Vinnan - 01.12.1946, Side 46
f------------------------------------------------"N
SAMBANDS-
tíðindi
v________________________________________________./
19. þing Alþýðusambands Islands
19. þing Alþýðusambands íslands var háð í Reykjavík dag-
ana 10.—16. nóv. s. 1. Þetta var fjölmennasta þing i sögu sam-
bandsins, en þingið sátu 234 fulltrúar frá 115 sambandsfélög-
um. I sambandinu eru nú 123 stéttarfélög með samtals 21417
f élagsmönnu m.
Hin nýja sambandsstjórn, er kosin var á lokafundi þingsins
laugardaginn 16. nóv., er skipuð þessum mönnum:
Miðstjórn: Hermann Guðmundsson, forseti, Stefán Ogmunds-
son, varaforseti, Björn Bjarnason, ritari. Meðstjórnendur: Jón
Rafnsson, Guðgeir Jónsson, Sigurður Guðnason, Kristinn Ag.
Eiríksson, Bjarni Erlendsson og Borgþór Sigfússon.
Auk miðstjórnar eiga sæti í sambandsstjórn eftirtaldir menn
utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar:
Fyrir Suður- og Suðvesturland: Sigurður Stefánsson, Vest-
mannaeyjum og Jóhann Sigmundsson, Sandgerði.
Fyrir' Vesturland: Jón Tímótheusson, Bolungavík og Markús
Ö. Thoroddsen, Patreksfirði.
Fyrir Norðurland: Gunnar Jóhannsson, Siglufirði og Tryggvi
Helgason, Akureyri.
Fyrir Austurland: Bjarni Þórðarson, Neskaupstað og Inga
Jóhannesdóttir, Seyðisfirði.
Varamenn sambandsstjórnar eru:
Ur Reykjavik og Hafnarfirði: Einar Ögmundsson, Guðrún
Finnsdóttir, Kristján Eyfjörð og Eggert Þorbjarnarson.
Fyrir Suður- og Suðvesturland: Björgvin Þorsteinsson, Sel-
fossi og Páll Ó. Pálsson, Sandgerði.
Fyrir Vesturland: Ingimar Júlíusson, Bíldudal og Jóhannes
Gíslason, Patreksfirði.
Fyrir Norðurland: Páll Kristjánsson, Húsavík og Jóhann Ei-
ríksson, Hofsósi.
Fyrir Austurland: Jóhannes Stefánsson, Neskaupstað og Sig-
urgeir Stefánsson, Djúpavogi.
Endurskoðendur reikninga sambandsins voru kosnir: Ari
Finnsson og Bergsteinn Guðjónsson. Til vara: Hannes M.
Stephensen.
Margvíslegar ályktanir varðandi hagsmunamál alþýðunnar
og önnur framfaramál voru samþykktar á 19. þinginu. Er
nokkurra þeirra helztu getið hér í ritinu.
Nýr kjarasamningur í Stykkishólmi
Þann 11. des. s. 1. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkalýðsfélags Stykkishólms og atvinnurekenda. Samkvæmt
nýja samningnum hækkaði grunnkaup karlmanna í almennri
dagvinnu úr kr. 2,20 í kr. 2,45 á klst. Almenn skipavinna hækk-
aði úr kr. 2,55 í kr. 2,84 á klst. og skipavinna við kol, salt og
sement úr kr. 3,10 í kr. 3,45 á klst. Grunnkaup kvenna hækk-
aði úr kr. 1,55 í kr. 1,72 á klst. og sömuleiðis drengja á aldrin-
um 14—16 ára. I eftirvinnu greiðist 50% álag og nætur- og
lrelgidagavinna með 100% álagi. Á allt kaup kemur full dýr-
tíðaruppbót mánaðarlega samkvæmt vísitölu kauplagsnefndar.
ViðræSuneínd við L. í. Ú.
Samkvæmt ósk Landssambands ísl. útvegsmanna kaus 19.
þing Alþýðusambandsins 3ja manna nefnd til þess að eiga við-
ræour við nefnd frá L. í. Ú. um sameiginleg áhugamál beggja
sambandanna. Þingið kaus í þessa nefnd þá Lúðvík Jósepsson,
Jón H. Guðmundsson og Sigurð Stefánsson. Átti nefndin einn
viðræðufund við fulltrúa útvegsmanna meðan þingið stóð yfir.
En þar senr tveir nefndarmanna fóru úr bænunr strax að loknu
þinginu, þeir Jón H. Guðmundsson og Sigurður Stefánsson,
en báðir aðilar voru sammála um að halda viðræðum áfram,
tilnefndi miðstjórnin í þeirra stað í nefndina þá Hermann
Guðmundsson og Guðmund Vigfússon, á fundi sínum 22.
nóv. s. 1.
Nýr kjarasamningur í Olafsvík
Þann 6. des. s. 1. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkalýðsfélagsins Jökuls í Ólafsvík og atvinnurekenda. Sam-
kvæmt þessum samningi hækkaði grunnkaup karlmanna í al-
mennri dagvinnu úr kr. 2.10 í kr. 2,45 á klst. Grunnkaup í al-
mennri skipavinnu hækkaði úr kr. 2,40 í kr. 2,80 á klst., en
skipavinna við kol, salt og sement er greidd með kr. 3,00 á klst.
Grunnkaup kvenna hækkaði úr kr. 1,50 í kr. 1,95 á klst. og
drengja 14—16 ára sömuleiðis. Stúlkur 14—16 ára skulu fá kr.
1,50 á klst. Grunnkaup vélstjóra er kr. 650,00 á mán. og að-
stoðarmanna án réttinda kr. 550,00 á mán. I eftirvinnu greiðist
50% álag á dagkaupið og í nætur- og helgidagavinnu 100%.
Á allt kaupið kemur full dýrtiðaruppbót mánaðarlega samkv.
útreikningi kauplagsnefndar. Samningurinn gekk í gildi 16.
des. s. 1.
Nýr kjarasamningur Snótar í Vestmannaeyjum
Þann 30. sept. s. 1. var undirritaður kjarasamningur milli
Verkakvennafélagsins Snótar og Netagerðar Vestmannaeyja h.f.
Áður var enginn samningur til um þessa vinnu og er þetta
fyrsti samningur, sem Snót gerir um kjör verksmiðjustúlkna,
enda lítið um iðnað í Eyjum.
Samkvæmt samningnum er kaup stúlkna, er vinna í veiðar-
færaverksmiðju Netagerðar Vestmannaeyja, sem hér segir:
Byrjunarlaun kr. 190,00 á mán. (var kr. 150,00), eftir 3 mánuði
kr. 290,00 á mán. (var kr. 275,00 og hækkaði ekki úr þvi) og
eftir 12 mánuði kr. 310,00 á mánuði. Á kaupið kemur full
verðlagsuppbót. Samningurinn gildir til 1. okt. 1947 og er
uppsagnarfrestur þrír mánuðir.
-k-k-k-k'k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k'k
AF ALÞJÓÐAVETTVANGI
Framh. af bls. 315.
Konur njóta sömu launa og karlar fyrir sönru
vinnu.
í öllu starfi sínu leggur verkalýðshreyfing Júgó-
slavíu ríka áherzlu á að efla eininguna innan sam-
takanna og að skapa sem bezt samstarf við verka-
lýðshreyfingu nágrannalandanna.
(Eftir W. F. T. U. Bulletin No. 19.)
12.000 skógarhöggsmenn eru nú í verkfalli í
Kanada, krefjast þeir 5 dollara lágmarkslauna á
dag og betri aðbúnaðar í viðlegubúðunum. Ríkis-
stjórnin hefur sent verkfallsbrjóta inn í skógana,
en samtök verkamanna hafa fram að þessu getað
hindrað, að þeir taki upp vinnu. Einnig eiga þeir
í höggi við lögreglu Ontariofylkis, sem reynir að
aðstoða verkfallsbrjótana.
352
VINNAN