Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 49
VOR 2017 49
Á vefsíðunni hönnuhús.is er hægt að
heimsækja Hönnu og fjölskyldu hennar. Í dag
er fjölskyldan að þrífa heimilið og mamma
hennar segir við hana: „Ekki vera fyrir,
Hanna, það getur verið hættulegt að þrífa
heimilið.“ Hönnu leiðist en fær skyndilega
hugmynd. „Ég ætla að komast að því hvers
vegna það getur verið hættulegt að þrífa
heimilið!“ Hún grípur myndavélina sína, fer
um húsið og tekur myndir af fjölskyldunni að
þrífa.
Huldar hættur á heimili Hönnu er
skemmtilegt og einfalt kennsluefni á netinu.
Um er að ræða vefsíðu (www.honnuhus.is)
sem er öllum aðgengileg. Kennsluefnið er
hugsað fyrir nemendur í þriðja til sjöunda
bekk í grunnskóla. Tilgangur efnisins er að
vekja nemendur til umhugsunar um hættu-
leg efni og tryggja örugga notkun þeirra.
Markmiðið er að nemendur átti sig á
þeim mismunandi hættum sem geta
stafað af efnavörum. Í Hönnuhúsi
geta nemendur ferðast um á heimili
Hönnu og kynnst um leið efnavörum
sem eru algengar á heimilum og lært
um hættumerkingar á þeim.
Ýmsar efnavörur finnast á
heimilinu sem börn geta komist í
návígi við. Þetta geta verið efnavörur
á borð við hreinsiefni, stíflueyði,
grillvökva, viðarvörn og fleira. Alvarlegur
augnskaði, skaði á húð eða eitranir eru dæmi
um skaða sem börn geta orðið fyrir. Það er
því nauðsynlegt að fræða börn um mögulegar
hættur til að minnka líkurnar á slysum. Ef
farið er varlega og efnin notuð á réttan og
öruggan hátt er ekkert að óttast.
Nemendur fá að fylgjast með Hönnu
þegar hún er að taka myndir af fjölskyldunni
að þrífa heimilið. Nemendur glíma við spurn-
ingar til að athuga hvort þeir viti réttu svörin
varðandi hætturnar sem geta leynst heima.
Í Hönnuhúsi er farið í gegnum mismunandi
tilvik þar sem fjölskyldumeðlimir eru við
ýmis heimilisstörf og notast er við efnavöru
sem getur reynst varasöm ef hún er ekki not-
uð á réttan og öruggan hátt. Nemendur eru
spurðir um varúðarráðstafanir við notkun
efnavara og einnig hvaða hættumerki finnast
á ýmsum vörum og hvað þau þýða.
Á vefsíðunni má finna upplýsingar
um hættumerkin ásamt leiðbeiningum
fyrir kennara um kennsluefni, en það gæti
hentað vel fyrir kennslu í raunvísindum
eða lífsleikni. Huldar hættur á heimili
Hönnu er samnorrænt verkefni
þróað í samvinnu fimm Norð-
urlanda: Íslands, Danmerkur,
Svíþjóðar, Noregs og Finn-
lands, með styrk frá Norrænu
ráðherranefndinni. Nú er verið að vinna að
uppfærslum og viðbótum við kennsluefnið
sem munu bætast við vefsíðuna von bráðar.
Þar er um að ræða meira kennsluefni, t.d.
vísindagreinar fyrir eldri aldurshópinn. Hægt
er að hafa samband við Umhverfisstofnun
ef óskað er eftir frekari upplýsingum um
Hönnuhús.
HAFIð ÞIð KÍKT Í HÖNNUHÚS?
Helga Ösp
Jónsdóttir
sérfræðingur, fyrir
hönd Umhverfis-
stofnunar.
Fararsnið sérhæfir sig
í ferðum á:
• Education Show
í Birmingham,
16. - 18. mars 2017
• Fyrirlestra- og
skólaheimsóknir
um Evrópu
Fararsnið ehf.
Lundi 17,
200 Kópavogi
S. 696 6616
jonkarl@fararsnid.is
www.fararsnid.is