Skólavarðan - 2018, Page 17
VOR 2018 SKÓLAVARÐAN 17
vinni fjölbreytt verkefni. Verkefnin reyna
á lausnamiðaða nálgun, öflun upplýsinga,
úrvinnslu og miðlun. Áhersla er lögð á
að nota fjölbreytta verkferla í vinnunni
t.d. við greiningu og notkun heimilda,
við rannsóknir og hönnun, í samvinnu og
umræðum og við þá fjölbreyttu miðlun sem
á sér stað. Nemendur voru í einni lotunni
að vinna með erfðafræði. Þá var farið í
heimsókn í Íslenska erfðagreiningu og
einhverjir nemendur höfðu sjálfir samband
við sérfræðinga, spurðu spurninga og
öfluðu sér þannig upplýsinga um efnið og
lærðu að leita nýrra leiða í heimildaleit.
Reynslan af Sprellifixum er mjög jákvæð.
Nemendur hafa fleiri tíma í vikunni
til að vinna verkefnin en tímabilin eru
styttri, áður var kannski verið að vinna í
mörgum verkefnum og ótengdu efni undir
mismunandi námsgreinum á sama tíma.
Nú starfa nemendur að einu verkefni sem
tengist ákveðnu efni og vinnan verður mun
markvissari. Í hverju Sprellifixi reynum
við að virkja tengingar milli sviða og sem
dæmi má nefna að þegar lotan fjallar um
erfðafræði er kvikmynd um efnið undir
í bókmenntum og fókusinn er ekki bara
á erfðafræði eins og hún kemur fyrir í
náttúrufræði heldur líka áhrif erfðatækni á
samfélagið og þær siðferðilegu spurningar
sem vakna.“ segir Björgvin.
Björgvin vísar í mynd af heildarferl
inu og útskýrir hana: „Markmiðið er að
allir þessir þættir skili sér hjá nemendum.
Hæfniviðmið úr aðalnámskrá eru metin
beint og öll verkefni skipta jafn miklu máli,
allt ferlið telur. Mikið er lagt upp úr að
nemandi temji sér skapandi og gagnrýna
hugsun, að hann geti tjáð sig og miðlað upp
lýsingum. Í þessu námi eru engin takmörk.
Nemandinn hefur alltaf svigrúm til að taka
verkefni lengra og í þá átt sem hann vill.
Hann sér kannski nýjan vinkil á efninu og
vinnur það áfram í samvinnu við kennarana.
Einhverjir hafa haft áhyggjur af því að
námsefnið skili sér ekki en þær áhyggjur eru
óþarfar. Þau hugtök sem nemandinn þarf
að þekkja eru listuð upp og það er ekki hægt
að þjálfa upp hæfni nemenda nema byggja
vinnuna á góðum grunni, efninu sjálfu.
Umræðan og viðbrögð við þessari nýju
námsleið hafa verið mjög jákvæð og ég get
sagt að margir nemendur hafi tileinkað sér
hugarfar sigurvegarans – að gera ávallt sitt
besta miðað við tímann sem í boði er.“
Sér stundatöfluna hverfa
Smiðjan er tilraunaverkefni til þriggja ára en
nú þegar er mikil vinna að baki sem snýr t.d
að því að búa til verkefni og verkefnahefti.
„Við kennararnir sjáum nemendur vaxa, vera
eins og eldflaugar. Það eru engin takmörk,
ekkert þak og það er stórkostlegt að sjá hvað
sumir nemendur eru nýta sér það. Framtíðar
sýnin mín er heildstæður vinnudagur þar
sem allar námsgreinar eru inni í Smiðju. Við
getum með þessu móti þjálfað nemendur
á fjölbreyttan hátt og þurfum ekki að vera
eins föst við greinarnar. Stundataflan myndi
hverfa en einn af göllunum við hana er sá að
það er erfitt að bæta nýjungum við og þróa
skólastarfið ef við ætlum alltaf að búa til nýja
námsgrein inn í 40 mínútna tímaskipulag
þegar eitthvað nýtt verður mikilvægt.
Skóladagurinn væri líkt og vinnudagur
sem hægt er að þróa með samfélaginu, þó
hann byggi á námskrá þar sem grunnefnið
er alltaf til staðar. Með þessari aðferð öðlast
nemendur mun meiri færni til framtíðar
að mínu mati,“ segir Björgvin og fróðlegt
verður að fylgjast með hvar þetta verkefni
verður statt eftir fimm ár.
Við erum að búa nem
andann undir að vera
stafrænn borgari. Við
kennum nemendum
að virða siðferði við
notkun tækja og miðla.
Nemendur skilgreindu hvað felst í rannsókn og settu upp á myndrænan hátt.
Heildarferlið í hverju Sprellifixi en markmiðið er að allir þessir þættir skili sér inn í nám nemenda.