Vinnan - 01.12.1946, Síða 14
Erlendu fulltrúarnir á þinginu.
Talið frá vinstri: Albin Lind frá
Sviþjóð, Alfred Skar frá Noregi og
Carl P. Jensen frá Danmörk. I
rœðustólnum: Jón Rafnsson, fram-
kvcemdastjóri Alþýðusambandsins.
9. Komið verði á fót svo fullkomnum vísinda-
legum rannsóknum sem verða má, í þágu sjávar-
útvegsins.
10. Ný atvinnutœki verði staðsett í kauptúnum
og kaupstöðum úti á landi eftir því sem hagkvæmt
þykir þjóðhagslega og án tillits til þess hvort við-
komandi staðir hafi fjármagn til að leggja fram
til öflunar tækjanna, enda leggi þá ríkið og bank-
arnir fram nauðsynleg stofnlán.
lf. Byggingarframkvœmdir verði settar undir
stjórn hins opinbera, að svo miklu leyti sem
nauðsynlegt er til þess að fyrirbyggja okur í bygg-
ingariðnaðinum svo og til þess að leysa húsnæðis-
vandamálin og tryggja það, að vinnuafl og efni
til húsabygginga verði fyrst og fremst notað til
íbúðarhúsbygginga og brýnustu byggingarþarfa
atvinnuveganna og ltins opinbera. Ríkið tryggi
nægilegt fjármagn til bygginga verkamannabú-
staða, samvinnubygginga og íbúðabygginga bæj-
arfélaga . Gefinn verði út nýr flokkur veðdeildar-
lána með hagkvæmum lánskjörum til hóflegra
íbúðabygginga einstaklinga.
Hið opinbera taki í sínar hendur alla verzlun
með byggingarvörur og afli byggingariðnaðinum
stórvirkra, nýtízku vinnuvéla.
f2. Jafnframt ýtarleum rannsóknum á nátt-
úrugæðum landsins verði hafizt handa um nýt-
ingu á fossaafli og jarðhita til stóriðnaðar, eins
og t. d. sements- og áburðarframleiðslu og lýsis-
herzlu.
Aukin áherzla verði lögð á byggingu raforku-
vera og nýtingu rafmagns til livers konar starfa.
f3. Þingið lítur svo á, að það sé skylda þeirra
manna, sem með völdin fara í þjóðfélaginu á
hverjum tíma að tryggja, að fjármagn þjóðarinn-
ar verði notað fyrst og fremst til uppbyggingar
atvinnulífsins í landinu, án tillits til þess, á hvers
nafn þetta fjármagn er skráð, og skorar þess vegna
á Alþingi að sjá um að þessu frumskilyrði at-
vinnulegra framkvæmda í landinu verði fullnægt,
betur en tii þessa hefur verið gert.
Um nýsköpunar- og dýrtíðarmálin var sam-
þykkt eftirfarandi ályktun:
19. þing Alþýðusambands íslands telur að gera
þurfi eftirfarandi ráðstafanir til þess að tryggja
framkvæmd nýsköpunar atvinnuveganna og fulla
atvinnu til lianda öllum landsmönnum, og leysa
þau þjóðfélagslegu vandamál, sem nú steðja að
atvinnu- og fjárhagslífi landsmanna:
1. Innflutningsverzlunin verði tekin úr hönd-
um einstaklinga og komið verði á stofn lands-
verzlun og verzlun á samvinnugrundvelli til þess
að tryggja það, að allur arður af innflutnings-
verzluninni komi ríkinu til tekna eða almenningi
tii hagsbóta í lægi'a vöruverði.
2. Gerðar verði ráðstafanir af hálfu hins opin-
bera, í samráði við verkalýðssamtökin, til þess að
skipuleggja liagnýtingu vinnuaflsins í landinu,
með tilliti til þarfa framleiðslunnar.
3. Settar verði skorður við innflutning óþarfa
varnings til landsins.
4. Þess verði stranglega gætt, að erlendir verka-
menn verði ekki teknir til vinnu í landinu, nema
að fengnu samþykki verkalýðssamtakanna og að
erlendum gjaldeyri þjóðarinnar verði ekki eytt
til yfirfærslu á kaupgjaldi erlendra manna, nema
sérstakar ástæður séu fyrir hendi.
5. Lagður verði skattur á allan stórigróða, að
úndangenginni skráningu allra verðbréfa, banka-
320
VINNAN