Skólavarðan - 2018, Page 10
10 SKÓLAVARÐAN VOR 2018
MÁLEFNALEGT ÞING KÍ
HALDIÐ Á VORDÖGUM
Á þriðja hundrað fulltrúa á 7. Þingi
Kennarasambands Íslands tók
þátt í þingstörfum og afgreiddi mál
til stefnumótunar næstu fjögur
árin. Góður andi var á þinginu en
einnig spenna í loftinu, en það var
samheldinn hópur sem fór heim að
þinginu loknu. Ný forysta KÍ tók við,
þau Ragnar Þór Pétursson formaður
og Anna María Gunnarsdóttir vara-
formaður. Atkvæðagreiðslur um mál
voru oft og tíðum spennandi og dæmi
voru um mál sem voru felld á jöfnu. Á
vefsíðu KÍ er að finna allar samþykktir
frá þinginu en hér er stuttur útdráttur
nokkurra málaflokka. Listinn er
langt í frá tæmandi og félags menn
því hvattir til að kynna sér stefnu
sambandsins til næstu fjögurra ára.
Ályktun um skólamál
Skóli og menntun á að vera fyrir
alla nemendur og markmið laga
um skólastigin og aðalnámskráa
var að setja hagsmuni nemenda
í forgrunn; menntun, þroska,
farsæld og skólagöngu. Þingið
telur margt vera ógert við að koma
lögum og aðalnámskrám í fram
kvæmd. Einnig vantar mikið upp á
það hér á landi að kennarastarfið
sé metið að verðleikum en sam
tímis greina viðhorfskannanir frá
mikilvægi menntunar og mennta
kerfisins fyrir framtíð einstaklinga
og samfélags. Áhersla er lögð á að
skapa einhug um gæði menntunar
og efla samvinnu um menntamál á
Íslandi. Ályktunin er yfirgripsmikil
og eru félagsmenn KÍ hvattir til að
kynna sér hana.
Milliþinganefnd um skipulag, starfsemi og rekstur
Skipuð verði milliþinganefnd
sem fer yfir og endurskoðar
skipulag, starfsemi og rekstur KÍ
með hliðsjón af úttekt Capacent
2015 og könnun 2014 á viðhorf
um félagsmanna til þjónustu og
starfsemi KÍ og aðildarfélaga.
Nefndin komi með tillögur um
breytingar á grundvelli þessara
atriða. Stjórn KÍ mun boða til
aukaþings á árinu 2020 um
lokaskýrslu nefndarinnar.