Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Qupperneq 13
11
Flateyrar. Hálsbólga hefir stungið sér niður í sumar, haust og vet-
ur, allt til þessa. Er hún allslæm og byrjar oftast mjög akút. Upp úr
henni fékk eitt barn djúpa ígerð í háls og varð að opna utan frá.
Isafí. Á kverkbólgu bar mjög lítið á árinu og gat aldrei heitið neinn
faraldur að henni.
Hesteyrar. Hálsbólgu varð aðeins vart á 2 heimilum.
Hofsós. Kverkabólga hefir sáralítið gert vart við sig.
Svarfdæla. Kokbólga gerði að kalla ekki vart við sig fyrri helming
ársins, en í júlí—nóv. voru sjúklingar óvanalega margir. Stundum gróf
í eða i kringum eitlinga, svo að opna þurfti.
Höfðahuerfis. Hálsbólga einkum sumarmánuðina.
Öxarfí. Hálsbólgu varð ég fyrst var seint i september. Kom til
mín fólk bæði úr Axarfirði og Kelduhverfi, er kvaðst vera nýbúið að
liggja í hálsbólgu. Við eftirgrennslun fékk ég þó ekki vitneskju um
fleiri bæi en þrjá, er kvillinn hafði verið á. Vist er, að þar fremra hófst
þetta hér í héraði, hvar sem upphaf var. í sláturtíðinni barst nú háls-
bólga þessi í bæ einn hér í nágrenni, er fjöldi manna gisti á allt haust-
ið, og þaðan aftur á bœ einn á Sléttu. Af þeim bæ aftur á bæi tvo í
kring og í heimavist barnaskóla hér í Núpasveit. Er þessi kvilli enn í
héraðinu og þau heimili alls um 15, sem ég veit til að hann hafi ver-
ið á. Faraldur þessi hefir hagað sér mjög einkennilega. Er litt næmur
en afarþrár, þar sem hann sezt að. T. d. barst hann í byrjun okt. á
mannmargt heimili á Sléttu (tvíbýli — heimafólk um 30 manns). Var
þar siðan að smátína upp fólkið nú til janúarloka. Öllu fyrst börnin
og ungt fólk. í janúar lágu 3 konur, hin elzta um áttrætt, og einn
unglingur. Á suma bæði virðist veikin hafa komið tvisvar; réttara
mun vera að hún hafi legið þar niðri (væg tilf.) í bili. Einkenni: Hiti,
á börnum oftast um 40°, á fullorðnum flestum Iægri. Megn roði innan
í hálsi en ekki mikil bólga, aldrei skóf í hálsi, svo ég liafi séð, nema
á einstaka manni smádílar, grænir. Bólga utan á hálsi hinsvegar mikil
á flestum og lengi að renna af. Stundum eitlaþroti eftir svo vikum
skipti, eftir að sjúklingurinn virtist að öðru heilbrigður. Otit. med ac.
suppur. fengu nokkur börn, fleiri vægari hlustarbólgu. Tíðast stóð hiti
5—6 daga, varð á sumum þrár en lágur, svo sem tíðkast í farsóttum, þar
sem berklaveiki er mikil. Til dæimis um það, hve lítt næm veikin er,
er það, að börn, er gengu að heiman í barnaskóla, umgengust nokkra
daga sjúldinga í heiinavist, án þess að kæmi að sök. Síðar voru þau
tekin úr skólanum, en í heimavistinni veiktust allir að lokum, þó sum
börnin mjög lítillega — síðast kennari og ráðskona, er þó var búin
að fá snert nokkurn heima af veikinni, áður en hún kom — mánuði
fyrr. Eftir þvi sem ég kemst næst, er þetta ekki diptheria, en ekki hefi
ég enn sent efni til rannsóknarsstofu.
Fljótsdals. Hálsbólga gekk í júlí—sept. Tók marga sjúklinga.
Seyðisfí. Hálsbólga gerði vart við sig flesta mánuði ársins.
Síðu. Hálsbólga gerði vart við sig seinustu 3 mánuðina, og fengu
hana víst talsvert fleiri en þeir, sem skráðir eru.
Vestmannaeyja. Gerði vart við sig í öllum mánuðum ársins, mest í
júlí. Hygg ég að sumt af henni hafi verið væg skarlatssótt.
Rangár. Hálsbólgu varð hér vart allt árið. Var talsvert illkynjuð