Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 59
Hvítari tennur – bjartara bros NuPearl®32x Advanced Teeth Whitening er sérlega auðvelt í notkun. Mjúkur sílikon gómur, Led ljós, hvíttunarefni og hvíttunarpenni saman í kassa og svo er hægt að kaupa áfyllingar Náttúruleg innihaldsefni og jurtir. ■ Getur hvíttað um allt að 8 tóna ■ Lýsir bletti á tönnum sem myndast með árunum vegna kaffdrykkju, reykinga, víns ofl. ■ Öruggt fyrir glerunginn og extra milt vegna náttúrulegra innihaldsefna og jurta. ■ Hentar einnig viðkvæmum tönnum ■ Mælt með af tannlæknum Útsölustaðir: Flest apótek. Hvað er betra en að getanotið lífsins á aðventunnimeð fjölskyldu, vinum og kunningjum en þetta er sá tími sem við leyfum okkur ýmislegt í mat og drykk og gleðjumst saman. Flest okkar könnumst við að borða svolítið of mikið af allskonar og fyrir vikið verðum við uppþembd, fáum óþægindi í magann og aukin vindgang. Þetta „mikið af allskonar“ getur reynst meltingunni erfitt og jafnvægi þarmaflórunnar raskast líka. Í raun getur aðventugleðin sett allt á annan endan sem skilar sér svo í verra heilsufari, sleni og þreytu sem hellist yfir okkur í janúar. Leyfum okkur að njóta Í einföldu máli þá getum við gert meltingunni okkar og líkamanum stóran greiða með því að taka inn bæði ensím og mjólkursýrugerla reglulega og passa það sérstaklega vel núna í desember. Meltingarensím sem tekin eru inn með stórum máltíðum eða mat sem við þolum illa geta losað okkur við öll meltingarónot og við verðum orkumeiri fyrir vikið á meðan mjólkursýrugerlar (probiotics) viðhalda og styrkja þarmaflóruna en hún er undirstaða ónæmiskerfisins og tengist bæði líkamlegri og andlegri heilsu okkar sterkum böndum. Sykurpúkinn Sykurpúkinn gerir víða vart við sig núna en þó svo að mörgum takist að halda honum innan skynsamlegra marka breytir það því ekki að allur sykur hefur áhrif á heilsuna okkar og getur m.a. komið ójafnvægi á þarmaflóruna. Ef það verður ójafnvægi og það dregur úr vexti heilbrigðra baktería myndast kjöraðstæður fyrir þær óæskilegu og er candidasveppurinn þá ofarlega á blaði. Það getur lýst sér sem:  Meltingatruflanir  Uppþemba  Óeðlilegar hægðir  Húðvandamál  Sveppasýkingar (sérstaklega hjá konum)  Tímabundið ofnæmi  Andleg þyngsli Þegar þarmaflóran er ekki í toppstandi er ónæmiskerfið okkar það ekki heldur og líkur á kvefi og pestum eykst. Líferni okkar í dag skilar sér því fljótlega í verra heilsufari ef við göngum ekki gætilega um gleðinnar dyr. Leyfðu þér að njóta Hver kannast ekki við að verða þreyttur eftir þunga máltíð? Sumir fá líka óþægindi, uppþembu og vindverki en þetta tengist að öllum líkindum skorti á meltingarensímum. Stundum gerist það að líkaminn getur ekki virkjað ákveðin ensím. Það er t.d. ef að við borðum of mikið og/eða að samsetning matarins er slæm en þá nær líkaminn ekki að „lesa skilaboðin rétt“. Þetta getur valdið vandamálum hjá fjölmörgum. Ekki bara magaónotum, þreytu eða öðrum kvillum, heldur getur það gerst að við fáum ekki þá næringu sem maturinn (eða bætiefnin) á að skila okkur. Meltingarensímin frá Enzymedica hafa svo sannarlega slegið í gegn hér á landi og fjölmargir geta ekki án þeirra verið. Þau eru tekin inn með mat og það er einnig hægt að taka þau eftir matinn ef meltingartruflanir gera vart við sig. Margir tala um að sofa betur þegar þeir taka ensímin með matnum og getur það vel passað þar sem meltingin getur haft ótrúleg áhrif á svefninn þó svo að við finnum ekki beint fyrir því. Það besta er að allir geta tekið ensím og aðeins eitt hylki af Digest getur dugað. Það má taka með öllum máltíðum eða eftir hentugleika og fyrir þá sem eiga við fjölþætt meltingarvandamál að stríða, er ráð að taka inn Digest Gold sem er öflugasta varan sem til er á markaðnum. Hverjir þurfa meltingarensím? Afleiðingar vegna skorts á meltingarensímum geta verið víðtæk og hugsanlega finnum við fyrir öðrum einkennum en meltingarónotum. Einkenni skorts á ensímum geta verið:  Brjóstsviði  Vindverkir  Uppþemba  Kviðverkir & ógleði  Bólur  Nefrennsli  Krampar í þörmum  Ófullnægt hungur  Exem  Höfuðverkur  Skapsveiflur  Liðverkir  Húðkláði  Húðroði  Svefnleysi Ólíkt mjólkursýrugerlum sem eru aðallega staðsettir í þörmunum og viðhalda bakteríuflórunni, notum við meltingarensím til að brjóta niður fæðuna og gera hana klára svo hægt er að taka upp næringuna í þörmunum. Ensímin gera það líka að verkum að auðveldara er fyrir okkur að losa frá okkur hægðir. Gerlar til góðs Bio Kult Original inniheldur öfluga blöndu af vinveittum gerlum sem geta haft góð áhrif á meltinguna. 14 mismunandi gerlastrengir geta hjálpað til við að byggja upp vinveittu þarmaflóruna og koma á jafnvægi sem er gríðarlega mikilvægt. Inntaka á góðgerlum er talin nánast undantekningarlaust til góðs fyrir okkur og að taka tvöfaldan skammt af Bio Kult Original í jólamánuðinum getur verið mikil heilsbót. Gleðilega meltingu! Til að gera aðventuna sem ánægjulegasta er upplagt að taka tvöfaldan skammt af mjólkursýrugerlum og taka meltingaensím á matmálstímum eða með þungum máltíðum og þegar við teljum þess þörf. Við njótum betur,okkur líður betur og við getum tekið vel á móti nýju ári, full orku og gleði . Hamingjan Við skulum ávallt hafa í huga hvað það skiptir miklu máli að vera eins heilbrigður á sál og líkama og okkur er fært. Við getum haft áhrif á ansi margt og það er til a.m.k. ein uppskrift sem er alltaf í gildi og það sem meira er, hún er gríðarlega góð fyrir heilsuna. Hún kostar ekkert og hún gerir öllum gott. 2 bollar af ást 2 bollar af trausti 4 bollar af tíma, næði og ró 4 bollar umhyggja 4dl húmor 175g vinátta 1 1/2 dl fyrirgefning, gefin og þegin 3 stórar matskeiðar af virðingu 2 tsk. gagnkvæmur skilningur 2 tsk. jákvæðni Stór slatti af hrósi Gleðilega hátíð! Sölustaðir: Apótek, heilsubúðir og heilsuhillur stórmarkaða. Núna er tíminn til að lifa og njóta Meltingarensím ogmjólkursýrugerlar hjálpa okkur að njóta lífsins á aðventunni þannig að okkur líði vel og að auðvelt verði að hefja nýtt ár af krafti, heilbrigð á sál og líkama. Allir ættu að geta notið matar og drykkjar í góðra vina hópi og þá getum við gert meltingunni okkar og líkamanum stóran greiða með því að taka inn bæði ensím ogmjólkursýrugerla reglulega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.