Skólavarðan - 2017, Side 12
12 VOR 2017
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Flott föt, fyrir flottar konur
Str.
38-58
Holtasmári 1, 201 Kópavogur. Sími 571-5464
tvisvar á önn og síðan eru einstaklingssam-
töl með foreldrum og barni, eitt að hausti og
annað að vori. Áður en einstaklingssamtalið,
eða fundurinn, fer fram er barnið búið að
svara ýmis konar spurningum og efni þeirra
svo rætt á fundinum.
Mig langar að nefna eitt sem mér fannst
athyglisvert þegar Dísa var að byrja í skól-
anum. Það er hvernig tekið var á móti henni
sem útlendingi. Fyrst fór hún í eins konar
stöðumat á skólaskrifstofunni niðri í bæ. Þar
var hún, sem reyndar talaði enga sænsku,
látin lesa og hitti hjúkrunarkonu og það var
farið yfir hlutina. Hún fékk að vita að þetta
mat gæti tekið frá því að koma á hverjum
degi í tvær vikur eða lengur eða bara eitt
skipti, eins og varð raunin með hana. Þetta
er til þess að finna hvar viðkomandi passi
inn. Ef um er að ræða nemendur sem koma
úr allt öðru umhverfi og aðstæðum geta þau
semsagt þurft að sækja tíma í tvær til þrjár
vikur, áður en skólinn sjálfur byrjar. Þegar
Dísa byrjaði svo í skólanum fékk hún strax
auka sænskukennslu, einu sinni í viku. Þá
var hún tekin út úr bekknum og svo var
metið hvort hún þyrfti að fá aðstoð inni í
bekknum, sem ekki reyndist nauðsynlegt.
Hún á sænskar vinkonur, sem hún leikur sér
við og búa hérna í nágrenninu.“
Hvað með íslenskukennslu í skólanum,
er slíkt í boði?
„Já, samkvæmt lögum hér eiga allir
erlendir nemendur rétt á að fá kennslu í
sínu móðurmáli. Dísa fær einu sinni í viku
kennslu í íslensku. Þetta eru einkatímar því
hún er eini Íslendingurinn í þessum skóla.
Kennarinn er Íslendingur sem fer á milli
skóla, sinnir semsagt mörgum skólum.
Kennslan er annars með svipuðum hætti og
heima, en þó er mun meira um að kennt sé
utandyra, bæði t.d. stærðfræði og nátt-
úrufræði.“
Fer hún með nesti í skólann?
„Nei, það er matur í skólanum, bæði
hressing á morgnana og svo hádegismatur.
Það er foreldrum að kostnaðarlausu og mér
hefur sýnst maturinn vera fjölbreyttur og
Dísa er mjög ánægð með hann.“
Þurftuð þið að kaupa skólabækur og
annað sem tilheyrir skólagöngunni?
„Þessari spurningu er fljótsvarað. Það
þurfti ekki að kaupa neitt, hvorki bækur né
annað. Ef börnin fara á frístundaheimilið
þarf að greiða gjald, mun minna þó en
á Íslandi. Yngri stelpurnar tvær eru á
leikskóla og fyrir það þarf að borga. Ég hef
reiknað út að það sem við borgum hér fyrir
þetta, leikskólann og frístundina, er um það
bil fjórðungur þess sem sambærilegt kostar
heima (á Akureyri).
Skólaárið er frá 19. ágúst til 10. júní, ein
vika í haustfrí og önnur í svonefnt vetrarfrí á
vorönninni.“
Svo eigið þið eigið tvær yngri dætur?
„Já, þær eru báðar á leikskóla hér í
hverfinu og eru mjög ánægðar. Hér eiga
öll börn rétt á leikskólaplássi frá eins árs
aldri og ekkert sem heitir að þau þurfi að
vera heima vegna veikinda á leikskólanum.
Það hefur vakið athygli okkar foreldranna
að þær tvær eldri tala oft saman á sænsku
þegar þær eru að leika sér. Við reynum
að passa upp á íslenskuna og tölum alltaf
íslensku hér heima.
Mér þykir rétt að geta þess að við fáum
barnabætur með þeim tveim yngri, samtals
3.800 sænskar krónur á mánuði. Þetta er
ekki tekjutengt og er meira en það sem við
borgum fyrir gæsluna. Launin hér í Svíþjóð
eru ívið lægri en heima en okkur finnst
hins vegar meira verða eftir í veskinu. Það
ríkir að mínu mati líka meiri skilningur á
vinnustöðum gagnvart foreldrum heldur en
heima. Aftur á móti er fyrsti veikindadagur
hér ekki launaður.“
Að lokum, þú ert sjálf nýbyrjuð að
vinna.
„Ég var svo heppin að fá vinnu hjá
IKEA, það gerist ekki sænskara. Starfsheitið
er sérfræðingur á samskiptasviði og ég sinni
samskiptum við fjölmiðla um allan heim.“
Með þessum orðum er botn sleginn í
viðtalið.
Freyja Dögg Frímannsdóttir