Vinnan


Vinnan - 01.12.1946, Page 12

Vinnan - 01.12.1946, Page 12
Nítjánda þingið að störfum með Borgey. Heiðraði þingheimur minningu þeirra með því að rísa úr sætum. Að lokinni ræðu forsetans lék hljómsveit, sem í voru beztu tónlistarmenn bæjarins, alþjóðasöng verkalýðsins og íslenzka þjóðsönginn. Þá fluttu þeir Alfred Skar og Albin Lind kveðj- ur frá norsku og sænsku alþýðunni, og voru norski og sænski þjóðsöngurinn leiknir á eftir ræðum þeirra. Fulltrui Dana náði ekki í tæka tíð til landsins, til þess að vera við þingsetninguna. Þá tók til máls hinn aldurhnigni heiðursgestur þingsins, Otto N. Þorláksson, fyrsti forseti Al- þýðusambandsins.. Var ræða hans kyngimögnuð áskorun um að standa sameinaðir og vera á verði um sjálfstæði og frelsi íslands. Því næst voru fluttar kveðjur innlendra félaga- samtaka. Guðjón B. Baldvinsson flutti kveðju frá B. S. R. B., Lúter Grímsson flutti kveðju Far- mannasambandsins og Sigurður Guðgeirsson kveðju Iðnnemasambandsins. Að því loknu var gengið til venjulegra þingslarla og hafði Guð- mundur Vigfússon framsögu fyrir kjörbréfanefnd Þegar búið var að kjósa forseta þingsins, ritara og nefndir, flutti Jón Rafnsson framkvæmdastjóri sambandsins skýrslu sambandsstjórnar og rakti í ýtarlegu máli þróunarsögu sambandsins og ár- angra síðustu ára. Á þingfundi Alþýðusambandsins þann 11. nóv. skýrði gjaldkeri sambandsins, Guðbrandur Guð- jónsson, frá fjárhag sambandsins, og var hann betri en hann hafði nokkru sinni verið áður. Þá flutti fulltrúi danska Verkalýðssambandsins, Carl P. Jensen, kveðju þess. Fyrir þinginu lágu mörg viðfangsefni og má þar nefna sjálfstæðismálið, kjaramálin, atvinnu- málin og dýrtíðarmálin. Fara hér á eftir helztu tillögur og ályktanir, sem samþykktar voru. Um atvinnumálin var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Þingið lýsir yfir eindregnu fylgi sínu við al- hliða nýsköpun atvinnulífsins og leggur ríka á- herzlu á framhald nýsköpunarstarfsins, sem öllu öðru fremur tryggir næga atvinnu, eykur þjóðar- tekjurnar og skapar grundvöll til bættra l,ífskjara almennings í landinu. Þingið telur að sérstaka áherzlu beri að leggja á eftirfarandi: 1. Uppbyggingu fiskiðnaðarins með forgöngu 318 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.