Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Síða 67
65
flest eru úr timbri eða torfi, en örfá úr steinsteypu. Yfirleitt má segja,
að íbúðirnar séu slæmar. Neyzluvatninu er einna helzt ábótavant.
Flest hús þorpsins nota vatn úr Syðri-Hvammsá, sem jafnframt er
notuð til að skola þvott úr, verka fisk o. s. frv., og er allskonar rusli
fleygt í ána. Flestir sjóða samt vatnið áður en það er notað til drykkj-
ar eða matar.
Hin húsin fá vatn úr brunnum, en þeir eru yfirleitt grunnir og
þorna upp í þurkatíð á sumrum. Vatnsleiðsla úr ánni er í þrem hús-
um, úr brunnum i fimm húsum. Til læknisbústaðar og sjúkraskýl-
isins er vatnsveita úr lindarbrunni, sem lítil hætta er á að muni geta
þrotið. Salerni eru í ca. 9 húsum, þar af 2 vatnssalerni. Langflest hús-
in eru þannig salernislaus og gengur fólk örna sinna í peningshúsum
eða þar sein hezt lætur. Sorpi er víðast hvar fleygt i sjóinn, og er því
haldið til streitu, að það sé gert.
Svnrfdæla. Talsvert hefir enn verið reist af íbúðarhúsum í kaup-
túnunum þetta ár, en ekki nema eitt hús í sveit, sem mér er kunnugt
um. ÖII þau hús, sem reist hafa verið á árinu og ég veit um, eru úr
steinsteypu. Miðstöðvarhitunartækjum fjölgar óðum. 2 rafveitur hafa
verið gerðar á árinu.
Höfðaliverfis. Fjögur hús hafa verið reist á árinu, 2 úr timbri og 2
úr steini. Miðstöðvarhitun í öllum. Auk þess voru settar miðstöðvar í
2 önnur hús. Ein rafstöð var byggð hér í sveit í sumar.
Reykdæla. Húsakjmni batna árlega í héraðinu. Allmörg hús byggð,
flest úr steinsteypu. Rafstöðvar reistar á nokkrum bæjum til ljósa og
hita. Þrifnaður í góðu lagi. Lítið um lús. Ekkert kláðatilfelli á árinu.
Öxarfj. Ég hefi gert lauslegt yfirlit yfir byggingar í héraðinu og
flokkað þær eftir efni, sem þær eru gerðar úr. Jarðir eru 76 í hérað-
inu. Á þeim eru 98 bæir, víða því tvíbýli og meira á sama bæ. Húsum
í kauptúninu er sleppt. Þau eru (íbúðarhús) 35, öll úr steinsteypu eða
timbri.
Þessir 98 bæir eru:
Torfbæir ..................................... 51
Steinsteypuhús ............................... 26
Timburhús .................................... 21
98
Af torfbæjunum eru 22 með óbrjáluðu gömlu lagi — stafnar frain
á hlað, göng, búr og eldhús og baðstofa í fornum stíl. Þeir eru allir
gamlir ræflar og undantekningarlaust illlíft í þeim. í hinum 29 torf-
bæjunum eru öllum nýlegir hlutar, t. d. baðstofa með stofulagi eða
„framhús“ eða hvort tveggja. í sumum heil hús úr steini eða timbri.
Víða elzti bæjarhlutinn eftir tízku 1830, nokkuð frá 1900—1910, og
loks nokkuð eftir nýjasta Reykjavíkurmóð. Þeir hafa það sameigin-
legt og fram yfir fornu bæina, að oftast er í þeim einhver þolanleg
kompa, en í heild sinni eru þeir litlu betri bústaðir og litlu meir til
frambúðar, — óhentugt klastur. Þeir, sem þessa bæi eiga, eru í mikið
öngþveiti komnir. Það eru mennirnir, sem hafa valið þá leið að byggja
smátt og smátt langa búskapartíð og í hvert sinn byggt eftir þeirri
lízku, er ríkti í svipinn. Því hafa sumir lagt í mikinn kostnað og sitja
5