Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020 Augnhvílan getur minnkað þreytu í augum, hvarmabólgu og haft jákvæð áhrif á augnþurrk, vogris, rósroða í hvörmum/augnlokum og vanstarfsemi í fitukirtlum. Fæst í helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum Dekraðuaugun Augnhvílan er auðveld í notkun, hún er einfaldlega hituð í 30 sekúndur í örbylgjuofni og lögð yfir augun í 10 mínútur. Í bókinni Spegli fyrir skuggabaldur vitnar dr. Ólína Kjerúlf Þorvarð- ardóttir af velþóknun í sjónvarpsþátt frá 18. mars 2007 um að Bjarni Benediktsson, þáv. utanríkisráðherra, hafi undir lok fimmta ára- tugarins „lagt stein í götu“ útgáfu bóka Hall- dórs Laxness í Banda- ríkjunum. Þá vitnar hún í Kastljós sjónvarpsins frá 2010 um að bækur Laxness hafi hætt að seljast í Banda- ríkjunum „laust eftir miðbik síðustu aldar, vegna þess að Bjarni Bene- diktsson hefði gengið á fund sendi- herra Bandaríkjanna í Reykjavík og leitast þar við að „eyðileggja mann- orð“ Halldórs í Bandaríkjunum. Ástæðan hafi verið óánægja íslenskra ráðamanna með bók skáldsins At- ómstöðina, sem kom út 1948.“ (153) Bókin lýsir vandræðum dr. Ólínu við að fá fast starf hjá íslenska ríkinu. Höfnun á henni sanni spillt stjórn- arfar í landinu. Spillingin hafi svo einnig birst þegar Þorvaldur Gylfa- son prófessor varð ekki ritstjóri nor- ræns tímarits um efnahagsmál þrátt fyrir sniðgöngu við ráðningarreglur. Dr. Ólína segir: „Í máli Halldórs Lax- ness sem reifað er hér framar var Bjarni Benediktsson eldri í hlutverki geranda, en í máli Þorvaldar Gylfa- sonar var það nafni hans Bjarni Benedikts- son yngri. Náfrændur og flokksbræður, af- sprengi ólíkra tíma en sömu stjórnmálahefðar sem þróast hefur í ár- anna rás innan Sjálf- stæðisflokksins – valdaflokksins.“ (227) Kjarni samsæriskenningar dr. Ólínu er reistur á pólitískri og per- sónulegri óvild hennar í garð frænda og flokks, þar eru skjalfest gögn og málefnaleg rök höfð að engu. Morgunblaðið birti tvö bandarísk skeyti með grein dr. Ólínu í blaðinu 20. nóvember. Þau áttu að sanna rétt- mæti orða hennar. Blaðið sagði hins vegar í forystugrein 22. nóvember: „Ólína grípur til þess bragðs að slá saman efni skeytanna til þess að fá sína útkomu um hlutverk Bjarna [Benediktssonar], sem varð síðar rit- stjóri Morgunblaðsins. Ólína segir í grein sinni að frumheimildirnar tali sínu máli. Þær segja bara ekki það sama og hún heldur fram.“ Halldór Guðmundsson segir í Morgunblaðsgrein 25. nóvember að skjöl sem hann skoðaði við ritun ævi- sögu Laxness segi ekkert um að af- skipti íslenskra yfirvalda hafi haft áhrif á útgáfu bóka Halldórs Laxness í Bandaríkjunum, mönnum sé hins vegar „frjálst að draga sínar álykt- anir“. Í lok greinarinnar gerir Halldór Guðmundsson því skóna að einhverjir forðist að „horfast í augu við fram- göngu íslenskra stjórnvalda“ í lok fimmta áratugarins og reyni frekar að „að fegra hana eftir okkar póli- tísku hentisemi“. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, ævisöguhöfundur Laxness, áréttar í Morgunblaðsgrein 27. nóvember að íslenskum yfirvöldum bar á þessum árum að beita ströngum reglum vegna gjaldeyrishafta og skatta- reglna, náði það til Laxness eins og annarra. Að íslenskir ráðamenn framfylgdu íslenskum gjaldeyrislögum gagnvart Halldóri Laxness fellur ekki að póli- tískri hentisemi þeirra sem vilja ræða allt annað. Hörð átök voru milli lýð- ræðissinna og kommúnista hér á landi, þarf engin bandarísk sendi- ráðsskjöl til að upplýsa það. Frásagn- ir sendimanna endurspegla oft von um frama vegna afstöðu móttakand- ans. Bandarískur fræðimaður, Chay Lemoine, rannsakaði útgáfusögu Laxness í Bandaríkjunum. Um 1950 var bandaríska þjóðin, að hans sögn, haldin svo miklum og almennum ótta við „rauðu hættuna“ að ekki þurfti Joe McCarthy, drykkfelldan öld- ungadeildarþingmann, til að hvetja til aðgerða gegn henni. The New York Times birti 28. október 1955 forsíðufrétt um að Lax- ness hefði fengið Nóbelsverðlaunin. Þar er stjórnmálaskoðunum hans lýst og hann sagður „ríkur, hræsnisfullur, and-bandarískur og vinstrisinni“. Þá vitnar blaðið í trausta heimildarmenn sem segi að þrátt fyrir andstöðu sumra í sænsku akademíunni við stjórnmálaskoðanir Laxness hafi ver- ið „ákveðið að veita honum verðlaun- in í ár, einungis vegna minni spennu í samskiptum austurs og vesturs“. Að íslensk stjórnvöld hafi stjórnað bókaútgáfu í Bandaríkjunum, afstöðu þeirra sem gættu þar þjóðaröryggis eða fréttaskrifum The New York Times er hrein firra. Almenn lögmál bókaútgáfu ráða niðurstöðu frjálsra ályktana um út- gáfu á bókum Halldórs Laxness í Bandaríkjunum. Fyrir liggur að bandarískur útgefandi Laxness, Alfred A. Knopf, var einlægur kapítalisti. Hann gaf út bækur teldi hann þær gefa eitthvað í aðra hönd. Stjórnmálaskoðanir höfunda skiptu hann engu. Knopf bar fyrir sig að hann hefði engan lesanda á norræn tungumál þegar hann var spurður um Laxness. Lýsing Laxness sjálfs á örlögum þýðandans á Sjálfstæðu fólki á fimmta áratugnum er til marks um hve erfitt var að snúa bókinni á ensku. Undir lok sjötta áratugarins komst þó skriður á enskar þýðingar á verkum Laxness vegna dugnaðar og íslenskukunnáttu Magnúsar Magn- ússonar, sjónvarpsmanns í Bretlandi. Hann þýddi t.d. Atómstöðina. Hún kom út á Englandi árið 1961 og árið 1982 í Bandaríkjunum. Minning þeirra sem koma hér við sögu á annað skilið en málflutning dr. Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur. Ómaklegt er að hún geri Halldór Laxness að fórnarlambi til að upp- hefja sjálfa sig. Lögmál bókaútgáfu og Laxness Eftir Björn Bjarnason » Almenn lögmál bókaútgáfu ráða niðurstöðu frjálsra ályktana um útgáfu á bókum Halldórs Lax- ness í Bandaríkjunum. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra Á streymisfundi borgaryfirvalda mið- vikudaginn 18. nóv- ember sl. svaraði for- seti borgarstjórnar m.a. spurningu frá Samtökum um betri byggð, sem hljóðaði svo: „Margir borgar- fulltrúar meirihlutans hafa sagt við okkur að tillögur Samtaka um betri byggð varðandi Aðalskipulag Reykjavíkur séu faglega séð bestar en pólitískt séð óframkvæmanlegar, a.m.k. sem stendur. Ert þú sammála þessum pólitíkusum?“ Svar forsetans var efnislega á þá leið að stefna Samtaka um betri byggð væri best og þjóðhagslega arðsömust en það væri mat hans og borgarstjórnar meirihlutans að það borgaði sig ekki að „fara þetta á hnefanum“ vegna þess að ríkið væri svo öflugur andstæðingur! Samtök um betri byggð hafa í fór- um sínum meirihlutasáttmála núver- andi borgarstjórnar þar sem opnað er á keimlíka samninga við ríkið og nú liggja fyrir varðandi skipulags- og samgöngumál á höfuðborgar- svæðinu. Þetta ákvæði var ekki í samstarfssáttmála meirihlutans í borginni 2014-2018 og er því aug- ljóst að ákvæðið er þarna að frum- kvæði Viðreisnar! E.t.v. er rökrétt hjá Viðreisn að heimta þetta inn í sáttmálann enda standa þeir næst Sjálfstæðisflokknum og eru í mikilli baráttu við hann um atkvæði Reyk- víkinga og í Sjálfstæðisflokknum eru margir hlynntir flugvellinum í Vatnsmýri. Það er e.t.v. mannlegt að haga sér svona í pólitík en stórmannlegt er það ekki! Meirihlutaflokkarnir í Reykjavík hafa ekkert pólitískt um- boð til að koma svona aftan að Reyk- víkingum enda nefndi enginn þeirra þetta í kosningabaráttunni 2018. Samtök um betri byggð hafa aftur á móti fullt umboð frá borgarbúum enda píndu samtökin fram kosning- ar um flugvallarmálið 2001. Sam- tökin voru langöflugust í þeirri kosn- ingabaráttu. Og þau unnu. Flug- völlurinn færi ekki síðar en 2016. Pólitíkusarnir í meirihlutanum í Reykjavík hafa verið að setja á svið pólitískt leikrit og látið sem þeir hafi nauðugir viljugir gengið til samninga við ríkið í skipulags- og samgöngumálum en verið til í það allan tím- ann! Nú er afsökunin sú þegar kemur að gerð nýs flugvallar í Hvassa- hrauni að það taki ca. 10 ár í viðbót að rann- saka veðrið á svæðinu! Fáir trúa svona vitleysu og veðurfræðingur sem við þekkjum telur þetta af og frá! Annarri vitleysu er haldið fram, þeirri að ekki sé unnt að nota nýtt umferðarspáforrit borgarinnar til að bera saman skipulagsvalkost Sam- taka um betri byggð og skipulags- valkost borgarstjórnarstjórnar- meirihlutans varðandi breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur til 2040 vegna „tæknilegra örðugleika“. Ef rétt reynist hefur borgin keypt kött- inn í sekknum þegar hún keypti um- ferðarspáforritið! Helstu kosti skipulagstillögu Samtaka um betri byggð (BB), NÝ MIÐBORG í Vatnsmýri, má einkum rekja til þess að Vatnsmýri er lang- besta mannvistar- og byggingar- svæðið í borginni og á höfuðborgar- svæðinu vegna staðsetningar, víð- áttu, flatlendis, jarðvegsdýptar, hæðarlegu, skjóls fyrir norðanáttum o.s.frv. Verðmæti byggingarlandsins er a.m.k. 300 milljarðar (ma.) kr. og fórnarkostnaður vegna flugvallar þar á hverju 20 ára tímabili sömu- leiðis a.m.k. 300 ma. (a.m.k. 5% nei- kvæðir vextir á ári, sem er fórnar- kostnaður vegna glataðra tækifæra og tjóns á sviði lýðheilsu, samfélags, menningar og reksturs borgar, at- vinnuvega og heimila). Með því að leggja niður flugvöll- inn fær samfélagið aðgang að fjár- magni sem nægir til að greiða fyrir veitur og innra og ytra gatnakerfi nýrrar miðborgar, lækka útsvar og aðrar álögur, byggja nýjan innan- landsflugvöll og bora nokkur jarð- göng á landsbyggðinni. Grunnkostn- aður við byggð í Vatnsmýri er því miklu minni en engin. Áætlaður kostnaður við Borgarlínu er 70 millj- arðar kr. Nýsköpun og jákvæð samlegðar- áhrif af nábýli og samskiptum eldri og nýrra hátæknistofnana og fyrir- tækja við iðandi mannlíf eru hvergi möguleg á HBS nema í nýrri mið- borg í Vatnsmýri. Þau verða óhjá- kvæmilega mjög mikil: Fjórða iðn- byltingin. Í nýrri miðborg með 60.000 íbúum eða 25.000 fjölskyldum minnkar þörf fyrir einkabíla um allt að 25.000 og í aðliggjandi hverfum á Nesinu um allt að 20.000 einkabíla því BB gera ráð fyrir a.m.k. 40.000 íbúum austan Kringlumýrarbrautar og vestan Elliðaáa. Pendlun (inn- og útakstur milli nýrrar miðborgar og úthverfa) minnkar. Strætó fær aukið rými. Mengun og losun CO2 minnka. Þegar flugvöllur fer úr Vatnsmýri hverfa allar takmarkanir á hæð húsa á Nesinu fyrir vestan Elliðaár (nú 45 m yfir flugbrautum í 14 m hæð yfir sjó) og skipulagsforsendur gjör- breytast. Líklega verður byggð á Nesinu verulega hærri og þéttari en rakið er hér. Svipuð áhrif nást með afnámi heimildar til blindaðflugs að NS-flugbraut. A.m.k. 40.000 nýjum borgarbúum og a.m.k. 20.000 íbúum í aðliggjandi hverfum í 101, 103, 107 og 170 gefst kostur á að búa á langbesta stað í og við Vatnsmýri, gamla miðbæinn og víðtæka þjónustu, við kjöraðstæður fyrir göngur, hjólreiðar og strætó í nýrri miðborg. Nú þurfa Reykvíkingar fyrir næstu borgarstjórnarkosningar að efna til nýs Reykjavíkurframboðs eða annars stjórnmálaafls á borgar- grunni, sem gæti gjörbreytt gæfu og framtíð Reykvíkinga til hins betra. Eftir Gunnar H. Gunnarsson »Margir borgarfull- trúar segja að til- lögur Samtaka um betri byggð varðandi Aðal- skipulag Reykjavíkur séu faglega séð bestar en pólitískt ófram- kvæmanlegar Gunnar H. Gunnarsson Höfundur er verkfræðingur í framkvæmdastjórn Samtaka um betri byggð. gunnarhjortur@hotmail.com Forseti borgarstjórnar kemur út úr skápnum Allt um sjávarútveg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.