Skólavarðan


Skólavarðan - 2018, Side 29

Skólavarðan - 2018, Side 29
VOR 2018 SKÓLAVARÐAN 29 hrun að styrkja menntakerfið í stað þess að draga þar saman, því þannig myndu menn vinna sig hraðar út úr vandanum. Við reyndum að benda á þetta en því miður töluðum við fyrir daufum eyrum. Það var reyndar reynt að hlífa menntakerfinu þannig að niðurskurðurinn þar varð minni en víða annars staðar í hinum opinbera rekstri, en þó tel ég að allt of langt hafi verið gengið. Það eru til dæmis sláandi tölur sem hag­ fræðingur KÍ hefur safnað saman, sem sýna að ef við skoðum fjárframlög til menntamála á hvern mann hér á Íslandi, þá vantar í dag milli 15 og 16 milljarða inn í skólakerfið til að framlög verði jafn há og þau voru árin fyrir hrun. Þar er ég að tala um allt skólakerfið, frá leikskóla upp í háskóla auk tónlistarskólans. Þetta er augljóslega eitthvað sem þarf að skoða. En þetta snýst ekki allt um fjármuni. Vandinn er að einhverju leyti að við erum með menntakerfi sem erfitt er að breyta. Þegar á reynir fer hver að passa sitt sem hefur leitt til þess að ríkisstjórnir og ráð­ herrar virðast ekki hafa haft dug eða þor til að stíga stór skref í þá átt að breyta kerfinu og þar með efla það. Ég er líka á því að við þurfum að efla kennaramenntunina og leita allra leiða til að auka áhuga ungs fólks á kennarastarfinu. Þar þarf ekki bara að bæta ímyndina heldur þurfa stjórnvöld að horfast í augu við að þau þurfa bæði að hækka laun og bæta vinnuaðstæður kennara. Það er brýnasta verkefnið framundan í menntakerfinu og þolir raunar enga bið. Kennarastarfið þarf að vera alvöru valkostur og það er ólíðandi að ungt fólk sjái sér ekki fært að starfa við kennslu vegna þess að það telur sig ekki geta framfleytt sér á kennara­ launum. Til viðbótar eykur vinnuálagið og vinnuumhverfið á vandann sem leiðir til þess að allt of fáir eru í kennaranámi í dag, sem er auðvitað verulegt áhyggjuefni.“ Kennarar hafa skýra sýn „Ef við horfum til framtíðar tel ég að það séu risavaxin verkefni framundan. Fyrir utan þessi mál sem ég hef þegar nefnt, þ.e. hækk­ un launa, bættar vinnuaðstæður, minna álag o.s.frv., þá þarf núverandi forysta einnig að huga að uppbyggingu KÍ. Ég hef beitt mér fyrir ákveðnum breytingum á skipulagi Kennarasambandsins síðustu ár, til dæmis í tengslum við úttekt sem fyrirtækið Capacent gerði árið 2015. En því starfi er aldrei lokið og gott skref í tengslum við það var stigið á nýafstöðnu þingi, þegar tillaga um að skipa milliþinganefnd var samþykkt, en hún hefur það verkefni að huga að framtíðarupp­ byggingu KÍ. Ég bind miklar vonir við starf nefndarinnar enda þarf samband eins og KÍ stöðugt að huga að því hvað sé hægt að bæta og hverju þurfi að breyta. Ég sé fyrir mér að á þessu kjörtímabili verði meðal annars skoðað hvort Kennarasambandið geti átt sterkara samstarf við BHM, hvort hægt sé að efla samstarf við kennara í háskólum landsins o.s.frv.“ Talað hefur verið um nýafstaðið þing KÍ sem átakaþing. Hvernig heldur þú að Kennarasambandið og forystan komi til leiks að því loknu? „Já, það hefur auðvitað verið í umræðunni en ég er ekki viss um að það sé rétt. Ég fékk á tilfinninguna að ekki hafi verið tekist sérstaklega mikið á um málefnin og á þinginu fóru fram mjög góðar umræður um öll okkar helstu baráttu­ og hagsmunamál. Þó að átök hafi orðið um ákveðnar tillögur og einnig um núverandi formann, þá varð niðurstaðan að endingu sú að forystan sem nú tekur við keflinu er með sterk skilaboð frá þinginu um hvert skuli stefna.“ Ætlar að sinna Íþróttasambandi fatlaðra Hvað bíður þín persónulega eftir að KÍ sleppir? „Ég er nýlega orðinn sextugur og dett fljótlega inn á 95 ára regluna, þannig að ég nýt þeirra forréttinda að geta farið á lífeyri ef ég svo kýs. En það er aldrei að vita nema eitthvað spennandi bjóðist og þá skoða ég það bara. En núna horfi ég sérstaklega til þess að ég hef starfað sem sjálfboðaliði fyrir Íþróttasamband fatlaðra í tugi ára og var nýlega kjörinn formaður sambandsins. Þó það sé ekki launuð staða hlakka ég til að hafa meiri tíma til að sinna þeim verkefnum sem þar bíða. Því til viðbótar hef ég einfaldlega lofað mér að eyða meiri tíma í sjálfan mig, vera duglegri við að fara út að ganga og hreyfa mig og passa upp á heilsuna.“ Þórður Á. Hjaltested, fv. formaður KÍ, og Haraldur Freyr Gíslason, formaður FL, heimsóttu leikskól­ ann Grænuborg á Alþjóðadegi kennara 2016. Þeir fengu góðar móttökur á þessum elsta leikskóla borgarinnar en hann var stofnaður árið 1931. „Ef við skoðum fjár­ framlög á hvern mann hér á Íslandi, þá vantar í dag milli 15 og 16 milljarða inn í skólakerfið til að framlög verði jafn há og þau voru árin fyrir hrun.“

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.