Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1930, Síða 75
73
náttúrlega ekki almennt, en mér hefir dottið í hug, að heppilegt væri að
safna þessum gamalmennum saman í gott hús, þar sem hverahiti væri,
og hjúkrunarkona til að sinna gamla fólkinu. Svo hefði það ánægju og
dægrastyttingu hvað af öðru.
Þistilfj. Meðferð ósjálfbjarga fólks er góð.
12. Samkomuhús. Kirkjur. Kirkjugarðar.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Akraneskirkja: Umgengni og þrifnaður i kirkjunni í
bezta lagi. Um sveitakirkjurnar tvær er litið að segja. Þær munu hafa
verið notaðar eitthvað í sumar, en frá því í október hefir aðeins verið
messað einu sinni í Leirárkirkju, en aldrei í Saurbæ. Presturinn í
Saurbæ situr suður í Reykjavík og hefir ekki sézt í vetur. Kirkjugarðar
eru vel hirtir. Samkomuhús kauptúnsins orðið allt of lítið. Loftræst-
ing ekki önnur en gluggar á hjörum, og er það ófullnægjandi, þegar
fjölmennar samkomur eru. Þrifnaður í góðu lagi. 1 sveitum er aðeins
eitt samkomuhús, í Leirársveit. í því húsi er ofn og gluggar á hjörum
og þrifnaður sæmilegur.
Borgarnes. Kirkjur eru nokkuð margar en smáar i héraði mínu og
lítið munu þær vera notaðar, — sumar ekki hitaðar á vetrum vegna
þess að ofn vantar eða þá eldivið; veit ég að prestar lesa oft ræðuna
yfir heimafólki og nokkrum öðrum af næstu bæjum inni í baðstofu á
kirkjustaðnum þegar kalt er. Kirkjunum þyrfti að fækka og flytja
þær úr stað í samræmi við nýlegar vegagerðir. Viðtækjum útvarps er
óðum að fjölga, og býst ég við að fólk heimti meiri útvarpsmessur —
hádegismessur á sunnudögum, — og að kirkjuferðir leggist smátt og
smátt niður í sveitum. Um kirkjugarða og greftrunarsiði kann ég ekk-
ert nýtt að segja; vil þó geta þess, að ég teldi heppilegt, að líkbrennsla
kæmist á hér á landi. Önnur samkomuhús: í héraði mínu eru fá þing-
og samkomuhús; eru barnaskólarnir sumstaðar notaðir fyrir sam-
komur, en í öðrum hreppum eru stærstu stofurnar í rúmbeztu íbúð-
arhúsunum notaðar til fundarhalda.
Mjög sjaldan sést fólk hrækja á gólfin nú orðið. Húsakynni alþýðu
eru óðum að batna, og mörg hús eru árlega hyggð; einkum er bærilegt
lag og skriður á þessu síðan Byg'gingar- og landnámssjóður tók til
starfa; — aðeins er ég hræddur um að upphitun verði ekki eins góð
og skyldi — þrátt fyrir miðstöðvarnar — vegna skorts á kolum. Mér
virðist hreinlæti aukast smátt og smátt, en betur má þó ef duga skal;
t. d. er salernum mjög ábótavant enn, og á sumum bæjum eru þau alls
ekki til. Fráræsla er sumstaðar léleg, en allt fer þetta þó í framfaraátt.
Ólafsvíkur. Kirkjur eru 6 í héraðinu, flestar óhitaðar og því óvist-
legar og miður hollar á vetrum. Samkomuhús nokkurnveginn vel út-
lítandi, en flest of lítil miðað við fólksfjölda, og loftræsting því ekki
nægileg á fjölmennum samkomum.
Svarfdæla. Samkomuhús hefir Ungmennafélag Svarfdæla reist í
Dalvík, stórt og myndarlegt; er þar raflýsing og miðstöðvarhitun. Á
l>rifnaði verða ekki stórstígar hreytingar á ári hverju, en af undanfar-
inni reynslu má ætla, að heldur miði í áttina til hins betra.