Vinnan - 01.12.1946, Blaðsíða 11
Magnus Thorheim, en hann fékk enga ferð og
gat því ekki komið.
Einnig voru gestir þingsins þeir Guðjón B.
Baldvinsson, forseti Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja, Lúter Grímsson, fulltrúi Farmanna- og
fiskimannasambands Islands, og Sigurður Guð-
geirsson, fulltrúi Iðnnemasambands íslands.
Forseti þingsins var kosinn Þóroddur Guð-
mundsson, I. varaforseti Guðgeir Jónsson og 2.
varaforseti Steingrímur Aðalsteinsson.
Aldrei áður hafði verið vandað eins til undir-
búnings nokkurs sambandsþings, og var fundar-
salurinn fagurlega skreyttur. Yfir forsætinu var
rauður fáni, en framan við hann voru fánar allra
Norðurlandanna. A veggjunum voru spjöld með
áletruðum kjörorðum þingsins:
Verndum einingu alþýðunnar. Lifi Alþýðu-
samband Islands.
Eining verkalýðsins er afl, sem ekkert vígi fær
staðizt.
Aldrei framar atvinnuleysi. Knýjum fram upp-
byggingu atvinnuveganna.
Lýðraíði er fjöregg þjóðarinnar.
Lifi Alþjóðasamband verkalýðsins.
Á fundarborðunum í salnum voru spjöld með
nöfnum allra sambandsfélaga, sem fulltrúa sendu
og sætanúmerum, svo að hver fulltrúi gat gengið
að því sæti, sem honum var ætlað. Á borði hvers
fulltrúa fá mappa fyrir þingskjölin.
Forseti Alþýðusambandsins, Hermann Guð-
mundsson, setti þingið og drap fyrst á hin breyttu
viðhorf frá því 18. þingið var háð, þegar styrj-
öldin geysaði. Því næst minntist hann þeirra
manna íslenzkra er látið höfðu líf sitt, af völdum
stríðsins frá því 18. þingið var haldið svo og ann-
arra félaga, sem látizt höfðu á þessu tímabili. Sér-
staklega minntist hann Laufeyjar Valdimarsdótt-
ur, sem eins og kunnugt er vann mikið og óeigin-
gjarnt starf í þágu alþýðunnar, og Sigurðar Jó-
hannssonar skipstjóra frá Eskifirði, sem fórst
Konur á 19. þingi Alþýðusambands Islands, talið frá vinstri sitjandi: GuÖbjörg Guðmundsdóttir, Seyðisfirði, Dagrney Ein-
arsdóttir, Vestm.eyjum, Helga ]óhannesdóttir, Sauðárkróki, Jónína Hermannsdóttir, Hofsósi, Hólmfr. Helgadóttir, Rvik,
Þuríður Friðriksdóttir, Rvik, Elisabet Eiríksdóttir, Akureyri, Rikey Eiriksdóttir, Siglufirði, Ásta Ólafsdóttir, Siglufirði, Guð-
rún Guðvarðardóttir, Akureyri og Ragnhildur Snædal, Eskifirði. Standandi talið frá vinstri: Aðallieiður Bjarnfreðsdóttir,
Vestm.eyjum, Sigriður Ólafsdóttir, Akranesi, Gunnhildur Guðjónsdóttir, Rvík, Vilborg Ólafsdóttir, Rvík, Halldóra Ó. Guð-
mundsdóttir, Rvík, Elin ]óelsdóttir, Rvik, Þorgerður Þórðardóttir, Húsavik, Halldóra Eiríksdóttir, Siglufirði, Kristrún Krist-
jánsdóttir, Rvík, Guðrún Sveinsdóttir, Rvik, Guðlaug Vilhjálmsdóttir, Rvik, Petra Pétursdóttir, Rvik og Guðrún Finnsdótt-
ir, Rvik. Á myndina vantar fulltrúa Verkakvennafél. Framtiðarinnar i Hafnarfirði, þœr Sigurrós Sveinsdóttur, Guðrúnu
Nikulásdóttur og Sigríði Erlendsdóttur.
VI N N A N
317