Skólavarðan - 2018, Page 14
14 SKÓLAVARÐAN VOR 2018
„Væntingar mínar til námsins voru í upphafi
frekar litlar. Ég vissi eiginlega ekki alveg
hvað ég væri að fara út í. Svo þegar leið á
árin jukust væntingar mínar meira og meira
og ég myndi segja að ég hafi búist við því að
kennaradeildin myndi undirbúa mig fyrir
að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem
kennarar mæta daglega,“ segir Sveinn Leó.
„Kennarastarfið er einfaldlega þannig að nám
getur aldrei undirbúið kennara fyrir allt sem
mun koma upp á í starfinu sjálfu.“
Sveinn Leó Bogason ólst upp á Akureyri
og flutti til Reykjavíkur ásamt móður sinni
árið 2006. Hann fór í Menntaskólann við
Sund og þaðan í Háskóla Íslands en hóf nám
í hagfræði haustið 2011. Hann ákvað hins
vegar vorið 2012 að fara í kennaranám og
hóf það nám um haustið við kennaradeild
Háskóla Íslands og lagði áherslu á stærð
fræðikennslu.
„Það sem heillaði mig við kennarastarfið
var hversu lifandi og aktívt það er. Það og
að vinna með fólki var eitthvað sem heillaði
mig töluvert meira en að sitja fyrir framan
tölvuskjá allan daginn. Ég get ekki sagt að
þetta hafi verið draumur lengi en ég hafði
alveg hugsað til þess.“
Væntingarnar jukust
Sveinn Leó segir að væntingar sínar til
námsins hafi í upphafi verið frekar litlar.
„Ég vissi eiginlega ekki alveg hvað
ég væri að fara út í. Svo þegar leið á árin
jukust væntingar mínar meira og meira.
Ég myndi segja að ég hafi búist við því að
kennaradeildin myndi undirbúa mig fyrir
að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem
kennarar mæta daglega og gefa mér innsýn
í það hvað felst í starfi kennara ásamt því
að gera mig ekki eingöngu í stakk búinn að
tækla þau viðfangsefni sem fengist er við
innan stærðfræðinnar, fræðigreinar minnar,
heldur einnig að vera vel að mér um til hvers
er ætlast til af nemendum á hverju stigi
skólagöngunnar.“
Stærðfræði á unglingastigi
Sveinn Leó vildi helst kenna á unglingastigi.
„Það er einfaldlega vegna þess að mér þykir
skemmtilegast að vinna með unglingum
og finnst það stærðfræðinám sem fer fram
á unglingastigi áhugaverðara en á öðrum
stigum. Einnig hafði ég sérhæft mig að
unglingstigskennslu í náminu. Lítið var um
Texti: Svava Jónsdóttir
Sveinn Leó Bogason útskrifaðist frá Kennaradeild Háskóla Íslands í fyrravor
og hefur í vetur starfað sem kennari á miðstigi við Glerárskóla.
ÞAÐ ÞARF AÐ HLÚA BETUR
AÐ KENNURUM
Sveinn Leó Bogason.
„Einnig finnst mér ég
einhvern veginn hafa
meira sjálfstraust til
þess að fara út fyrir
rammann og prófa nýja
hluti.“
Texti og myndir: Svava Jónsdóttir