Vinnan - 01.12.1946, Page 37
Ég sezt á bekk til að hvíla mig (eða réttara sagt
til þjónkunar við letina, eins og slæpingja er sið-
ur). Ég hlusta um stund á dulúðgan nið bíla-
straumsins og horfi á hvernig nóttin sígur hægt
og þungt ofan á stórborgina.
Eftir nokknrn tíma ætla ég að halda áfram. Þá
sé ég mann koma sunnan hágönguna. Jæja,
kannske ég bíði þar tii hann er farinn fram hjá,
— kann ekki við að hafa ókenndan mann á hælum
mér.
Þessi maður fer hægt. Honum liggur ekkert á.
Kannske er það Kínverji og hefur aldrei tekið
tímann með í reikningsdæmi sín. Eftir langa
stund hefur hann þokazt á móts við mig. Ég hef
nægan tíma til að virða hann fyrir mér. Þetta er
miðaldra maður, meðaihár og grannur. Hann er
í snjáðum fötum, sem bera ekki með sér mikil
umhirðumerki. Ekki eru það samt verkamanna-
föt. Það er eins og maður þessi sé óstyrkur í fót-
um, líkt og ölvaður væri, en ber þó ekki með sér
nein önnur merki ölvunar. Hann þokast fram hjá
mér og virðir mig ekki viðlits. — Bezt að lofa lion-
um að verða góðan spöf á undan, þó að það gangi
eitthvað upp á nóttina, annars dreg ég hann strax
uppi.
Þegar maður þessi er kominn svo sem 50 metra
fram hjá mér, dregur hann úr gönguhraðanum,
sem mátti þó ekki minni vera, og stendur foks
grafkyrr drykklaniga stund. Þá snýr hann við og
þokast í áttina til mín.
Afsakaðu, — má ég tylla mér hérna á bekkinn,
segir hann.
Ekki bað ég um leyfi að mega setjast á hann,
en settist þó, svaraði ég. Hann settist á bekkinn
rétt hjá mér og segir um leið.
Það er annað mál. Þú komst að ósetnum bekk
og átt því réttinn yfir honum.
Þú kemur að setnum bekk, og átt því réttinn
að ryðja mér burt af honum, ef þú ert Ameríku-
maður.
Er það móralskur réttur?
Nei, það er náttúrulögmál, svaraði ég. Það er
lögmál, sem allir valdamenn í þessu landi viður-
kenna og fara eftir, ef ég veit rétt.
Það er ekki réttur. Það er orkuspursmál.
Orkuspursmál, en ekki réttur, segir þú. Er það
sitt hvað. Ekki vissi ég það fyrr. í framkvæmd hef-
ur hugtakið réttur aldrei verið, er ekki og verður
aldrei annað en orkuspursmál.
Maðurinn hristi höfuðið ólundarlega.
Þú ert leiðinlegur. Þú segir satt. Það er ekki
talandi við menn, sem sqgja satt. Sannleikurinn
er leiðinlegur, fyrirlitlegur, einskis virði. Það er
sjálfsmorðstiiraun að segja satt — í þessu landi,
að minnsta kosti. Menn eiga að segja það sem
hagkvæmast er að segja. Það er mín reynsla.
Vertu þá ekki að segja satt sjálfur. Þú gerir
sjáffan þfg leiðinlegan með því. Ekki hóf ég sam-
talið.
Við þögðum um stund. Svo hóf hann aftur
máls.
Heyrirðu niðinn? Hann er ekki háttbundinn,
ekki sannur. Þetta er ekki slagæð, ekki lífæð.
Þetta er blóðæð, — dauðablóð, sem niðar svona.
Hvað áttu við? Niðinn í Hudson? Þaðan heyr-
ist enginn niður.
Ég á við niðinn á East River Drive, blóðelf-
unni miklu.
Furðarðu þig á því að hann er ekki háttbund-
inn? Þú ættir að vita betur, fullorðinn maður.
Enginn niður er háttbundinn.
Það getur verið rétt, ef satt er sagt. En ég vii
ekki segja satt. Ég hef orðið að venja mig af því,
— mér er orðið það tamt. Nei, vitanlega verður
enginn háttur til í efninu, þegar enginn munur
er á frumögnunum og hraðinn jafn. Lífið er
slitinn niður, háttbundinn, vegna þess að hraðinn
er misjafn og frumagnirnar ólíkar. Veiztu hvað
frumagnirnar í þessari elfu heita?
Ég brýt ekki heilann um það. Ég er illa að mér
í efnafræði.
Þá er ég fróðari en þú. Frumagnirnar í þessari
elfu heita five cent.
Þarna skjátlaðist þér. Þú vilt ekki segja satt, en
getur ekki lijá því komizt. Þú ert klaufi. Hins
vegar tókst þér að segja ósatt um niðinn í East
River Drive, að hann sé ekki háttbundinn, hann
er fifandi. Þig vantar yfirsýn yfir tímann. Hann
þagnar bráðum — áður en hundrað ár eru liðin.
Hefst svo aftur í öðrum tón, — þagnar aftur.
Þetta er hátturinn.
Hefur þú vanið þig á að segja satt?
Ekki get ég nú hælt mér af því. En fiktað við
það stundum, það hef ég gert. Og það er hvergi
nærri eins erfitt og þú hyggur. Það kostar nokkur
óþægindi, víst er það. En eigum við að setja það
fyrir okkur? Eru ekki óþægindi samfara flestu,
sem við gerurn? Hafa kannske störf þeirra manna,
sem mestu hafa áorkað um sköpun menningar-
innar verið makindastörf? En taktu þetta ekki
sem álas. Þú ert ekki lakari en margir af svoköll-
uðum ágætismönnum og mikilmennum. Þeir
hafa iátið sig hafa það í þúsundatali að búa til
grýlur úr sannleikanum, og síðan orðið lafhrædd-
ir við sínar eigin grýiur. Það kostar kannske út-
gjöfd að segja satt stundum. En kemur ekki eitt-
VINNAN
343