Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 56
Þorgerður H. Þorvaldsdóttir Kjartan Ólafsson Kristín Svava Tómasdóttir Pétur H. Ármannsson Sumarliði Ísleifsson Ragnheiður Kristjánsdóttir Gísli Pálsson Arndís Þórarinsdóttir Elísabet Kristín Jökulsdóttir Hulda Sigrún Bjarnadóttir  Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2020 í þremur flokkum  Alls voru 144 bækur lagðar fram í ár  Arndís Þórarinsdóttir tilnefnd í tveimur flokkum  Verðlaunin afhent á nýju ári Fimmtán bækur tilnefndar Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Tilnefningar til Íslensku bókmennta- verðlaunanna 2020 voru kynntar í sjónvarpsþættinum Kiljunni á RÚV í gærkvöldi. Tilnefnt er í flokki fræði- bóka og rita almenns efnis, barna- og ungmennabóka og fagurbókmennta, en fimm bækur eru tilnefndar í hverjum flokki. Alls voru 15 bækur tilnefndar eftir 18 höfunda. Í fyrsta sinn í sögu verðlaunanna er sami höf- undur tilnefndur í tveimur flokkum sama árið, en Arndís Þórarinsdóttir er bæði tilnefnd í flokki barna- og ungmennabóka og í flokki fagur- bókmennta. Eftir því sem blaðamað- ur kemst næst hefur það aðeins einu sinni áður gerst að höfundur fékk tvær tilnefningar sama árið, en það var þá í sama flokki því árið 2016 var Hildur Knútsdóttir tilnefnd fyrir tvær bækur í flokki barna- og ungmennabóka. Nýjar dómnefndir starfandi Sú nýbreytni var tekin upp í ár að dómnefndir skila stuttri umsögn um allar tilnefndu bækurnar og má lesa umsagnirnar hér fyrir neðan. Önnur nýbreytni í ár var að Félag íslenskra bókaútgefenda, sem stendur fyrir verðlaununum, aug- lýsti síðsumars eftir einstaklingum á ólíkum aldri, með fjölbreyttan bakgrunn og menntun, til að velja athyglisverðustu bækur ársins í dómnefnd Íslensku bókmennta- verðlaunanna. Samtals bárust 273 umsóknir frá áhugasömum bóka- unnendum. Alls sóttu 55 karlar (20% umsækjenda) og 218 konur (80% umsækjenda) um að gegna dómnefndarstörfum. Elsti umsækj- andi var 80 ára og sá yngsti 10 ára, en meðalaldur umsækjenda var 43 ár. Umsækjendur gátu sótt um að komast í eina eða fleiri nefndir. Alls 131 sótti um að vera í dómnefnd fræðibóka og rita almenns efnis; 165 sóttu um að vera í dómnefnd barna- og ungmennabóka og 207 sóttu um að vera í íslensku skáld- verkanefndinni. Nöfn þeirra sem urðu fyrir valinu má sjá hér aftar í greininni. Formenn dómnefndanna þriggja, sem valið hafa tilnefningarnar, munu koma saman ásamt Ingunni Ásdísardóttur, sem er forseta- skipaður formaður, og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk, sem Félag íslenskra bókaútgefenda kostar. Verðlaunin verða afhent í 32. sinn um mánaðamótin janúar- febrúar á komandi ári af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Tilnefningar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis Eftirfarandi höfundar eru til- nefndir í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:  Erla Hulda Halldórsdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Ragn- heiður Kristjánsdóttir og Þorgerður H. Þorvaldsdóttir fyrir Konur sem kjósa – aldarsaga sem Sögufélag gefur út. „Bókin er afrakstur mikilvægrar og vandaðrar fræðilegrar rann- sóknar á jafnréttisbaráttunni á Íslandi í 100 ár, en einnig á stjórn- mála- og menningarsögunni. Upp- setning bókarinnar er áhugaverð og hönnunin nýstárleg þar sem fjöldi ljósmynda, veggspjalda og úrklippa eru notaður til að gæða söguna lífi.“  Gísli Pálsson fyrir Fuglinn sem gat ekki flogið sem Mál og menning gefur út. „Aldauða dýrategunda hefur ekki verið gefinn mikill gaumur til þessa hér á landi. Því er mikill fengur að þessari bók, sem beinir sjónum okkar m.a. að útrýmingarhættu og margvíslegum umhverfisvanda sem við stöndum frammi fyrir. Geirfugla- bækur tveggja breskra fræðimanna sem héldu í Íslandsleiðangur 1858 og höfundur hefur rannsakað í þaula varpa nýju ljósi á sögu og örlög síð- ustu geirfuglanna við strendur landsins.“  Kjartan Ólafsson fyrir Draumar og veruleiki – Um Komm- únistaflokkinn og Sósíalistaflokkinn sem Mál og menning gefur út. „Verkið er yfirgripsmikið og varpar áhugaverðu ljósi á stjórn- mála- og stéttasögu vinstri manna hér á landi á 20. öldinni af miklu innsæi og hreinskilni. Um er að ræða tímamótarit þar sem nýjar og áður óaðgengilegar heimildir eru nýttar.“  Pétur H. Ármannson fyrir Guðjón Samúelsson húsameistari sem Hið íslenska bókmenntafélag gefur út. „Vandað og löngu tímabært ritverk um fyrsta Íslendinginn sem lauk há- skólaprófi í byggingarlist á síðustu öld. Líf Guðjóns Samúelssonar húsa- meistara var helgað starfi hans og list. Saga hans og ævistarfsins er vel og skilmerkilega rakin í bókinni. Höf- undur byggir á víðtækum rann- sóknum sínum og djúpum skilningi á viðfangsefninu. Fjölmargar myndir og uppdrættir prýða bókina.“  Sumarliði R. Ísleifsson fyrir Í fjarska norðursins: Ísland og Græn- land – viðhorfasaga í þúsund ár sem Sögufélag gefur út. „Höfundi tekst að færa lesendum efni rannsóknar sinnar á mjög aðgengilegan og skýran hátt, þar sem hann varpar ljósi á rúmlega 1000 ára viðhorfasögu gagnvart íbúum þessara eyja. Bókin er glæsilegt og eigulegt rit, fallega hönnuð og vel myndskreytt.“ Dómnefndina skipuðu Björn Pétursson, Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir og Einar Örn Stefánsson, sem var formaður nefndarinnar. Tilnefningar í flokki barna- og ungmenna- bóka Eftirfarandi höfundar eru til- nefndir í flokki barna- og ungmennabóka:  Arndís Þór- arinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir fyrir Blokkin á heimsenda sem Mál og menning gefur út. „Frumleg og athyglisverð bók. Fyndin og áreynslulaus frásögn með snjöllum lausnum sem bera hug- myndaauðgi höfunda glöggt vitni. Mikilvægi samheldni og vináttu er ákveðið meginstef í sögu sem deilir með sterkum hætti á neysluhyggju Vesturlanda. Loftslagsváin er allt- umlykjandi en sterkum boðskapnum er aldrei þröngvað upp á lesandann heldur er hann borinn snyrtilega fram með húmor í aðalhlutverki.“  Hildur Knútsdóttir fyrir Skógurinn sem JPV útgáfa gefur út. „Djúp og afar vel skrifuð spennu- saga um úthugsaða ævintýraveröld sem höfundur hefur lagt mikla vinnu í að skapa og gera trúverðuga, með heillandi vangaveltum um vísindin og hið yfirnáttúrulega. Lesandinn er rækilega minntur á hvernig nútíma lifnaðarhættir gætu leitt mannkynið á glapstigu, án þess að boðskapurinn yfirtaki skemmtilega og oft æsi- spennandi atburðarás.“  Kristín Björg Sigurvinsdóttir fyrir Dulstafir – Dóttir hafsins sem Björt – Bókabeitan gefur út. „Áhrifarík bók þar sem höfundur dregur upp ljóslifandi mynd af full- sköpuðum ævintýraheimi. Sorg og missi eru gerð falleg skil sem og leit- inni að hugrekki og innri styrk. Frá- sögnin er örugg, lýsandi og afar myndræn en þó skilur höfundur eftir rými til túlkunar og lesturs á milli línanna. Framhaldsins verður beðið með eftirvæntingu.“  Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir fyrir Grísafjörður sem Salka gefur út. „Hlý og afar skemmtileg saga, raunsæ en þó með heillandi ævin- týrablæ. Saga um hversdagsleikann með öllum sínum áskorunum og fólk- ið sem skiptir okkur mestu máli, en líka vináttu úr óvæntri átt, hjálpsemi og það að engum er alls varnað. Vandaðar myndir höfundar bæta heilmiklu við söguna ásamt fallegum frágangi og sniðugum fylgihlutum.“  Yrsa Sigurðardóttir fyrir Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin sem Veröld gefur út. „Heilsteypt og drepfyndin bók þar sem einstakt hugmyndaflug fær að blómstra. Óhefðbundinn sögumaður nýtur sín afar vel í bráðsniðugum lýsingum höfundar á tilfinningalífi hans og sýn á heiminn. Skemmtileg ærslasaga með klassískan boðskap um gildi sannrar vináttu. Einfaldar en stórskemmtilegar myndir falla vel að textanum og gera söguna enn betri.“ Þess má geta að Kristín Sól Ólafs- dóttir gerði myndirnar. Dómnefndina skipuðu Einar Eysteinsson, Katrín Lilja Jónsdóttir og Hrund Þórsdóttir, sem var for- maður nefndarinnar. Tilnefningar í flokki fagurbókmennta Eftirfarandi höfundar eru til- nefndir í flokki skáldverka:  Arndís Þórarinsdóttir fyrir Inn- ræti sem Mál og menning gefur út. „Í þessari fyrstu ljóðabók Arn- dísar Þórarinsdóttur er að finna leiftrandi lýsingarnar á meitluðum og frumlegum efnistökum sem skilja mikið eftir sig.“  Auður Ava Ólafsdóttir fyrir Dýralíf sem Benedikt bókaútgáfa gefur út. „Heimspekilegar vangaveltur um lífið, dauðann og mannskepnuna sem dýrategund einkennir þessa sjöundu skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur. Persónusköpunin í þessum fallega texta er bæði heillandi og eftir- minnileg.“  Elísabet Kristín Jökulsdóttir fyrir Aprílsólarkuldi sem JPV útgáfa gefur út. „Aprílsólarkuldi er tilfinningarík og ljóðræn frásögn um föðurmissi, ást, sorg og geðveiki. Næmi Elísa- betar Jökulsdóttur sem sést hefur í ljóðum hennar skilar sér vel í skáld- sagnaforminu.“  Jónas Reynir Gunnarsson fyrir Dauði skógar sem JPV útgáfa gefur út. „Jónas Reynir Gunnarsson tæpir á helstu málum samtímans í þessari þriðju skáldsögu sinni. Fjallað er á margræðan hátt um tengsl náttúru og manns, innri átök hans og hið óumflýjanlega í tilverunni.“  Ólafur Jóhann Ólafsson fyrir Snerting sem Veröld gefur út. „Í Snertingu eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er dregin upp sannfærandi mynd af samfélaginu og aðstæðum fólks af ólíkum uppruna. Nútíð og fortíð er listilega fléttað saman þann- ig að úr verður skáldsaga sem skiptir máli.“ Dómnefndina skipuðu Guðrún Lilja Magnúsdóttir, Hildur Ýr Ísberg og Jóhannes Ólafsson, sem var formaður nefndarinnar. Sex verið tilnefnd áður Samkvæmt upplýsingum frá Félagi íslenskra bókaútgefenda voru í ár samtals lagðir fram 144 titlar frá 36 útgefendum í öllum þremur flokk- um. Í flokki fræðibóka og rita almenns efnis voru lögð fram 37 verk frá 20 útgefendum. Í flokki barna- og ungmennabóka voru lögð fram 46 verk frá 17 útgefendum. Í flokki skáldverka var lagt fram 61 verk frá 18 útgefendum. Alls hafa sex af þeim 18 höfundum sem nú eru tilnefndir fengið tilnefn- ingar áður. Þetta eru þau Pétur H. Ármannsson fyrir Gunnlaugur Hall- dórsson arkitekt 2014; Sumarliði R. Ísleifsson fyrir Líftaug landsins – Saga utanlandsverslunar 900-2010 árið 2017; Arndís Þórarinsdóttir fyrir Nærbuxnanjósnararnir 2019; Hildur Knútsdóttir fyrir Nornin 2019, Ljónið 2018 og Vetrarfrí 2015, en hún var tilnefnd ásamt Þórdísi Gísladóttur fyrir Dodda – bók sann- leikans 2016 og hlaut verðlaunin fyrir Vetrarhörkur 2016; Auður Ava Ólafsdóttir fyrir Ungfrú Ísland 2018 og Undantekningin 2012, en hún hlaut verðlaunin fyrir Ör 2016 og Ólafur Jóhann Ólafsson fyrir Fyrirgefning syndanna 1991, en hann hlaut verðlaunin fyrir Aldin- garðurinn 2006. Alls hafa því þrír höfundar í hópi tilnefndra hlotið verðlaunin áður. Ólafur Jóhann Ólafsson Arndís Þórarinsdóttir Hildur Knútsdóttir Auður Ava Ólafsdóttir Yrsa Sigurðardóttir Kristín Björg Sigurvinsdóttir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Erla Hulda Halldórsdóttir Jónas Reynir Gunnarsson Tilnefningar í flokki fagurbókmennta Tilnefningar í flokki barna- og ungmennabóka Tilnefningar í flokki fræði- bóka og rita almenns efnis 56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020 NETKAST 7.- 12. okt. Outdoor Ultra Verð 17.995.- / Stærðir: 36,5-41 HLÝIR OGVATNSHELDIR DÖMU KULDASKÓR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.