Vinnan


Vinnan - 01.12.1946, Page 24

Vinnan - 01.12.1946, Page 24
LÚÐVÍK JÓSEFSSON: Sjávarútvegurinn og auðhringarnir Á undanförnum árum hefur orðið mikil og margháttuð breyting í atvinnulífi ísfendinga. Næg atvinna hefur verið handa öllum og heild- artekjur þjóðarinnar aldrei meiri en á síðustu árum. Styrjaldarárin 5 báru, í okkar atvinn.ulífi, greinileg merki stríðsins í veröldinni. Þúsundir landsmanna unnu á þessum tíma beint á vegum hinna erlendu herja, sem Jiér dvöldu í landinu. En nú ern nær liðin tvö ár síðan styrjöldin hætti að hafa þannig bein áhrif á atvinnulíf okkar. Öll setuliðsvinna er löngu hætt og önnur störf á vegum landsmanna sjálfra Jiafa tekið við. Það var álit margra, að nm leið og hinir er- lendu lterir hættu að halda uppi framkvæmdum í landinu, mundi atvinnuleysið halda innreið sína á ný. Vegna þeirrar framfarastefnu, sem tekin var með myndun þeirrar ríkisstjórnar, er nýlega hef- ur sagt af sér, hefur tekizt að forðast atvinnuleysi og í rauninni að auka atvinnuna og bæta lífskjör almennings frá því sem verið hafði styrjafdar- árin. Uppistaðan í þeirri atvinnuuppbyggingu, sem þá var liafin, var stórfelld efling sjávarutvegsins. Mikill meiri hluti {Djóðarinnar varð sammála um þá liöfuðnauðsyn að hefja sjávarútveginn sem aðalatvinnuveg þjóðarinnar upp á ltærra stig framleiðslutækni og afkastagetu. Á undanförnum tveimur árum hefur jtjóðin orðið Iretur og betur sammála um, að framtíð hennar og Jífsafkoma lrfýtur að byggjast á gengi aðalatvinnuvegarins, sjávarútvegsins. Nú hefur verið tryggt, að fiskveiðafloti lands- ins tvöfaldast að stærð og afköstin ættu þó að auk- ast enn meir. Hin nýju skip eru traustari og stærri en þau gömlu. Nýjar verksmiðjur liafa risið upp og síldar- verksmiðjukostur landsins aukizt nærri um lielm- ing að afköstum. Upplíygging fiskiðnaðarins stendur yfir og eru mörg ný frystihús og niðursuðuverksmiðjur í þann veginn að verða tilbúin. Nýsköpun sjávarútvegsins ltefur miðað allvel áfram, þó að enn skorti mikið á, að því marki hafi verið náð, sem stefna ber að í eflingu sjávar- útvegsins, hvað tæki og tækni snertir. Verklýðssamtökin ltafa átt drjúgan þátt í ný- sköpun atvinnulífsins og munu áfram fylgjast með gangi þeirra mála af áþuga. Alþýðan hefur skilið, að lífskjör liennar mið- ast við efnahag þjóðarheildarinnar og blómlegt atvinnulíf er }dví grundvöllur jress, að liægt sé að knýja fram góð kjör hinum vinnandi stéttum til handa. Alþýðan stendur lteil og óskipt að nýsköpun atvinnulífsins. Hún hefur rekið á eftir uppbygg- ingu sjávarútvegsins, þegar braskaralýðurinn liefur dregið t'ir eðlilegum framkvæmdum og áfram mun hún lialda að tryggja fullan ávinning af þeim sigrum, sem unnizt hafa í þessum efnum. í þeim almennn umræðum, sem fram liafa farið undanfarin tvö ár um uppbyggingu sjávar- útvegsins, er einn veigamikiff þáttur, sem mjög grípur inn í rekstur útgerðarinnar og sjávarút- vegsins yfirleitt, sem Jítið hefur verið ræddur. Þessi þáttur er samskipti útvegsins við auðhring- ana utan og innan lands. Þegar Islendingar tirðu sammála um nýsköp- un sjávarútvegsins, kaup nýrra, afkastamikifla skipa og bygging nýtízku verksmiðja, þá var ætl- unin, að þjóðin fengi að njóta vaxandi afkasta og hagnýtari vinnsl uaðferða, en ekki, að liinn aukn'. arður lenti í gini auðliringa eða braskaralýðs. En hvernig víknr þessu í rauninni við, eins og nú háttar málum. TÖkum til athugunar afurða- sölumálin. Gott dæmi um ástandið í þeim mál- um er salan á síldarlýsinu. Við fslendingar höf- um lengst af látið nær alla þessa dýrmætu frarn- Jeiðslu okkar til eins brezks auðlirings, Lever Brotliers. Þessi auðhringur hefur skammtað okk- ur verðið og lilátt áfram verið algjörlega einráður um livað það skyldi vera á hverjum tíma. Þeir íslendingar og stofnanir, sem með söluna liafa farið, virðast liafa verið svo fast hnýttir aftan í 330 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.