Skólavarðan - 2017, Side 25
VOR 2017 25
á einstaklingsmiðað nám, en ástæðan er
líklega sú að þeir hafa ekki náð sama takti og
reynslumeiri kennarar,“ segir Jónína.
ómetanlegur lærdómur
Kennaranámið er að mati Jónínu mjög gott í
flesta staði og hún segir árin í HA hafa verið
ljúf og ánægjuleg. „Ég get sannarlega mælt
með náminu hér í HA. Þetta hefur verið
gefandi og skemmtilegur tími.“
Það má samt alltaf gera betur og Jónína
velti því upp í rannsókn sinni og spurði
hvað hinir nýútskrifuðu kennarar teldu að
vantaði eða mætti betur fara í náminu. „Ég
fæ að hluta til mjög áþekka niðurstöðu og
María fékk í sinni rannsókn árið 2005, en
það er að kennaranemar vilja auka við vett-
vangsnámið og fá meiri tengingu við skólana
og kennsluna. Það er svolítið merkilegt að
viðmælendur nú skuli segja það sama og
kollegar þeirra gerðu fyrir 12 árum því það
var bætt verulega við vettvangsnámið þegar
námið var lengt upp í fimm ár.
„Það töluðu allir um að þeir hefðu lært
langmest í vettvangsnáminu og einn hafði
á orði að gott væri að tala minna um karla
og kenningar en meira um það sem gerist í
skólastofunni og samskipti við nemendur og
foreldra,“ segir Jónína og bætir við að einn
kennaranna hafi sagt að eftir á að hyggja liti
hann á fyrsta árið sitt í starfi sem sjötta árið
á kennaranáminu.
„Ég er sammála því að það væri jákvætt
skref að auka við vettvangsnámið, enda er
það mjög lærdómsríkt. Við lærum mikið
um kenningar John Dewey en hann var
frumkvöðull stefnunnar Learning by doing
og því ættum við að leyfa kennaranemum að
fylgja þeirri stefnu betur en gert hefur verið.
Leyfa þeim að læra af reynslunni,“ segir
Jónína og bætir við að auðvitað sé ekki hægt
að kenna allt í náminu, sumt þurfi fólk að
læra af reynslunni.
Annað atriði sem Jónína telur að væri
gulls ígildi fyrir kennaranema er kennsla í
samskiptum, ekki síst þegar kemur að sam-
skiptum í rituðu máli. „Viðmælendur höfðu á
orði að það hefði komið þeim á óvart hversu
mikið af samskiptum við foreldra færi fram
í gegnum tölvupóst. Þeir segja að þjálfun í
skrifum væri góð því þessi samskipti þurfa að
vera fagleg og kennarar þurfa að gæta orða
sinna þarna sem annars staðar.“
Þá telur Jónína að efla mætti kennslu í
því að koma fram. „Kennarastarfið snýst að
miklu leyti um að standa og tala fyrir framan
hóp. Það mætti aðstoða kennaranema við að
efla sjálfstraustið í þessum efnum og gera þá
betur þjálfaða í mannlegum samskiptum.“
Meira vettvangsnám, þjálfun í sam-
skiptum í kennaranáminu og markviss
handleiðsla fyrsta árið er semsagt það sem
stendur svolítið upp úr í ritgerð Jónínu.
„Innleiðingarkerfi og handleiðsla fyrsta
árið eru gríðarlega mikilvæg atriði. Margar
rannsóknir hafa sýnt fram á þörfina á þessu
en um leið má handleiðslan ekki verða baggi
á kennaranum sem tekur hana að sér. Það
verður að búa svo um hnúta að kennari sem
tekur að sér að halda utan um nýjan kennara
fái afslátt af kennsluskyldu á móti, það
gengur ekki að bæta þessu á aðrar starfs-
skyldur. Það er nefnilega þannig að brottfall
nýrra kennara er langmest og langlíklegast
fyrstu fimm árin í starfi. Við verðum að taka
höndum saman um að aðstoða kennara sem
eru að feta fyrstu skrefin – það er betra fyrir
þá og skólastarfið í heild.“
Hlakkar til að hefja störf í kennslu
Jónína er sem fyrr segir að ljúka M.Ed-gráðu
frá Kennaradeild HA í vor. Hún býr að góðri
reynslu, bæði hvaða varðar menntun og fyrri
starfsferil. „Ég mun starfa við kennslu frá
og með næsta hausti.“ Hún segir mikilvægt
að kennarar sinni starfi sínu af áhuga og
ástríðu og hafi þannig örvandi og góð áhrif á
nemendurna. „Það skiptir miklu máli að vera
líflegur í fasi því það nennir enginn að hlusta
á kennara halda fyrirlestur ef það skín í gegn
að hann hefur ekki áhuga á því sem hann er
að tala um. Við getum ekki ætlast til þess af
börnum og ungmennum að þau séu eitthvað
öðruvísi,“ segir Jónína Björk Stefánsdóttir,
meistaranemi og verðandi M.Ed.
„Ég get sannarlega mælt með náminu hér í
Háskólanum á Akureyri. Þetta hefur verið gef
andi og skemmtilegur tími.“
Hvar eru löndin
í heimsálfunum?
Afríka
Evrópa
Norðu
r-Ame
ríka
Asía
Eyjaálfa
Skólavefurinn.is kynnir
Suður-
Ameríka