Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Side 68

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Side 68
66 í skuldum eftir, blöskrar að rífa stæðileg hús, er enn líta vel út. Jafn- vel enn á allra síðustu árum hafa menn, sem átt hafa stæðileg fram- hús eða annan bæjarhluta líkan, frá aumasta tímabili sveitabygg- inga (ca. 1890—1915) verið að klessa inn í hrófið baðstofu úr steini eða þá skemmu. Það er ekki svo þægilegt að rífa sig upp af þessari braut, enda e. t. v. þorranum ekki ljóst, í hvaða kreppu þeir eru komn- ir, þó vatn og vindur leiki um þá frá samskeytunum og sagginn og fú- inn herji þessa bæjarskrokka. Þrjú steinhús og 14 timburhús eru byggð fyrir 1920, flest fyrir styrjöld. Eru mörg þeirra slæm. 23 stein- steypuhús og 7 timburhús hafa verið byggð síðan 1920, flest á síð- ustu 5 árum. Hefir þannig nær þriðjungur allra bæja í héraðinu verið byggður á þessu tímabili. Mætti það ágætt heita, ef ekki væri að mestu leyti byggt í skuld. Þessi hraðfara byggingaralda vekur margar spurn- ingar. Eru þetta hollir bústaðir og svara þeir til atvinnuvega ibúanna? Húsin eru súglaus og rakalítil, miðstöðvarhitun í flestum og hlýindi sæmileg og eldsneyti skortir ekki. Fyrir loftræstingu er illa séð eða alls ekki, að öðru en því, að suma glugga er hægt að opna. Gluggar eru af ýmsum gerðum og stærðum, en að minni skoðun í fæsta og smæsta lagi. Að öllu samanlögðu eru þetta víst sæmileg hús frá holl- ustunnar sjónarmiði. Seinni lið spurningarinnar er auðsvarað ákveð- ið neitandi. Húsin standa langt að baki bæjum afa okkar í því að svara til allra þarfa íbúanna, og ég hefi ekki séð gert ráð fyrir viðbót- arbyggingum, sem bæti skakkann að fullu. Auk þess koma þær víða seint, sennilega sumstaðar aldrei. Þetta sést strax og heim er litið. Allstaðar — og þó 10—20 ár séu liðin síðan byggt var, hanga uppi gömlu bæirnir við húshliðina, líkastir fjóshaugshrúgaldi heilmiklu. Ósamræmið er svo sterkt, að það verður ekki fundið hvor byggingin bölvunina gerir. Gamli bærinn hefir ekki verið rifinn, af því að hans er full þörf. Þar er eldiviður (hann er rúmfrekari en í kauptúnum), ket, saltfiskur, harðfiskskippur, amboð öll, reiðtýgi, aktýgi, fatnaður, víða kornmatur. Þar er smiðað. Þar eru hestajárn og hófjárn og brennijárn, og yfir höfuð allir þeir hlutir, sem atvinna bænda krefst fram yfir það, sem kaupstaðarbúar þurfa. Nýja húsið svarar að sumu leyti til baðstol'unnar og eldhússins og búrsins í gömlu bæjunum — en svo ekki meir. Jafnvel hundarnir hafa gleymst, þrátt fyrir hina hrópandi rödd míns stutta nafna — og mína hins langa. Þrifnaður er sæmilegur, lakastur sumstaðar í kringum bæi, eins og ég hefi fyrr drepið á í skýrslum. Útisalerni verða aldrei notuð hér af kvenfólki og börnum, nema e. t. v. lítillega árs, og karlmenn ganga örna sinna þar sem þeir eru við verk. Salerni verða að vera inni. Mikil lús er sjaldgæf, en lús kemur sennilega á hvert heimili árlega. Úr því vill verða slæðingur æði lengi. Þistilfj. Byggingar fyrir fé Landnámssjóðs eru að sýna sig að vera allt of dýrar. Búskapurinn ber ekki að standa straum af þeim, þó lánskjörin séu sæmileg. Vopnafj. Húsabyggingar hafa verið mjög litlar. Ekkert nýtízkustein- hús hefir verið byggt hér ennþá. Það, sem byggt hefir verið, eru sum- part baðstofur, sumpart timburhús, smá og ófullkomin. í sveitinni er umgengni lík og verið hefir úti við frá alda öðli. í þorpinu er um-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.