Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020 Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Allt til innpökkunar fyrir vefverslunina þína Arkir litaðar Strekkifilma Kraftpappír Pökkunarlímband Arkir hvítar Teyjur 50x75 cm arkir í mörgum litum Hvítar 40x60 cm arkir 10 kg. búnt 50 mm pökkunarlímband Kraftpappír í mörgum stærðum Strekkifilma Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Segðu hug þinn tæpitungulaust og þá muntu fá áheyrendur. Mundu bara að ábyrgð fylgir orði hverju og þá er þér ekk- ert að vanbúnaði. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú kemur með sérlega sannfærandi rök þegar þú þarft. Snöggt námskeið gæti hjálpað þér við að tileinka þér nýja færni sem sparar þér tíma. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Agi og erfiðleikar eiga sér sinn tíma og hann er ekki núna. Dagurinn í dag er kjörinn til þess að kenna eða aðstoða börn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nú virðist vera rétta tækifærið fyrir þig að koma málum þínum áfram. Reyndu þó að hafa ekki of mikið fyrir hlutunum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hafðu hemil á eyðslu þinni og fyrir alla muni haltu henni innan skynsamlegra marka. Reyndu líka að taka til hendinni heima fyrir sem best þú getur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki vera hræddur við tilfinningar þínar eða annarra. Andaðu djúpt, slakaðu á og vertu viss um að þú ert elskaður og meðtekinn, þó að einhverjir eigi erfitt með að sýna það. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sýndu samstarfsmönnum þolinmæði, það skiptir máli. Reynið að gera það besta úr því sem að höndum ber. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þetta er góður dagur til að kaupa eitthvað fallegt fyrir heimilið eða fjölskylduna. Sinntu nú vinum og vanda- mönnum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu það ekki hvarfla að þér að láta aðra um að leysa þín mál. Láttu ekki ýta þér út í neitt, sem þú ert ekki handviss um að sé gott. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þekking er voldugt afl og þú þarft að nýta þekkingu þína betur en þú hefur gert hingað til. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hlutirnir breytast og fólk þrosk- ast hvert í sína áttina. Dragðu djúpt and- ann og leystu flókna stöðu með brjóstvit- inu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú veltir fyrir þér lífinu og tilverunni þessa dagana. Stundum er besta ráðið bara að gera ekki neitt og búa sig undir næsta dag. ár síðan okkur tókst að leysa úr öllum þeim helvítis veðböndum sem ég setti á Vinnslustöðina og þá var loksins hægt að vera hér með eðlilegt rekstrarumhverfi.“ Eftir þrjú ár í Eyjum flutti hann til Reykjavíkur í aðalútibú bankans við lánaeftirlit. Eyjamenn höfðu þó sett öngulinn í Binna því árið 1996 þegar Meitillinn og Vinnslustöðin sameinuðust var honum boðin staða fjármálastjóra og aðstoðarframkvæmdastjóra, sem hann tók þótt það tæki hann tvö ár að flytja alfarinn til Eyja. „Vinnan hefur an var farið í víking til Englands. Árið 1992 útskrifaðist Binni með meistara- gráðu í fjármálum og fjárfestingum frá Háskólanum í York, en missti aldrei tenginguna við sjóinn því hann fór öll sumur á trilluveiðar heima á Snæfellsnesi með föður sínum. „Þetta ár var aftur skollin á kreppa í sjávarútvegi og eina starfið sem bauðst var í Íslandsbanka hér í Eyj- um þar sem ég varð lánasérfræð- ingur. Þar fór ég því að vinna við það að veðsetja allar eigur Eyjamanna, og það má segja að það séu bara fjögur S igurgeir Brynjar Krist- geirsson fæddist 3. des- ember 1960 í Reykjavík og ólst upp á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Hann er kallaður Binni af öllum sem þekkja hann og oftast Binni í Vinnslustöð- inni. „Pabbi var trillukarl og bóndi og allt snerist um vinnu og að framfleyta sér og sínum. Ég hjálpaði til við bú- störfin sem krakki og var líka að fletja og salta fisk,“ segir Binni. Hann segist hafa alist upp við mikla vinnu- gleði og hann hafi virkilega notið bú- starfanna en komst ekki á sjóinn með pabba sínum af því hann var svo of- boðslega sjóveikur. „Ég fór á neta- vertíð í Ólafsvík þegar ég var sextán ára og ældi lifur og lungum í meira en mánuð, en þá loksins sjóaðist ég.“ Binni átti trillu í félagi við föður sinn og reri meira og minna öll sumur fram yfir þrítugt þar til hann lauk við háskólann. „Karlinn hafði gaman af vinnu og var kappsfullur og ég lærði dugnað og góð vinnubrögð með hon- um á sjónum. Lífsreglurnar voru ekkert flóknar á heimilinu. Aðalmálið var að vera duglegur, enda ólust for- eldrar mínir upp við að þurfa að bjarga sér frá unga aldri og í huga mömmu var full kista af mat ríki- dæmi. En það sem ég lærði mest af föður mínum var lífsgleðin og að njóta þess sem maður er að gera.“ Binni fór í landspróf en ákvað að bíða með frekari menntun því hann áttaði sig á því að best væri að safna sjálfur fyrir náminu. Hann fór á sjó- inn og var á netabátum og línubátum og síðan trillunni á sumrin. „Eitt ár skaust ég í Bændaskólann á Hvann- eyri og lærði búfræði, en mig hefur alltaf langað til að verða bóndi.“ Ekki varð þó úr því og Binni hélt áfram að sækja sjó. „Ég var að velta fyrir mér hvort ég ætti að stefna á að verða skipstjóri árið 1983, en það var hið fræga ár sem kvótasetningin var og sjávarútvegurinn átti í miklu basli. Þá sá ég að það væri tóm della og ákvað að venda mínu kvæði í kross og lík- lega væri meira vit í því að læra hvernig ætti að reikna út tap.“ Hann fór í menntaskóla í Samvinnuskól- anum á Bifröst og síðan í við- skiptafræði í Háskóla Íslands og það- verið mér skemmtun og ánægja. Vissulega koma upp mál sem þarf að leysa, en maður tekst bara á við það að Snæfellinga sið. Það voru aldrei þau böll í Ólafsvík eða á Stapa að þar væru ekki einhver slagsmál og eins og þeir vita sem þekkja mig þá er ég ekkert feiminn við átök, þó ekki lík- amleg.“ Það ætti ekki að koma á óvart að Binni eigi betur heima í Vinnslustöð- inni en í bankanum en þar kemur öll hans reynsla bæði af vettvangi og úr fjármálaheiminum honum til góða. Síðan er hann hreinskiptinn og segir skoðun sína umbúðalaust og það kann fólk vel að meta – allavega flest- ir. „Það er fátt skemmtilegra en að vera með sveitamönnum og sjómönn- um. Þeir eru vel lesnir og hafa skemmtilegar skoðanir og eru ekki feimnir við að tjá þær,“ segir Binni og bætir við að hann reyni alltaf að kom- ast í smölun þegar hann getur, enda blundar í honum bóndinn. „Mér finnst gífurlega gaman að smala sauðfé og vera með sveitamönnum á fjöllum. Núna á ég sauði og ég var að hengja upp jólahangiketið.“ Fjölskylda Eiginkona Binna er Andrea Atla- dóttir, f. 3.9. 1969, fjármálastjóri Vinnslustöðvarinnar. Foreldrar hennar eru Atli Aðalsteinsson og Lilja Hanna Baldursdóttir. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar – 60 ára Fjölskyldan „Hér er mynd úr fermingarveislu Jasonar í haust. Frá vinstri: Agnes, fósturdóttir mín, ég, Jason, fóstursonur minn, Björg, dóttir mín, Andrea, sambýliskona mín og Bríet, fósturdóttir mín.“ Lífsglaður vinnuþjarkur í Eyjum Sjómannslífið Hérna eru feðgarnir á trillunni, Krist- leifur og Binni, að koma heim úr róðri á Arnarstapa. Æskuslóðirnar „Hér er ég heima á Felli að gefa hæn- unum. Til vinstri er amma Sigga, þá Nína systir og ég.“ 40 ára Guðmunda Áslaug ólst upp í Reykjavík en hún var að flytja á Suðurnesin. Ása er lögfræðingur. Helstu áhugamál Ásu eru fjölskyldan og góður matur og ferða- lög, útivera og hreyfing. Maki: Axel Vicente Gomez, f. 1967, fram- kvæmdastjóri. Börn: Mikael Freyr, f. 2003; Daníel Geir, f. 2009, og Aron Bjarni, f. 2010, Isabel Guðrún, f. 1997; Axel Luis, f. 2003, og Vincent Hjörleifur, f. 2013. Foreldrar: Guðmunda Hulda Jóhann- esdóttir, f. 1955, ballettdansari og mynd- listarkona í dag og Geir Þorsteinsson, f. 1951. Guðmunda Áslaug Geirsdóttir Til hamingju með daginn Reykjavík Rúrik Amír Hoff- mann Einarsson fæddist 8. janúar 2020 kl. 5.37. Hann vó 3.780 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Einar Ásgeir Hoffmann Guðmundsson og Lilja Hrafndís Magnúsdóttir. Nýr borgari 30 ára Brynjar Þór ólst upp á Selfossi og í Grímsnesinu en býr núna í Kópavogi. Brynj- ar Þór er með meist- aragráðu í stjórnsýslu- fræðum og starfar sem verkefnastjóri á skrif- stofu Alþjóðasamskipta Háskóla Íslands. Helstu áhugamál hans eru stjórnmál og íþróttir. Maki: Bryndís Rós Sigurjónsdóttir, f. 1991, sérfræðingur hjá Hugverkastof- unni. Barn: Frans Óli, f. 2020. Foreldrar: Birna Kjartansdóttir, f. 1971, verkstjóri umhverfisdeildar sveitarfé- lagsins Árborgar, og Elvar Gunnarsson, f. 1972, málari. Brynjar Þór Elvarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.