Skólavarðan


Skólavarðan - 2018, Side 42

Skólavarðan - 2018, Side 42
42 SKÓLAVARÐAN VOR 2018 Hrafnhildur Blomsterberg hefur í rúm 20 ár stjórnað Kór Flensborgarskólans og segir hún að að jafnaði syngi um 10% nemenda skólans í kórnum. „Við höldum tvenna tónleika á ári, jólatónleika og vortónleika, og fyrir jólatónleikana þurfa kórmeðlimir að hafa lært um 25 laga efnisskrá utanbókar. Við förum í æfingabúðir tvisvar á ári, við höfum farið í tónleikaferðir um Ísland annað hvert ár og ég hef farið með skólakór­ inn til útlanda annað hvert ár þar sem við höfum tekið þátt í kórakeppnum en þó aðallega kóramótum.“ Fyrir utan kór skólans stjórnar Hrafnhildur einnig framhaldskór sem í eru fyrrum nemendur skólans á aldrinum 20­35 ára. „Ég legg áherslu á góða, íslenska kórtónlist sem tengist arfleifð okkar og hefð auk þess sem ég vel líka nýja tónlist eftir íslensk tónskáld. Það hafa verið samin kórverk sérstaklega fyrir kórinn. Svo legg ég líka áherslu á góða og vandaða kórtónlist alls staðar að úr heiminum. Ég hef haldið mig innan sígildrar kórtónlistar og hef reynt að hafa þetta fjölbreytt. Ég lít á þetta sem uppeld­ isatriði. Það er menntun fyrir kórmeðlimi að kynnast öðru en því sem þeir heyra í útvarpi og sjónvarpi. Ég hef verið með fjögurra til 12 radda lagaval fyrir kórinn sem meðlimir hans hafa vel ráðið við. Það er hægt vegna þess að ég hef hingað til haft fjögur ár til að vinna með hverjum og einum.“ Stórt skarð Hrafnhildur segir að kórstarfið sé afskaplega mikilvægt starf í Flensborgarskólanum. „Það má segja að kórinn sé stofnun innan stofnunarinnar. Flensborgarskólinn er fjölbrautaskóli og það er ekki mikið um hópa í skólanum af því að þar er ekki bekkjarkerfi og þar kemur kórinn mjög sterkur inn sem hópefli. Þar kynnast nemendur vel, þeir kynnast því hvernig er að vinna saman og þeir stefna að sama takmarki. Þeir læra líka að hlusta á annars konar tónlist en síbyljuna, þeir kynnast íslenskri arfleifð í söng og ljóðum auk þess að kynnast tónlist alls staðar að úr heiminum.“ Hrafnhildur segir að flestir sem byrja í kórnum hafi aldrei áður sungið í kór og að mikilvægt sé að mæta á æfingar. „Nýir kórmeðlimir komast frekar fljótt af stað af því að í kórnum eru meðal annars félagar sem eru þar á sínu fjórða ári og eru komnir með mikla reynslu og orðnir vel þjálfaðir í nótnalestri og söng. Og það er það sem er svo sorglegt við styttingu framhaldsskólanámsins – þetta unga fólk nær ekki að öðlast dýpt í þessa reynslu. Ég missi frá mér reynsluboltana sem leiða hina af stað þannig að boltinn fari að rúlla hratt, vel og örugglega. Þarna er stórt skarð hoggið í svona vinnu.“ Mikil áhrif Hrafnhildur segir að þegar farið var á sínum tíma að ræða um hugmyndina um styttingu framhaldsskóla­ námsins úr fjórum árum í þrjú hafi hríslast um sig Texti og myndir: Svava Jónsdóttir Þarf að breyta náminu aftur í fjögur ár Hrafnhildur Blomsterberg hefur stjórnað Kór Flens- borgarskólans í rúm 20 ár. Hún er ekki sátt við styttingu náms í framhaldsskólum úr fjórum árum í þrjú og segir að það komi meðal annars niður á kórstarfinu. Hrafnhildur Blomsterberg. „Hvað verður um okkar miklu kórhefð þegar þessum aldurs­ hópi verður kippt úr keðju tónmenntunar og kórsöngs? Það sem ég er svo hrædd um er að þarna munum við missa einn hlekk úr þessari þróunarkeðju kórstarfs á Íslandi sem við höfum verið þekkt fyrir; þetta dásamlega áhugamál sem Íslendingar hafa átt – að syngja í kórum og kynnast allri þessari tónlist og ljóðum.“

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.