Skólavarðan


Skólavarðan - 2018, Síða 39

Skólavarðan - 2018, Síða 39
VOR 2018 SKÓLAVARÐAN 39 FALLEG FORSÍÐA Á HANDBÓK SEM KEMUR EKKI ÚT „Þetta var ánægjulegt verkefni í alla staði og mjög gott að geta lagt raunhæf verkefni fyrir hópinn. Í svona vinnu fá nemendur tilfinningu fyrir hvað þarf til að skila af sér slíku verkefni en ekkert þeirra hafði reynslu af myndskreytingu af þessu tagi,“ segir Helga Guðrún Helga- dóttir, brautarstjóri á hönnunar- og nýsköpunarbraut Tækniskólans, en hún stýrði verkefninu ásamt Þórdísi Zoëga sem stýrir brautinni með henni. Ekki verður annað sagt en hönnun forsíðu Handbókar- innar hafi tekist vel en allar kápurnar eru fallegar og bera hugmyndaauðgi nemenda gott vitni. Ferlið var þannig að nemendur fengu alhliða kynningu á Kennarasambandinu, uppbyggingu þess og aðildarfélögum og auðvitað Hand- bókinni sem kennarar á öllum skólastigum hafa notað um langt árabil. Nemendurnir unnu að verkefninu í rúman mánuð og héldu síðan kynningu fyrir dómnefnd þar sem þeir skýrðu hugmyndina að baki sinni mynd. Það er von ritstjóra Skólavörðunnar að nemendurnir hafi haft bæði gagn og gaman af verkefninu og fá þeir bestu þakkir fyrir. ljósmyndun, grafísk forrit og prentun. „Þau kynnast mismunandi aðferðum og efnum og finna sitt áhugasvið sem þau geta hugsan­ lega farið inn á síðar. Vinnan á verkstæð­ unum breikkar sjóndeildarhringinn,“ segir Helga Guðrún. „Hugsunin hjá okkur er að leggja áherslu á sköpun og frumkvæði – að nemendur finni sig sjálfa. Þetta er ekki páfagaukalærdómur heldur er markmiðið að efla einstaklinginn eins og hann er, ekki breyta honum,“ segir Þórdís. Hönnunar­ og nýsköpunarbraut er þriggja ára stúdentsbraut sem undirbýr nemendur undir háskólanám í hönnun, arkitektúr eða annað skapandi nám. Innan brautarinnar er líka boðið upp á eins árs fornám fyrir þá sem eru þegar búnir með stúdentspróf. Markmiðið í náminu er að vinna með hönnun og nýsköpun í tengslum við umhverfi og sjálfbærni. Báðir þessir hópar undirbúa ferilmöppu á lokaönninni í náminu sem þeir geta lagt fram í um­ sóknarferli um framhaldsnám. Lögð var áhersla á að vandað væri til allra þátta við samsetningu brautarinnar og frá upphafi voru lagðar skýrar línur um bóklegu fögin – svo sem áhersla á stærð­ fræði. „Við leggjum áherslu á að nemendur útskrifist héðan með gott stúdentspróf,“ segir Þórdís. Hingað til hefur brautin gengið vel en fyrstu stúdentarnir útskrifast af henni eftir eitt ár. „Við erum með frábæra nemendur og þeir eru sérstakir að því leyti að þeir koma einir hingað, ekki í vinahópi eins og kannski er algengt í öðrum skólum. Þetta eru krakkar sem eru sjálfstæðir og koma vegna áhuga á því sem hér er kennt,“ segir Helga Guðrún. IN MEMORIAM Handbók kennara á sér langa sögu innan kennarasamtakanna. Forsíður bókanna prýða anddyri Kennarahússins og er sú elsta frá 1989. Þær bera tíðaranda og tísku­ straumum á hverjum tíma gott vitni. Nú hefur útgáfu bókarinnar verið hætt og stendur sú ákvörðun að minnsta kosti út þetta kjörtímabil eða til ársins 2022. 1 2-3 2-3

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.