Skólavarðan


Skólavarðan - 2018, Qupperneq 44

Skólavarðan - 2018, Qupperneq 44
44 SKÓLAVARÐAN VOR 2018 Björk Óttarsdóttir er formaður samstarfsráðs um starfsþróun kennara og skólastjórnenda og fór hún yfir störf ráðsins í setningarávarpi ráðstefnunnar. Hlutverk samstarfsráðsins er að vera vettvangur fyrir samstarf og samráð aðila um starfsþróun kennara, skólastjórn­ enda og annarra fagstétta skóla. „Starfsþróun er samfellt, meðvitað og mótað ferli sem leiðir til umbóta og jákvæðrar þróunar. Hún er beintengd daglegu starfi kennara með nemendum og skipulögð í kringum raunveruleg viðfangsefni starfsins. Stefnumiðuð starfsþróun stuðlar að aukinni starfsánægju, hún hefur áhrif á árangur í starfi og minnkar líkur á kulnun eða brott­ hvarfi kennara úr starfi,“ sagði Björk. Starfsþróun er í raun ævilöng menntun benti Björk á, en menntun er sameiginlegt forgangsverkefni stjórnvalda og þeirra sem eiga aðkomu að menntakerfinu í landinu. Einnig er áhersla á nýliðun í kennslu og að auka áhuga á nýliðun. Björk sagði að skapa þurfi góðar aðstæður og möguleika á fjölbreyttri menntun og starfsþróun fyrir kennara alla starfsævi með skipulagi, tíma, fræðslu og faglegum stuðningi við allra hæfi. Leggja þarf áherslu á þekkingu og reynslu reyndra kennara þannig að það nýtist öðrum kennurum og skólastarfinu í heild. Skapa þarf reyndum kennurum starfsþróun til samræmis við reynslu þeirra og hlutverk. Styðja þarf við fjölbreytta aðkomu háskóla að starfsþróun kennara og stuðla að nánum tengslum háskóla og starfsvettvangs. Björk benti á mikilvægi leiðsagnar og endurgjöf. „Skapa þarf nýliðum og leiðsagnar­ kennurum aðstæður í starfi til að fá leiðsögn og til að veita leiðsögn. Skilgreina þarf fjölbreytt stoðkerfi við skóla og stuðningskerfi til að halda utan um vettvangsnám kennara­ nema, leiðsögn við nýliða og aðra starfandi kennara. Einnig þurfa skólar fjármuni til að skipuleggja og bjóða upp á fjölbreytta starfs­ þróun á vinnustað. Skilgreina þarf hvaða tími og fjármunir til starfsþróunar eru nú þegar til staðar í kerfinu og meta hvernig núverandi tími og fjármagn nýtist. Í framhaldinu verði settar fram tillögur um hvernig tími og þessir þættir eigi að nýtast til að markmiðum tillagna fagráðsins verði náð,“ sagði Björk. Að lokum lagði Björk áherslu á að samstarfsráð um starfsþróun eigi að tryggja að áfram verði haldið með starf fagráðsins. Hún benti fólki á að fylgjast með starfinu á vefslóðinni starfsthrounkennara.is en þar má finna allar upplýsingar um starf ráðsins. Þar eru rafræn gögn geymd og áhugaverðu efni sem tengist starfsþróun kennara og skóla­ stjórnenda er miðlað þar. „Starfendarannsóknir veita kennurum kjark og þor til að gera breytingar á starfinu, auka starfsánægju þeirra, færa þá nær nem­ endum og hvetja til þverfaglegs samstarfs. Starfsþróun leiðir til umbóta og jákvæðrar þróunar Í febrúar fór fram ráðstefna um starfsþróun og mikilvægi hennar fyrir framþróun skólastarfs. Menntavísindasvið Háskóla Íslands, í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kennarasamband Íslands, stóðu fyrir ráðstefnunni um þetta mikilvæga mál þar sem markmiðið var að efna til samtals meðal þeirra sem koma að starfsþróun kennara.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.