Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Qupperneq 20
18
og sláturhús. Kemur þar því margur, einkum að haustinu til slátur-
hússins, og sækir þangað vinnu meðal annars. Frótti ég nú það, að
einhver lasleiki hefði verið á Minniborg um haustið áður en sjúkling-
arnir veiktust á hinum bænum. Ýmsu var svarað við eftirgrennslan um
þetta, sem erfitt var að byggja á, en þó játaði einn á þessu heimili, að
hann hefði legið rúmfastur í 3 daga, eu verið einkennilega og óvenju-
lega máttfarinn í 3 vikur á eftir.
8. Iðrakvef (gastroenteritis acuta).
Töflur II, III og IV, 8.
S júklingafíöldi 1921—1930:
1921 1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929 1930
Sjúkl. 1049 1244 1024 981 1047 1303 2158 2370 2515 2037
Dánir 5 ,, 2 „ 1 5 ,, ,, 4 4
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Garnakvef hefir gert vart við sig flesta mánuði ársins,
en vægt.
Borgarfí. Nokkur tilfelli í ágúst og september. Eitt dauðsfall, barn
2 ára. Veiktist mjög hastarlega með septiskum hita og léttum menin-
gitiseinkennum í byrjun, sem hurfu von bráðar, og vatnsþunnum nið-
urgangi. Dó á 5. degi.
Borgarnes. tðrasótt stakk sér niður en var væg.
Ólafsvíkur. Garnakvef gerði vart við sig flesta mánuði ársins. Lang-
flestir af þeim sjúklingum voru börn á aldrinum 0—5 ára.
Hofsós. Iðrakvef stakk sér niður allt árið.
Svarfdæla. Iðrakvef gerði eitthvað vart við sig í hverjum mánuði.
Öxarfí. Alltaf vafamál, hvað telja skuli á farsóttaskrá af þessum
sjúklingum, því þessi kvilli er algengur af ofáti, ofkælingu etc. Það er
segin saga, að á haustin gengur garnakvef í herbúðum sláturhús-
manna á Kópaskeri. Er þeim sumum nokkuð „vandblæst að eta slátur“
eins og Þórði í Vatnsfirði forðum. Þeir leita kamars en ekki læknis
fyrr en í fulla hnefana, enda lækning ókeypis í daglegu striti. En svo
kemur hið einkennilega fyrir oss, að úr þessari „sláturhúsdrullu“ virð-
ist stundum verða meira og minna ,,local“ faraldur. Hver er „origo
mali“ og uppspretta spánskrar veiki og annara djöfullegra hluta?
Skapast slíkt sem Ýmir jötun af hrími og blæ hitans með krafti þess,
er til sendi, eða magnast lítið frjó vegna aðvífandi lífsskilyrða, er til-
viljun fleygir á borðið? Niðurstaðan varð sú, að á bæjunum i kringum
sláturhúsið varð nokkur faraldur að garnakvefi, og var leitað læknis
vegna krakka. Eru þannig hinir skráðu flestir fengnir.
Þistilfí. Iðrakvef gekk allt árið nokkuð en magnaðist skyndilega í
okt.—nóv., og var óþverra kvilli hiti og ill líðan.
Vopnafí. Síðari hluta ársins har nokkuð á áköfu iðrakvefi.
Fljótsdals. Iðrakvef gekk í maí—ágúst og tók marga, bæði börn og
fullorðna.
Segðisfí. Iðrakvef gekk frá því í maí þangað til í ágúst.
Berufí. Iðrakvef gekk frá ársbyrjun og fram í júní, þótt veikin sé
J