Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Síða 44
42
7. Drykkjuæði (delirium tremens).
Töflur V—VI.
Sjúkl............................................
í Rvík hafa 3 fengið dreykkjuæði en 1 í Siglufj.
Favus: Á þessu ári hafa 3 geitnasjúklingar verið læknaðir á Rönt-
genstofunni í Rvík, og munu þeir nú vera farnir að týna tölunni í
landinu, þó að lengi sé von á einum.
Læknar láta þessa getið:
Keflavikur. Geitnasjúkling fann ég einn, 15 ára. Var hann nýkom-
inn inn í héraðið, virðist hafa sloppið undan við skólaskoðun, þar
sem hann hefir áður verið. Hann var sendur til Röntgenstofunnar.
1929 1930
4 4
C. Ýmsir sjúkdómar.
1. Algengustu kvillar:
Nokkrir læknar geta um með hvaða kvilla sjúklingar koma tíðast
til þeirra, og eru tannskemmdir víðast efst á blaði.
Borgarfj. Langflestir sjúklinga minna hafa komið vegna tann-
skemmda, 141 (af 740 sjúkl. alls), gigt allskonar 38, taugaveiklun 31,
ígerðir og kýli 22.
Borgarncs. Tíðasti sjúkdómurinn var tannskemmdir, 220 (af 997
sjúkl. alls), þar næst slys, 105, — flest smá, — því næst ígerðir, ca.
100, o. s. frv.
Flateyrar. Algengustu kvillar: Tannsjúkdómar 143 (af 791 sjúkl.
alls), farsóttir 111, allskonar útvortis bólgur og ígerðir 86, slys 50,
blóðleysi og taugasleppa 66.
ísafj. Af 2284 sjúkl. héraðslæknis voru 373 með ýmsar farsóttir,
255 með ígerðir og bráðar bólgur, 222 slasaðir, 195 með gigt, 190 með
tannskemmdir, 114 berklaveikir.
2. Appendicitis:
Botnlangabólga virðist mjög mistíð í hinum ýmsu héruðum, eða
áramunur að henni.
Seyðisfj. Ég get ekki sagt, að ég hafi séð hér i Iæknishéraðinu eitt
einasta appendicitistilfelli 3 síðustu árin.
3. Kolsýringseitrun:
ísafj. Við húsbruna kom svo mikill kolsýringur í nærliggjandi hús, að
margt af heimilisfólkinu fékk alvarlega aðkenningu af kolsýringseitrun.
4. Leukæmia lymphatica:
Svarfdæla. Eitt tilfelli.
5. Lupus erythematodes:
Flatcyjar. Einn sjúkling hefi ég séð hér með lupus erythematodes,
sem hann er búinn að hafa í mörg ár.
6. Methylvínandaeitrun:
Á dánarskýrslum eru 5 taldir dánir úr áfengiseitrun, og mun nær
allt vera methylvínandaeitrun.
ísafj. Maður beið bana af methylspirituseitrun.