Skólavarðan - 2018, Qupperneq 15
VOR 2018 SKÓLAVARÐAN 15
stærðfræðikennarastöður á Akureyri en ég var
einnig tilbúinn að kenna á miðstigi í skóla þar
sem ég sá fram á að fá tækifæri til að kenna
stærðfræði á unglingastigi. Ég leit á það sem
þrep á leið minni í starfið sem mig dreymir
um og að ef ég myndi standa mig vel í því
starfi fengi ég tækifærið fyrr en seinna.“
Kennari á miðstigi
Hann fékk vinnu sem umsjónarkennari á
miðstigi, sem og stærðfræðikennari á sama
stigi, í Glerárskóla og flutti norður eftir út
skrift í fyrra og segist hann kunna vel við sig.
„Þegar kom að skólasetningu var ég
frekar spenntur en stressaður. Auðvitað var
smástress því ég vissi ekkert í hvað ég var
kominn. Allt í einu var ég orðinn umsjónar
kennari á miðstigi þó ég hefði aldrei farið í
vettvangsnám á öðrum stigum en unglinga
stigi og fannst ég einhvern veginn ekki þekkja
þann heim. Það var samt mikil tilhlökkun
og ég var í raun staðráðinn í að standa mig
vel. Hins vegar var ég örlítið órólegur með
að fara að kenna greinar sem ég hafði ekki
kennt áður og hafði jafnvel aldrei lesið mér
til um hluta þeirra í aðalnámskrá grunnskóla.
Svo þegar nemendur ásamt foreldrum voru
komnir inn í stofuna og sestir í sætin þá leið
mér bara frekar vel og var spenntur. Það var
í raun ekkert sem kom á óvart nema kannski
hvað allir voru eitthvað spenntir að fá nýjan,
tiltölulega ungan kennara.“
Mætti laga ýmsa þætti
Sveinn Leó segir að kennarastarfið sé
einfaldlega þannig að kennaranám geti aldrei
undirbúið kennara fyrir allt sem mun koma
upp á í starfinu sjálfu.
„Það er að mínu mati hluti af ástæðunni
fyrir því að starfið er skemmtilegt en það gerir
það líka að verkum að kennaranámið verður
að einhverju leyti ekki fullnægjandi til þess
að undirbúa verðandi kennara til að sinna
starfinu. Kennaranám getur hins vegar boðið
nemendum upp á að sjá hversu fjölbreytt og
margbreytilegt kennarastarfið er og ég tel að
kennaradeild Háskóla Íslands hafi gert það
nokkuð vel.
Vissulega eru þættir sem mætti laga
og til dæmis held ég að kandídatsár þar
sem nemendur fá einfaldlega að vinna sem
kennarar í heilt ár sé risastórt skref í þá átt að
bæta kennaranámið. Hvað agamál varðar eru
mismunandi skólar með mismunandi leiðir til
að taka á slíkum málum, hversu alvarleg sem
þau eru, svo erfitt getur reynst fyrir Kennara
deild Háskóla Íslands að fara yfir allar þær
mismunandi leiðir. Hið sama má segja um
eineltismál, foreldrasamskipti og margt fleira.
Kennaranámið verður að gefa nemendum
tækifæri til að átta sig á því að hlutunum
er háttað á mismunandi vegu og að það sé
að mörgu leyti undir kennurunum sjálfum
komið að bregðast við slíkum aðstæðum.
Svo er vert að taka það fram að með
sterkri stjórnun skólastjórnenda eiga
nýútskrifaðir kennarar að geta leitað til þeirra
og fengið ráð ef eitthvað kemur upp á. Í mínu
tilfelli er ég til að mynda ævinlega þakklátur
fyrir þær móttökur sem ég hef fengið á
mínum vinnustað. Þar virðast allir vilja róa í
sömu átt og hjálpast að við þau mál sem koma
upp á borð. Hvort sem það eru skólastjórn
endur, ritari skólans eða samkennarar hef
ég alltaf getað leitað til þeirra og fengið ráð,
alveg sama hvort er til dæmis um agamál að
ræða eða einfaldlega hvernig hægt er að setja
upp verkefni eða skrá í Mentor.“
Aukið sjálfstraust
Sveinn Leó segir að hann sé nú miklu meðvit
aðri um það starf sem fer fram innan skólans
en þegar hann hóf þar störf og nefnir agamál
og samskipti við foreldra sem dæmi.
„Einnig finnst mér ég einhvern veginn
hafa meira sjálfstraust til að fara út fyrir
rammann og prófa nýja hluti. Starfsþróunin
felst kannski að einhverju leyti í því að hafa
meiri trú á sjálfum sér og vera þar með frekar
tilbúinn að prófa nýja hluti.“
Hann segir að ef eitthvað hafi komið sér
á óvart í kennslunni sé það helst hversu sterk
skólamenning getur verið. „Ég tel það jákvætt
að skólar eigi sínar hefðir sem þeir viðhalda
eftir bestu getu. Einnig get ég nefnt hversu
takmarkaður undirbúningstími kennara getur
verið og tel ég að það ætti að vera ofarlega í
forgangsröðun þeirra sem semja fyrir hönd
kennara í komandi kjaradeilum að auka þann
tíma eins mikið og mögulegt er.
Mig langar líka að nefna úrræðaleysi fyrir
þá nemendur sem þrífast illa inni í 24 manna
bekk. Það kom mér örlítið á óvart hversu fá
úrræði eru oft og tíðum fyrir þá nemendur og
hvernig kennarar standa stundum einir á báti
hvað þá varðar.“
Stærðfræði
Þegar Sveinn Leó er beðinn um að lýsa sér
sem kennara segir hann: „Áhugasamur,
skemmtilegur, fyndinn og uppátækjasamur.“
Hver eru svo framtíðarsýn og markmið
hans sem kennara?
„Framtíðarsýn mín og markmið eru að
mörgu leyti þau að verða kennari sem er ekki
sama um nemendur sína og hefur áhuga á
því sem hann er að gera. Mig dreymir um að
vera sá kennari sem nemendur muna eftir
frá skólaárum sínum. Með það að leiðarljósi
langar mig að vera kennari sem þorir að fara
öðruvísi leiðir til að ná markmiðum sínum og
vekja áhuga nemenda. Áhugi á námi, og þá
sérstaklega stærðfræði, er mér mjög hugleik
inn og mig langar að reyna að vekja áhuga
nemenda minna á stærðfræði og hversu
frábær, skemmtileg og frumleg fræðigrein
hún er í raun og veru.“
Mætti bæta þjónustu
Sveinn Leó segir að ýmislegt megi bæta í
skólakerfinu.
„Það mætti bæta þá þjónustu sem er í
boði fyrir nemendur sem eru á sitt hvorum
enda hins akademíska litrófs; það er nem
endur sem ætla sér ekki að stefna á bóklegt
framhaldsnám og eru ekki sterkir í bóknámi
og þá nemendur sem standa öðrum framar
og teljast til afburðanemenda. Við verðum að
haga hlutunum þannig að þessir nemendur
fái tækifæri til að að blómstra á sínum eigin
grundvelli án þess þó að gleyma þeim sem
á milli þeirra eru. Einnig mættum við hlúa
betur að kennurum svo þeir endist betur og
lengur í starfi. Svo mætti skólakerfið einnig
vera töluvert betur statt hvað tæknilegar
hliðar varðar; að skólar fái fjármagn til að
geta fjárfest í tölvum, spjaldtölvum, snúrum
og öðrum tæknibúnaði sem gerir þeim kleift
að sinna þeirri vinnu sem þeim er skylt að
gera. Það á einnig við um viðhald og stjórnun
á þeim hlutum sem gæti meðal annars verið í
formi þess að hver skóli fengi fjármagn til að
vera með tölvu eða tækniumsjónarmann í
fullu starfi.“
Mig dreymir um að
vera sá kennari sem
nemendur muna eftir
frá skólaárum sínum.