Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 56
Þorgerður H.
Þorvaldsdóttir
Kjartan
Ólafsson
Kristín Svava
Tómasdóttir
Pétur H.
Ármannsson
Sumarliði
Ísleifsson
Ragnheiður
Kristjánsdóttir
Gísli
Pálsson
Arndís
Þórarinsdóttir
Elísabet Kristín
Jökulsdóttir
Hulda Sigrún
Bjarnadóttir
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2020 í þremur flokkum Alls voru 144 bækur
lagðar fram í ár Arndís Þórarinsdóttir tilnefnd í tveimur flokkum Verðlaunin afhent á nýju ári
Fimmtán bækur tilnefndar
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Tilnefningar til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna 2020 voru kynntar í
sjónvarpsþættinum Kiljunni á RÚV í
gærkvöldi. Tilnefnt er í flokki fræði-
bóka og rita almenns efnis, barna- og
ungmennabóka og fagurbókmennta,
en fimm bækur eru tilnefndar í
hverjum flokki. Alls voru 15 bækur
tilnefndar eftir 18 höfunda. Í fyrsta
sinn í sögu verðlaunanna er sami höf-
undur tilnefndur í tveimur flokkum
sama árið, en Arndís Þórarinsdóttir
er bæði tilnefnd í flokki barna- og
ungmennabóka og í flokki fagur-
bókmennta. Eftir því sem blaðamað-
ur kemst næst hefur það aðeins einu
sinni áður gerst að höfundur fékk
tvær tilnefningar sama árið, en það
var þá í sama flokki því árið 2016 var
Hildur Knútsdóttir tilnefnd fyrir
tvær bækur í flokki barna- og
ungmennabóka.
Nýjar dómnefndir starfandi
Sú nýbreytni var tekin upp í ár að
dómnefndir skila stuttri umsögn um
allar tilnefndu bækurnar og má lesa
umsagnirnar hér fyrir neðan.
Önnur nýbreytni í ár var að Félag
íslenskra bókaútgefenda, sem
stendur fyrir verðlaununum, aug-
lýsti síðsumars eftir einstaklingum
á ólíkum aldri, með fjölbreyttan
bakgrunn og menntun, til að velja
athyglisverðustu bækur ársins í
dómnefnd Íslensku bókmennta-
verðlaunanna. Samtals bárust 273
umsóknir frá áhugasömum bóka-
unnendum. Alls sóttu 55 karlar
(20% umsækjenda) og 218 konur
(80% umsækjenda) um að gegna
dómnefndarstörfum. Elsti umsækj-
andi var 80 ára og sá yngsti 10 ára,
en meðalaldur umsækjenda var 43
ár. Umsækjendur gátu sótt um að
komast í eina eða fleiri nefndir. Alls
131 sótti um að vera í dómnefnd
fræðibóka og rita almenns efnis;
165 sóttu um að vera í dómnefnd
barna- og ungmennabóka og 207
sóttu um að vera í íslensku skáld-
verkanefndinni. Nöfn þeirra sem
urðu fyrir valinu má sjá hér aftar í
greininni.
Formenn dómnefndanna þriggja,
sem valið hafa tilnefningarnar,
munu koma saman ásamt Ingunni
Ásdísardóttur, sem er forseta-
skipaður formaður, og velja einn
verðlaunahafa úr hverjum flokki.
Verðlaunaupphæðin er ein milljón
króna fyrir hvert verðlaunaverk,
sem Félag íslenskra bókaútgefenda
kostar. Verðlaunin verða afhent í
32. sinn um mánaðamótin janúar-
febrúar á komandi ári af forseta
Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni.
Tilnefningar í flokki fræðibóka
og rita almenns efnis
Eftirfarandi höfundar eru til-
nefndir í flokki fræðibóka og rita
almenns efnis:
Erla Hulda Halldórsdóttir,
Kristín Svava Tómasdóttir, Ragn-
heiður Kristjánsdóttir og Þorgerður
H. Þorvaldsdóttir fyrir Konur sem
kjósa – aldarsaga sem Sögufélag
gefur út.
„Bókin er afrakstur mikilvægrar
og vandaðrar fræðilegrar rann-
sóknar á jafnréttisbaráttunni á
Íslandi í 100 ár, en einnig á stjórn-
mála- og menningarsögunni. Upp-
setning bókarinnar er áhugaverð og
hönnunin nýstárleg þar sem fjöldi
ljósmynda, veggspjalda og úrklippa
eru notaður til að gæða söguna lífi.“
Gísli Pálsson fyrir Fuglinn sem
gat ekki flogið sem Mál og menning
gefur út.
„Aldauða dýrategunda hefur ekki
verið gefinn mikill gaumur til þessa
hér á landi. Því er mikill fengur að
þessari bók, sem beinir sjónum
okkar m.a. að útrýmingarhættu og
margvíslegum umhverfisvanda sem
við stöndum frammi fyrir. Geirfugla-
bækur tveggja breskra fræðimanna
sem héldu í Íslandsleiðangur 1858
og höfundur hefur rannsakað í þaula
varpa nýju ljósi á sögu og örlög síð-
ustu geirfuglanna við strendur
landsins.“
Kjartan Ólafsson fyrir
Draumar og veruleiki – Um Komm-
únistaflokkinn og Sósíalistaflokkinn
sem Mál og menning gefur út.
„Verkið er yfirgripsmikið og
varpar áhugaverðu ljósi á stjórn-
mála- og stéttasögu vinstri manna
hér á landi á 20. öldinni af miklu
innsæi og hreinskilni. Um er að
ræða tímamótarit þar sem nýjar og
áður óaðgengilegar heimildir eru
nýttar.“
Pétur H. Ármannson fyrir
Guðjón Samúelsson húsameistari
sem Hið íslenska bókmenntafélag
gefur út.
„Vandað og löngu tímabært ritverk
um fyrsta Íslendinginn sem lauk há-
skólaprófi í byggingarlist á síðustu
öld. Líf Guðjóns Samúelssonar húsa-
meistara var helgað starfi hans og
list. Saga hans og ævistarfsins er vel
og skilmerkilega rakin í bókinni. Höf-
undur byggir á víðtækum rann-
sóknum sínum og djúpum skilningi á
viðfangsefninu. Fjölmargar myndir
og uppdrættir prýða bókina.“
Sumarliði R. Ísleifsson fyrir Í
fjarska norðursins: Ísland og Græn-
land – viðhorfasaga í þúsund ár sem
Sögufélag gefur út.
„Höfundi tekst að færa lesendum
efni rannsóknar sinnar á mjög
aðgengilegan og skýran hátt, þar
sem hann varpar ljósi á rúmlega
1000 ára viðhorfasögu gagnvart
íbúum þessara eyja. Bókin er
glæsilegt og eigulegt rit, fallega
hönnuð og vel myndskreytt.“
Dómnefndina skipuðu Björn
Pétursson, Jóhanna Kristín
Jóhannesdóttir og Einar Örn
Stefánsson, sem var formaður
nefndarinnar.
Tilnefningar í
flokki barna-
og ungmenna-
bóka
Eftirfarandi
höfundar eru til-
nefndir í flokki
barna- og
ungmennabóka:
Arndís Þór-
arinsdóttir og
Hulda Sigrún Bjarnadóttir fyrir
Blokkin á heimsenda sem Mál og
menning gefur út.
„Frumleg og athyglisverð bók.
Fyndin og áreynslulaus frásögn með
snjöllum lausnum sem bera hug-
myndaauðgi höfunda glöggt vitni.
Mikilvægi samheldni og vináttu er
ákveðið meginstef í sögu sem deilir
með sterkum hætti á neysluhyggju
Vesturlanda. Loftslagsváin er allt-
umlykjandi en sterkum boðskapnum
er aldrei þröngvað upp á lesandann
heldur er hann borinn snyrtilega
fram með húmor í aðalhlutverki.“
Hildur Knútsdóttir fyrir
Skógurinn sem JPV útgáfa gefur út.
„Djúp og afar vel skrifuð spennu-
saga um úthugsaða ævintýraveröld
sem höfundur hefur lagt mikla vinnu
í að skapa og gera trúverðuga, með
heillandi vangaveltum um vísindin
og hið yfirnáttúrulega. Lesandinn er
rækilega minntur á hvernig nútíma
lifnaðarhættir gætu leitt mannkynið
á glapstigu, án þess að boðskapurinn
yfirtaki skemmtilega og oft æsi-
spennandi atburðarás.“
Kristín Björg Sigurvinsdóttir
fyrir Dulstafir – Dóttir hafsins sem
Björt – Bókabeitan gefur út.
„Áhrifarík bók þar sem höfundur
dregur upp ljóslifandi mynd af full-
sköpuðum ævintýraheimi. Sorg og
missi eru gerð falleg skil sem og leit-
inni að hugrekki og innri styrk. Frá-
sögnin er örugg, lýsandi og afar
myndræn en þó skilur höfundur eftir
rými til túlkunar og lesturs á milli
línanna. Framhaldsins verður beðið
með eftirvæntingu.“
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir fyrir
Grísafjörður sem Salka gefur út.
„Hlý og afar skemmtileg saga,
raunsæ en þó með heillandi ævin-
týrablæ. Saga um hversdagsleikann
með öllum sínum áskorunum og fólk-
ið sem skiptir okkur mestu máli, en
líka vináttu úr óvæntri átt, hjálpsemi
og það að engum er alls varnað.
Vandaðar myndir höfundar bæta
heilmiklu við söguna ásamt fallegum
frágangi og sniðugum fylgihlutum.“
Yrsa Sigurðardóttir fyrir Herra
Bóbó, Amelía og ættbrókin sem
Veröld gefur út.
„Heilsteypt og drepfyndin bók þar
sem einstakt hugmyndaflug fær að
blómstra. Óhefðbundinn sögumaður
nýtur sín afar vel í bráðsniðugum
lýsingum höfundar á tilfinningalífi
hans og sýn á heiminn. Skemmtileg
ærslasaga með klassískan boðskap
um gildi sannrar vináttu. Einfaldar
en stórskemmtilegar myndir falla
vel að textanum og gera söguna enn
betri.“
Þess má geta að Kristín Sól Ólafs-
dóttir gerði myndirnar.
Dómnefndina skipuðu Einar
Eysteinsson, Katrín Lilja Jónsdóttir
og Hrund Þórsdóttir, sem var for-
maður nefndarinnar.
Tilnefningar í flokki
fagurbókmennta
Eftirfarandi höfundar eru til-
nefndir í flokki skáldverka:
Arndís Þórarinsdóttir fyrir Inn-
ræti sem Mál og menning gefur út.
„Í þessari fyrstu ljóðabók Arn-
dísar Þórarinsdóttur er að finna
leiftrandi lýsingarnar á meitluðum
og frumlegum efnistökum sem skilja
mikið eftir sig.“
Auður Ava Ólafsdóttir fyrir
Dýralíf sem Benedikt bókaútgáfa
gefur út.
„Heimspekilegar vangaveltur um
lífið, dauðann og mannskepnuna sem
dýrategund einkennir þessa sjöundu
skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur.
Persónusköpunin í þessum fallega
texta er bæði heillandi og eftir-
minnileg.“
Elísabet Kristín Jökulsdóttir
fyrir Aprílsólarkuldi sem JPV útgáfa
gefur út.
„Aprílsólarkuldi er tilfinningarík
og ljóðræn frásögn um föðurmissi,
ást, sorg og geðveiki. Næmi Elísa-
betar Jökulsdóttur sem sést hefur í
ljóðum hennar skilar sér vel í skáld-
sagnaforminu.“
Jónas Reynir Gunnarsson fyrir
Dauði skógar sem JPV útgáfa gefur
út.
„Jónas Reynir Gunnarsson tæpir
á helstu málum samtímans í þessari
þriðju skáldsögu sinni. Fjallað er á
margræðan hátt um tengsl náttúru
og manns, innri átök hans og hið
óumflýjanlega í tilverunni.“
Ólafur Jóhann Ólafsson fyrir
Snerting sem Veröld gefur út.
„Í Snertingu eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson er dregin upp sannfærandi
mynd af samfélaginu og aðstæðum
fólks af ólíkum uppruna. Nútíð og
fortíð er listilega fléttað saman þann-
ig að úr verður skáldsaga sem skiptir
máli.“
Dómnefndina skipuðu Guðrún
Lilja Magnúsdóttir, Hildur Ýr
Ísberg og Jóhannes Ólafsson, sem
var formaður nefndarinnar.
Sex verið tilnefnd áður
Samkvæmt upplýsingum frá
Félagi íslenskra bókaútgefenda voru
í ár samtals lagðir fram 144 titlar frá
36 útgefendum í öllum þremur flokk-
um. Í flokki fræðibóka og rita
almenns efnis voru lögð fram 37 verk
frá 20 útgefendum. Í flokki barna- og
ungmennabóka voru lögð fram 46
verk frá 17 útgefendum. Í flokki
skáldverka var lagt fram 61 verk frá
18 útgefendum.
Alls hafa sex af þeim 18 höfundum
sem nú eru tilnefndir fengið tilnefn-
ingar áður. Þetta eru þau Pétur H.
Ármannsson fyrir Gunnlaugur Hall-
dórsson arkitekt 2014; Sumarliði R.
Ísleifsson fyrir Líftaug landsins –
Saga utanlandsverslunar 900-2010
árið 2017; Arndís Þórarinsdóttir
fyrir Nærbuxnanjósnararnir 2019;
Hildur Knútsdóttir fyrir Nornin
2019, Ljónið 2018 og Vetrarfrí 2015,
en hún var tilnefnd ásamt Þórdísi
Gísladóttur fyrir Dodda – bók sann-
leikans 2016 og hlaut verðlaunin
fyrir Vetrarhörkur 2016; Auður Ava
Ólafsdóttir fyrir Ungfrú Ísland 2018
og Undantekningin 2012, en hún
hlaut verðlaunin fyrir Ör 2016 og
Ólafur Jóhann Ólafsson fyrir
Fyrirgefning syndanna 1991, en
hann hlaut verðlaunin fyrir Aldin-
garðurinn 2006. Alls hafa því þrír
höfundar í hópi tilnefndra hlotið
verðlaunin áður.
Ólafur Jóhann
Ólafsson
Arndís
Þórarinsdóttir
Hildur
Knútsdóttir
Auður Ava
Ólafsdóttir
Yrsa
Sigurðardóttir
Kristín Björg
Sigurvinsdóttir
Lóa Hlín
Hjálmtýsdóttir
Erla Hulda
Halldórsdóttir
Jónas Reynir
Gunnarsson
Tilnefningar í flokki
fagurbókmennta
Tilnefningar í flokki
barna- og ungmennabóka
Tilnefningar í flokki fræði-
bóka og rita almenns efnis
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020
NETKAST 7.- 12. okt.
Outdoor Ultra
Verð 17.995.- / Stærðir: 36,5-41
HLÝIR OGVATNSHELDIR
DÖMU KULDASKÓR