur eru á fósturláti.
Minni líkur eru á því að barnið
fæðist andvana.
Minni líkur eru á að barnið
fæðist fyrir tímann.
Meiri líkur eru á að barnið vaxi
eðlilega í móðurkviði og að það
nái þeirri stærð sem því er ætlað
frá náttúrunnar hendi.
Í fæðingu
Meiri líkur eru á að barnið þoli
fæðinguna betur ef það er gott
blóðflæði um fylgjuna og nægj-
anlegur súrefnisflutningur til
barnsins.
Minni hætta er á því að barnið
lendi í streitu í fæðingu sem þá
getur valdið inngripum eins og
sogklukku eða keisaraskurði.
Eftir fæðingu
Meiri líkur eru á að brjóstagjöf
gangi vel. Tóbaksnotkun dregur
úr myndun brjóstamjólkur.
Minni líkur eru á óværð fyrstu
dagana eftir fæðingu sem rekja má
til þess að barnið er með frá-
hvarfseinkenni og er að kalla eftir
nikótíni.
Minni líkur eru á vöggudauða.
Barnið fær síður ofnæmi, astma
eða önnur lungnavandamál.
Hér eru nokkur ráð
til tóbaksleysis:
Skráðu niður það jákvæða fyrir
þig við að hætta og einblíndu á það
fremur en það sem er neikvætt og
erfitt.
Settu þér markmið. Það geta
verið langtímamarkmið eða
skammtímamarkmið. Það geta
jafnvel verið markmið fyrir hálfan
dag í einu og ný markmið fyrir það
sem eftir er af deginum.
Ef þú hefur áður reynt að hætta
er gott að fara yfir það sem gekk
vel og hvað betur má fara með það
í huga að halda tóbaksbindindi.
Tóbaksnotkun er oft tengd ein-
hverskonar vana. Það er mikilvægt
að rjúfa þau tengsl.
Fáðu stuðning einhvers nákom-
ins. Reynslan hefur sýnt að stuðn-
ingur maka skiptir miklu.
Barnshafandi konur sem nota tób-
ak eru hvattar til að leita sér að-
stoðar og stuðnings við að hætta
eða minnka tóbaksnotkun og eru
ljósmæður í mæðraverndinni til-
búnar að veita þann stuðning.
Hjá Ráðgjöf í reykbindindi í síma
800-6030 eru hjúkrunarfræðingar
sem eru sérstaklega þjálfaðir og
með mikla reynslu af því að að-
stoða fólk við að hætta að nota tób-
ak.
Á heilsuvera.is undir meðganga og
fæðing er aðgengilegt fræðsluefni
um tóbak og meðgöngu, m.a.
myndbandið Nýtt líf án tóbaks
með viðtölum við ljósmóður, fæð-
ingar- og nýburalækni.
Best er að hætta alveg að nota tób-
ak á meðgöngu, en hafa ber í huga
að ef tekst að draga úr tóbaks-
notkun er það alltaf ávinningur
fyrir verðandi móður og barn.
Það er aldrei of seint að hætta.
Líf án tóbaks er mikilvægt
á meðgöngutímanum
Morgunblaðið/Ásdís
Barnshafandi Best er að hætta alveg að nota tóbak á meðgöngu, en ef tekst
að draga úr tóbaksnotkun er það alltaf ávinningur fyrir verðandi móður.
Morgunblaðið/Eggert
Eitur Auknar líkur eru á að blóðflæði um fylgju til barns verði gott og að
barnið fái nægt súrefni ef móðir nota ekki tóbak meðan barn er undir belti.
Heilsusráð
Karitas Ívars-
dóttir ljósmóðir
og Jón Steinar
Jónsson yfir-
læknir á Þróun-
armiðstöð íslenskrar heilsugæslu
Unnið í samstarfi við Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins.
Stúdentaráð Háskóla Íslands býður á
morgun, 4. desember kl. 18, til hátíð-
arhalda í tilefni af aldarafmæli ráðs-
ins. Hátíðin verður í hátíðarsal aðal-
byggingar Háskóla Íslands og henni
streymt á netinu.
Afmælið markar stór tímamót í
hagsmunabaráttu stúdenta, sem hef-
ur sett svip sinn á samfélagið í heild
sinni frá því að stúdentar gengu fyrst
til kosninga í desember árið 1920.
Stúdentaráð er um þessar mundir að
vinna að heimildarþætti um sögu
ráðsins í samstarfi við Háskóla Ís-
lands, RÚV og Landsbankann. Verður
sýnishorni brugðið upp á hátíðinni.
Heiðursgestir eru Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Íslands, sem opnar
hátíðina, Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra og Lilja D. Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra. Isabel Alej-
andra Díaz, forseti Stúdentaráðs, og
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla
Íslands, munu einnig ávarpa gesti.
Streymið frá hátíðinni er á live-
stream.com/hi.
Stúdentaráð HÍ 100 ára
Stór tímamót
Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa
markaða, afhenti á dögunum Héðni
Unnsteinssyni, formanni Geðhjálpar,
12,6 milljónir króna, afrakstur Takk-
dagsins 26. nóvember sl. Þann dag
runnu allar þóknanatekjur fyrir-
tækisins vegna viðskipta til góðs
málefnis. Auk Fossa markaða tóku
Kauphöllin og uppgjörsfyrirtæki þátt
í framtakinu með sömu eftirgjöf.
„Algjör einhugur var um það hjá
starfsfólki Fossa að afrakstur Takk-
dagsins í ár rynni til Geðhjálpar og að
við legðumst þar með á árarnar með
þeim sem stuðla með beinum hætti
að bættri geðheilsu fólks. Nú sem
aldrei fyrr þarf að huga að geðheil-
brigðinu og veita öflugan stuðning
við áskoranir,“ segir Haraldur.
Styrkja Geðhjálp
Takk hjá Fossum
Góðir Haraldur Þórðarson frá Foss-
um, t.v., og Héðinn Unnsteinsson.
Lesið vandlega upplýsingarnar á g
fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsing-
um um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Ibuprofen Bril
umbúðum o
Á hreint brilliant verði!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
400 mg töflur - 30 stk og 50 stk
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Eigum alltaf vinsælu
velúrgallana í mörgum litum.
Einnig stakar svartar velúrbuxur
Stærðir S-4XL
Til jóla
fyrir dömur og herra
Ilmir • Gjafakassar • Silkislæður
Hanskar • Töskur • Skart
Herra- og dömutreflar
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is