Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Page 46

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Page 46
44 Flateijrar. Samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisstjórnarinnar var reynt síðastl. sumar að eyða veggjalúsinni í Dýrafirði með formalíngufu, en svo sem vita mátti, bar það engan árangur. Breiðist lús þessi út ár- lega og stendur mínu héraði hætta af ófögnuði þessum, en því er þessa hér getið, og af sömu ástæðu geri ég allt hvað ég get til að hvetja til, að plágu þessari verði útrýmt. D. Kvillar skólabarna. Læknar láta þessa getið: Skipaskaga. Eins og að undanförnu hafði ég þvínær daglegt eftir- lit með heilsu barnanna, og reyndist hún til áramóta með bezta móti. Borgarjj. Nemendur skólanna á Hvanneyri og Hvítárbakka voru skoðaðir þegar eftir skólasetningu og reyndust sæmilega hraustir. Heilsufar var gott um veturinn í báðum skólunum. Borgarnes. Börnin hafa reynzt hraust og heilsugóð það sem af er þessu skólaári, og engin pest tafið þau frá náminu svo ég viti. Ólafsvíkur. Yfirleitt virtust sveitabörnin hraustari en kaupstaða- börnin. Við skólaskoðun fundust lungnaberklar í 4 börnum; var þeim vísað frá skólanum í bili og höfð undir lækniseftirliti, og virtist þeim batna furðufljótt, svo að flest þeirra gátu tekið þátt í kennslu síðari hluta skólaársins. Flategjar. Börnin skoðuð bæði í okt. og jan. Við skoðunina kom í Ijós, að öll börnin höfðu þyngst nema eitt, sem hafði legið nokkurn tíma í bronchitis. Lúsin var horfin, en nit var enn í einu barni. Dala. Ráðstafanir voru gerðir til að reyna að bæta úr flestum kvill- um barnanna. Verst er, hve lítið er hægt hér að bæta úr þeim kvill- anum, sem algengastur er, tannskemmdunum. Aðgerðum verður ekki almennt við komið að svo stöddu, en reynt er að brýna fyrir fólki, að tannhirðing sé nauðsynleg. En almenningi er ekki enn nógu ljóst, að tannskemmdir séu skaðlegur sjúkdómur, nema að því leyti sem þær valda tannpinu. Húmæðraskólinn á Staðarfelli: í októbermán. voru skoðaðir nem- endur (17) og kennarar (3). Enginn með smitandi sjúkdóma. Húsnæði og aðbúð góð. Svarfdæta. 3 börnum bönnuð skólavist þetta ár, einu þeirra, er átti sókn að Stærra-Árskógi, vegna vanþrifa og gruns um lungnaberkla, og öðru í Hrísey af sömu orsökum; voru bæði skólaskyld nú í fyrsta sinn. Loks var dreng, er átti skólasókn að Auðnum, og hafði hvað eftir annað fengið köst af febril bronchitis og asthma síðastliðið ár, ráðlagt að sækja ekki skóla í vetur, þótt heilbrigður virtist, er skoðunin fór fram. í bráðina var bönnuð skólasókn: 1 barni úr skólanum í Litla- Árskógssandi vegna ang. tons., 1 barni úr skólanum í Stærra-Árskógi vegna febril bronchitis, 2 úr Grundarskóla vegna sama, 1 úr Dalvíkur- skóla vegna sama, 4 úr Hríseyjarskóla vegna sama og 4 vegna nitar. Öllum batnaði fljótlega, svo að þau gátu sótt skólana. Akureyrar. 1 berklaveiku barni var synjað um skólagöngu. 24 börn fundust heiltent og án tannskemmda.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.