Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020
Garðatorg 6 | sími 551 5021 | www.aprilskor.is
27.990 kr. 31.990 kr. 28.990 kr. 33.990 kr.
Opnunartími
mán-fös 11-18
laugardaga 12-16
41.990 kr. 41.990 kr. 38.990 kr. 38.990 kr.
Glæsileg jólasending frá spænska gæðamerkinu Audley
lendir í verslun okkar á Garðatorgi 6 föstudaginn 4. desember og á www.aprilskor.is
Bæði Alzheimersamtökin og Park-
isonsamtökin fá veglegan styrk frá
Oddfellow-reglunni á Íslandi til að
byggja upp þjónustumiðstöð og
dagdvalarrými á 3. hæð í Lífs-
gæðasetri St. Jó í Hafnarfirði.
Þessi stuðningur var samþykktur
um liðna helgi á haustfundi styrktar-
og líknarsjóðs Oddfellow-reglunnar,
StLO. Öll hæðin verður endur-
innréttuð, alls um 530 fermetrar.
Rekið af Hafnarfjarðarbæ
Á 2. hæð hefur Lífsgæðasetrið
verið til húsa, þar sem starfa ein-
staklingar, félagasamtök og fyrir-
tæki sem eiga það sameiginlegt að
auka lífsgæði viðskiptavina sinna
með áherslu á heilsu, samfélag og
nýsköpun, líkt og fram kemur í til-
kynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Þar
er m.a. boðið upp á forvarnir, heilsu-
vernd, snemmtæka íhlutun og
fræðslu og með tilkomu samtakanna
í húsið er talið að samlegðaráhrifin
verði töluverð.
Lífsgæðasetur St. Jó er sjálfbær
eining rekin af Hafnarfjarðarbæ og
hefur húsnæðið að Suðurgötu 41,
sem áður hýsti St. Jósefsspítala, ver-
ið í eigu sveitarfélagsins frá 2017.
„Síðan þá hefur mikill metnaður
verið lagður í að byggja upp opið
samfélag og eftirsóknarverðan vett-
vang fyrir hvers kyns heilsueflingu.
Þetta fallega hús hefur þannig fengið
nýtt og mikilvægt hlutverk,“ segir
m.a. í tilkynningu bæjarins.
Vitnað er í talsmenn samtakanna,
sem segja draum þeirra vera að ræt-
ast með þessum höfðinglega styrk
Oddfellowa.
Alzheimersamtökin munu opna
stuðningsmiðstöð til að veita þjón-
ustu þeim sem greinast með heilabil-
un, 65 ára og yngri, og aðstand-
endum þeirra. Vilborg Gunnars-
dóttir, framkvæmdastjóri
Alzheimersamtakanna, segir að
þjónustumiðstöðin verði algjör bylt-
ing, jafnt fyrir sjúklinga sem að-
standendur þeirra.
Parkinsonsamtökin munu opna
parkinsonsetur til að aðstoða fólk
með parkinsonveiki og aðstandendur
þess, að takast á við þær áskoranir
sem sjúkdómnum fylgja með sér-
hæfðri endurhæfingu og radd-
þjálfun.
„Það eru stór tímamót í sögu
Parkinsonsamtakanna að geta innan
skamms tíma boðið betri aðstöðu fyr-
ir ráðgjöf, stuðning, þjálfun og dagd-
völ með sérhæfðri endurhæfingu fyr-
ir fólk með parkinson. Stuðningurinn
frá Oddfellow er ómetanlegur og
breytir allri starfsemi samtakanna,“
segir Vilborg Jónsdóttir, formaður
Parkinsonsamtakanna.
Steindór Gunnlaugsson, stjórn-
arformaður StLO, segir það forrétt-
indi að fá að taka þátt í uppbygging-
unni í Lífsgæðasetrinu.
Mikilvæg þjónusta
„Við höfum kynnt okkur starfsemi
Alzheimer- og Parkinsonsamtak-
anna undanfarið ár og okkur finnst
gríðarlega mikilvægt að hægt sé að
reka þessa mikilvægu þjónustu fyrir
veika einstaklinga og aðstandendur
þeirra og að samtökin tvenn fái að
sanna sig til frambúðar í þessu glæsi-
lega húsi sem Hafnarfjarðarbær hef-
ur glætt nýju lífi. Fyrir okkur Odd-
fellowa er verkefnið afar gefandi og
við erum virkilega stolt af því að til-
heyra félagsskap sem getur komið að
verkefnum með jafn öflugum hætti
núna,“ segir Steindór og vitnar einn-
ig til fyrri verka sem Oddfellow-
reglan hefur komið að, eins og upp-
byggingar líknardeildarinnar í Kópa-
vogi, uppbyggingar Samhjálpar í
Hlaðgerðarkoti og með stækkun
Ljóssins, endurhæfingarmiðstöðvar,
við Langholtsveginn.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri
Hafnarfjarðar fagnar þessum tíð-
indum. Það sé jákvætt og mikilvægt
skref að samtökin fái að þróa starf-
semi sína þarna, bæði fyrir Lífs-
gæðasetur St. Jó og ekki síður fyrir
Hafnarfjörð sem heilsueflandi sam-
félag. „Með þessu skrefi er Lífs-
gæðasetrið komið með öfluga kjöl-
festu í daglega starfsemi sína sem er
frábær viðbót við þá fjölbreyttu
þjónustu sem þegar er til staðar í
húsinu“ segir Rósa.
Oddfellowar efla Lífsgæðasetrið
Alzheimer- og Parkinsonsamtökin fá húsnæði til afnota á 3. hæð St. Jósefsspítala í Hafnarfirði
Oddfellow-reglan á Íslandi leggur samtökunum lið Draumur rætist um betra húsnæði
Morgunblaðið/Ófeigur
Lífsgæðasetur Gamli St. Jósefsspítalinn í Hafnarfirði hýsir nú Lífsgæðasetur með margs konar starfsemi til heilsu-
eflingar og ráðgjafar. Nú bætist við aðstaða fyrir parkinson- og alzheimer-sjúklinga og aðstandendur þeirra.