Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020 FULLKOMIN BLANDA fyrir notalegasta tíma ársins Búrókratar ESB reyna að komaillu blóði inn í samninga- viðræður við Breta og leitast þeir ekki síst við að nýta tilhögun fisk- veiða í því sambandi.    En þærtil- raunir gætu hitt þá sjálfa fyrir.    Fulltrúar Íra á spjallþingi ESBtelja að tilburðir samninga- liðs búrókrata muni að lokum koma sér illa fyrir Íra.    Þegar ljóst væri orðið að gömlusvikasamningarnir um fisk gengju til baka með útgöngunni yrðu Írar skyndilega best settir af öllum aðildarþjóðum ESB.    Þær alþjóðlegu lagareglur semtaka til veiðiheimilda leggja leikreglurnar á milli þeirra ríkja sem eiga sannanlegan rétt, eins og við Íslendingar þekkjum svo vel.    Heimaríkið Bretar mun þá hafaríkastan rétt, en staða Íra myndi styrkjast á kostnað ríkja eins og Frakklands og Spánar, sem knúðu fram „réttindi“ fyrir sig í kaupskap um aðild Breta forðum.    Á slíku gætu þau ekki staðiðþegar útgönguniðurstaðan lægi fyrir, eða útganga yrði án samnings, sem gæti verið besti kosturinn fyrir Breta.    Þess vegna hefur tónninn breystí írskum þingmönnum sem eru að átta sig á að í þessum efn- um sem öðrum eigi þeir æ minni hagsmuni af því að hanga aftan í ESB. Fiskur kemur enn við sögu STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ákveðið hefur verið að hefja viðræður við fasteignafélagið Íþöku ehf. um leiguhúsnæði fyrir Skattinn og skattrann- sóknarstjóra. Íþaka býður fram húsnæði við Katrínartún 6, í húsi sem stendur til að reisa á lóðinni á næstu miss- erum. Ef samningar takast þurfa starfsmenn ekki að flytja langar vegalengdir því Skatturinn er nú til húsa á Laugavegi 166 og skattrannsóknarstjóri í Borgartúni 7B. Ríkiskaup fyrir hönd ríkissjóðs auglýstu í sumar eftir leiguhúsnæði miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu fyrir nýj- ar höfuðstöðvar Skattsins og skattrannsóknarstjóra. Fimmtán fyrirtæki sendu inn tilboð, þar á meðal öll helstu fasteignafyrirtæki landsins. Húsnæðisþörfin var áætluð um 9.800 fermetrar. Fram kom í auglýsingu Ríkiskaupa að miðað sé við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 30 ára, fullbúið til notkunar með föstum innréttingum og búnaði, án lauss búnaðar. Framkvæmdasýsla ríkisins hef- ur umsjón fyrir hönd ríkissjóðs. Húsin á lóðinni verða rifin og nýtt hús byggt Á lóðinni við Katrínarún standa nú þrjú hús sem öll verða rifin. Tvö þau stærri eru Fossberghúsið svo og hús þar sem flugfélagið WOW air var með starfsemi um tíma og skartar bleikum lit félagsins. Í þeirra stað stendur til að byggja átta hæða atvinnuhús á lóðinni. Heildarstærð ofan- jarðar verður um 8.000 fermetrar. Gunnar Valur Gíslason framkvæmdastjóri Íþöku segist reikna með að niðurrif húsanna hefjist fljótlega á næsta ári. Eftir að húsin hafa verið fjarlægð verði farið í jarð- vinnu. Þegar jarðvinnu lýkur verði svo hafist handa við að reisa mót og steypa upp nýja mannvirkið. Gunnar segir að samkvæmt deiliskipulagi lóðar Höfða- torgs sé gert ráð fyrir sex húsum. Þar af er búið að byggja fimm; Borgartún 12-14 (sem hýsir skrifstofur Reykjavík- urborgar auk veitingahúsa o.fl. á jarðhæð), Þórunnartún 1 (hótel), Bríetartún 9-11 (íbúðarbygging með þjónustu- starfsemi á jarðhæð), Katrínartún 2 (Turninn, skrif- stofubygging með veitingastarfsemi o.fl. á jarðhæð), Katr- ínartún 4 (skrifstofubygging með þjónustustarfsemi á jarðhæð). Einungis á eftir að byggja síðasta húsið á lóðinni, skrif- stofubyggingu á Katrínartúni 6. Það er byggingin sem Íþaka ehf. bauð undir húsnæði fyrir Skattinn og skatt- rannsóknarstjóra ríkisins. Á Höfðatúnsreit er nú þegar að finna fjölbreytta starfsemi, svo sem banka, landlækni, þjóðkirkjuna og mörg svið Reykjavíkurborgar. Ný ríkisstofnun, Skatturinn, tók til starfa um síðustu áramót. Þá sameinuðust embætti tollstjóra og ríkisskatt- stjóra. Snorri Olsen ríkisskattstjóri stýrir stofnuninni. Í síðasta mánuði kynnti Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp um samein- ingu embættis skattrannsóknarstjóra og Skattsins. Starfsmenn Skattsins eru 478 á 15 starfsstöðvum víða um land, langflestir í Reykjavík. Starfsmenn skattrannsókn- arstjóra eru 28 talsins. Skatturinn í Katrínartún?  Rætt við Íþöku um hús sem á eftir að byggja Mynd/PK Arkitektar Katrínartún 6 Nýja húsið mun rísa á næstu misserum. Andrés Magnússon andres@mbl.is Skoðunarmenn nýbirts ársreiknings Pírata fyrir 2019 gera athugasemdir við að reikninga vanti í bókhaldið hjá flokknum fyrir 1,3 milljónir króna, þó ekki sé efað að útgjöldin eigi sér stoð. Þá gera skoðunarmennirnir einnig óvenjulega athugasemd við reksturinn hjá flokknum, að þeim þyki hann hafa verið heldur kostn- aðarsamur, ekki síst ef ætlunin sé að eiga einhvern sjóð að sækja í fyrir kosningarnar á komandi ári. Þá er fundið að því að ársreikn- ingsgerðin hafi dregist úr hömlu, en þessar aðfinnslur eru beinskeyttari fyrir það að kveðið er á um það í lög- um Pírata að bókhald flokksins skuli vera öllum opið á vefsíðu hans, upp- fært jafnóðum og samþykktir árs- reikningar sömuleiðis. Það er gert til samræmis við þá stefnu Pírata að bókhald hins opinbera sé birt og borgarar geti fylgst með því í hvað fjármunum þeirra sé varið. Það á enn frekar við í ljósi þess að 99,5% tekna Pírata koma úr vösum skattgreiðenda. Þær námu alls 78.446.731 krónu árið 2019, 96,1% kom úr ríkissjóði og 3,4% frá sveit- arfélögum. Félagsgjöld flokks- manna námu aðeins 0,5% af tekjum hans. Aðeins 34.600 kr. bárust sem frjáls framlög eða 0,04% teknanna. Reikninga vantar í bókhald Pírata  Athugasemdir við síðbúinn ársreikning  99% rekstrartekna frá hinu opinbera Ársreikningur Pírata fyrir 2019.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.