Skólavarðan


Skólavarðan - 2018, Side 50

Skólavarðan - 2018, Side 50
50 SKÓLAVARÐAN VOR 2018 Einn útvalinn skóli mun fá 25 Chromebook fartölvur að gjöf nú á vordögum, en það er Tölvutek í samstarfi við Acer sem gefur tölvurnar. Fartölvurnar nýtast bæði sem námstæki en ekki síður sem kennslutæki með tilkomu Google for Education umhverfisins sem inniheldur meðal annars hið vinsæla Classroom en það er ókeypis fyrir skóla. Classroom býr til bekkjarkerfi sem auðveldar verkefnaútdeilingu og vinnslu ásamt því að auðvelda samskipti beint á milli nemenda og kennara í rauntíma, hvort sem er í verkefna­ vinnu eða fyrirspurn henni tengdri. Google í skólastarfi er vettvangur stafrænna verkfæra Páll Ásgeir Torfason, kennari í Fellaskóla og Google sérfræðingur, hefur komið að innleiðingu Chromebook í skólum. Hann er einn fárra Google for Education viðurkenndra þjálfara á Íslandi og mun koma að því hvaða skóli verður fyrir valinu. Páll Ásgeir skrifaði nýlega grein um það hvernig Google nýtist í skólastarfi en þar segir meðal annars: „Google í skólastarfi er vettvangur stafrænna verkfæra frá Google (Google Docs, Google Sheets, Google Slides o.s.fv.) sem nýtt eru til að búa til og dreifa stafrænum skjölum, auka samskipti og samvinnu í skólastarfi og tengja nemendur og kennara saman. Allt í gegnum þau verkfæri sem kerfið býður upp á. Öll gögn eru geymd í öruggu skýi og þau eru aðgengileg hvar sem er og hvenær sem er. Tölvuumhverfið byggist á umsjónarkerfinu G Suite Education sem er einskonar umgjörð í kringum Google kerfi skólans sem einnig heldur utan um notkun og notendur innan skólans.“ Hægt er að nálgast greinina í heild á chromebook.is. Lúxus útgáfan fyrir skólana Í skólastarfinu er mikilvægt að geta fengið þjónustu varðandi nýjustu tækni og hefur Tölvutek fengið Google viðurkenninguna „Google Cloud & Education Partner“. Því er auðsótt fyrir skóla að fá aðstoð varðandi allt sem snýr að Google for Education. Allar eru tölvurnar örþunnar og léttar með rafhlöðu sem endist í allt að 12 klukkustundir án hleðslu. Það er einmitt lúxus útgáfa af þessum tölvum sem Tölvutek ætlar í samstarfi við Acer að gefa völdum skóla sem sækir um þær. Hinar nýju Acer tölvur eru með vökvaþolið lyklaborð og eru sérstaklega styrktar og höggheldar til að þola fall af skólaborði, en það er hægt að fá þær með og án 360° snúnings á skjá. Gefa grunnskóla 25 fartölvur Skólar eru hvattir til að kynna sér verkefnið og sækja um á chromebook.is. Páll Ásgeir Torfason, kennari í Fellaskóla og Google sérfræðingur sem komið hefur að innleiðingu Chromebook í fjölda skóla og er einn fárra Google for Education viðurkenndra þjálfara á Íslandi, mun koma að því hvaða skóli verður fyrir valinu. Páll Ásgeir Torfason, Google for Education sérfræðingur, og Halldór Hrafn Jónsson, framkvæmdastjóri sölusviðs í Tölvutek. Þeir eru með eina af Acer Chromebook tölvunum sem heppinn skóli fær gefins.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.