Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Qupperneq 45
43
7. Morbus Basedowi:
Siðu. Ég þykist hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að morb. Base-
dowi sé áberandi algengur í Öræfum. Svo virðist, sem ekki geti arf-
gengi verið þar um að kenna, því tvær konur, sem flutt hafa inn í
sveitina, hafa verið sjúklingar mínir vegna þessa kvilla.
8. Oxyuriasis:
Iieflavikur. Njálgur virðist vera töluvert mikið útbreiddur í Grinda-
vík, bæði meðal barna og fullorðinna.
9. Panaritia:
Læknar minnast ekki oft á fingurmein í skýrslum sínum, og eru þau
þó með hinum þýðingarmeiri sjúkdómum, er almennir praktiserandi
læknar fá til meðferðar.
Skipaskaga. Fingurmein í sjómönnum voru venju fremur tíð á ár-
inu og mörg mjög illkynjuð. Einn sjúklingurinn stakk sig á öngli í
2. köggul þumalfingurs vinstri handar; fékk hann 2 dögum eftir
stunguna hólgu upp eftir öllum handlegg, hita 40,8C og öll einkenni
blóðeitrunar. Þrátt fyrir tafarlausa aðgerð dó maðurinn af blóðeitrun-
inni á 4. degi eftir stunguna.
Miðfj. í sláturtíðinni hér bar töluvert á fingurmeinum. Langflest
þeirra voru panaritia cutanea og þau voru einnig langvinnust og erf-
iðust viðureignar, vegna þess hve sterka tilhneigingu þau höfðu til
að breiðast út eftir húðinni, en aldrei gengu þau dýpra. Af þeim 7
panaritia cutanea, sem ég hafði til meðferðar, var tíminn frá 7—25
dagar, sem þau voru að læknast. Á sama tíma hafði ég aðeins 2 pan-
aritia subcutanea, en þau læknuðust hæði á 7 dögum. Meðferðir á
p. subcut. var incisio og jodoformgaze, en á p. cut. klippti ég húðina
ofan af allri blöðrunni og notaði fyrst þurrar umbúðir, jodoformgaze,
en hætti brátt við þær aftur sökum þess, að skorpa myndaðist undir
þeim, sem graftarpollur stóð undir og út frá honum sýktist alltaf
húðin í kring. Fór ég þá að nota smyrsl (nitras arg. 1, balsam. peruvian.
10, vasilinum. 100) og gafst það ágætlega, en alltaf var töluverð til-
hneiging til að breiða sig út. Bakeríurnar, sein fundust í greftinum,
voru streptococcar í báðum tilfellum af p. subcut. og tveim tilfelluin af
p. cut., en staphylococcar í hinum tilfellunum. Allir þessir sjúklingar
höfðu unnið í sláturvinnu.
Keflavikur. Mikið var um fingur- og handarmein á vertíðinni, og
virtust þau frekar illkynjuð.
10. Rachiscisis:
Isafj. Barn fæddist með rachiscisis. Dó þrátt fyrir tafarlausa aðgerð.
11. Rachitis:
Berufj. Eitt tilfelli.
Vestmannaegja. Beinkröm er hér mjög fátíð og hefi ég ekki séð hana
á árinu.
12. Veggjalús (cimex lectularius)
er hér og hvar í þorpum og kaupstöðum en víðast bundin við örfá
hús. Eins og annarsstaðar gengur mjög erfiðlega að útrýma henni, en
óvíða breiðist þessi ófögnuður út. Helzt er það í Dýrafirði. Norðmenn
fluttu lúsina með sér á hvalstöðvartímunum og liggur hún þar í landi
síðan og komin á marga bæi.